Ólafur Thors vildi efla almannatryggingar,Bjarni halda þeim niðri!Lífeyrisþegar hlunnfarnir nú!

Þegar ríkisstjórn Alþýðuflokksins,Sjálfstæðisflokksins og Sósialistaflokksins setti lög um almannatryggingar 1946,var Ólafur Thors formaður Sjálfstæðisflokksins forsætisráðherra.Hann lýsti því þá yfir,að almannatryggingar á Íslandi ættu að vera í fremstu röð slíkra trygginga í Evrópu og allir á Íslandi ættu að njóta þeirra án tillits til stéttar eða efnahags.Fyrst eftir lagasetninguna voru almannatryggingar á Íslandi í fremstu röð en síðan drógust þær aftur úr og í dag standa almannatryggingar á Íslandi langt að baki slíkum tryggingum á Norðuröndum og í Bretlandi.Grunnlífeyrir á Ísland er aðeins þriðjungur slíks lífeyris í grannlöndum okkar. Ólafur Thors vildi efla almannatryggingar hér. Bjarni Benediktsson vill halda þeim niðri.Það eru alger öfugmæli,þegar Bjarni Benediktssn segir,að núverandi ríkisstjórn sé að auka lífeyri aldraðra og öryrkja meira en nokkru sinni áður  á lýðveldistímanum.Ríkisstjórnin er ekki að efla almannatryggingar hér neitt.Hún heldur ekki einu sinni í horfinu. Laun hækkuðu hér um 14-20% á árinu 2015.Launin hækkuðu frá 1.mai 2015. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkar aðeins um 9,7% frá l.janúar 2016.Lífeyrir  hækkar miklu minna en laun og 8 mánuðum seinna en laun.Það er því verið að brjóta lagaákvæði um að lífeyrir eigi að hækka í samræmi við launaþróun og það er verið að hlunnfara lífeyrisþega með því að draga þá á hækkun í 8 mánuði.Lífeyrir hækkaði meira 1946 en nú.Og lífeyrir hækkaði um tæp 20% í ráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur um áramótin 2008/2009.Það stenst því engan vegin,að ríkisstjórnin sé nú að gera betur en áður. Það er þveröfugt. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurardóttur stóð sig einnig betur á krepputímanum gagnvart lífeyrisþegum,þar eða lífeyrir þeirra,sem voru á strípuðum bótum, var þá ekkert skertur. Hann hélst óbreyttur þó aðrar bætur lækkuðu.Þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben. eru ekki að bæta kjör lífeyrisþega Þeir eru að níðast á þeim.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lög um Kjaradóm og kjaranefnd.http://www.althingi.is/altext/stjt/1992.120.html

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 13:04

2 identicon

Þetta er rétt.  Meira að segja "Hrunstjórnin" stóð sig betur.   Já, Geir H. Harde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttur stóðu sig betur með hækkanir Almannatrygginga árið 2008 og í janúar 2009.   Auðvelt að skoða á tr.is

Guðbjörg Þórey Gísladóttir (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband