Niðurskurður lífeyris aldraðra og öryrkja mannréttindabrot

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir 2010 verður ellilífeyrir ( grunnlífeyrir) 8,7 milljarðar það ár og tekjutrygging aldraðra 15,7 milljarðar.Sömu tölur fyrir öryrkja eru: Örörkulífeyrir 5 milljarðar og tekjutrygging öryrkja 13,3 milljarðar.Þetta er eftir niðurskurð. Ekki eru þessar tölur það háar,að þær setji þjóðarbúið á hliðina.Heildarútgjöld ríkisins næsta ár verða skv. frumvarpinu 555 milljarðar.Grunnlífeyrir nemur því 1,6% af heildarútgjöldum.Hvers vegna var félagsmálaráðherra að' skerða þessa hungurlús.Var það samkvæmt erlendu valdboði eða var talið nauðsynlegt að skera eitthvað niður hjá öllum  þó það skipti engu máli í heildarsparnaði.

Eftir að hafa lesið helstu mannréttindasáttmála,sem Ísland er aðili að tel ég að niðuskurður á kjörum aldraðra og öryrkja sé mannréttindabrot.Ríkisstjórnin ætti því að sjá sóma sinn í því að afturkalla kjaraskerðingu lífeyrisþega.

 

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband