Krónan komin á flot

Gengi krónunnar hefur fallið um tæp 3% í morgun en krónan var sett á flot á föstudag, þó með þeim takmörkunum sem fylgja reglum Seðlabankans. Gengisvísitalan er komin yfir 250 stig. Bandaríkjadollar er nú tæpar 148 krónur, pundið 222 krónur og evran 187 krónur.

Krónan hefur fallið um tæp 20% gagnvart evru frá miðjum október. Í morgunkorni Glitnis kemurm fram að forsendur séu fyrir því að krónan styrkist til lengdar en til skemmri tíma gæti hún lækkað enn meira núna þegar hömlur á almenn gjaldeyrisviðskipti hafa verið afnumin.(ruv.is)

Menn eru mjög hræddir um að krónan hrapi.Þess  vegna er henni handstýrt að hluta,þannig að hún

flýtur ekki alveg.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband