Athyglisverð grein um stjórnarskrána

Björn Einarsson læknir skrifar athyglisverða grein um stjórnarskrána í Fréttablaðið í gær.Þar setur hann fram ýmsar athyglisverðar hugmyndir um breytingar. Ég er sammála sumum þeirra en öðrum ekki.Björn vill auka lýðræðið  og  auka veg alþingis.Ég er sammála því.Hann vill ekki aukið forsetaræði. Ég er sammála því.Hins vegar er ég ekki sammála því að taka stjórnarmyndunarumboðið úr höndum forseta.Ef það væri gert mætti allt eins leggja embættið niður og fela forseta alþingis hlutverk forseta Íslands. Ég   er sammála því að tekið verði upp persónukjör við kosningar.Það er mjög mikilvæg breyting.Hún mundi slá af prófkjörin,sem í seinni tíð hafa verið skaðleg.Ég er einnig sammála  því að draga þarf úr foringjaræði flokksformanna.Það er ótækt að formenn flokkanna hagi sér eins og einræðisherrar,einkum við stjórnarmyndanir,þegar þeir velja ráðherra.Það þarf aukið lýðræði  við val á ráðherrum,jafnvel fagnefndir,sem gerðu tillögur um ráðherra.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband