Skattrannsóknarstjóri fær aukið fjármagn

Auknu fjármagni verður veitt til embættis Skattrannsóknarstjóra á næstunni. Embættinu verður því gert kleift að bæta tuttugu manns í þann hóp sem rannsakar meint skattalagabrot. Þetta var á meðal þess sem var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun en þau Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sátu fyrir svörum að fundi loknum.

Í máli Jóhönnu kom fram að einnig standi til að auka fjárframlög til embættis sérstaks saksóknara vegna þeirra mála sem meðal annars er tæpt á í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Á sama fundi boðaði Jóhanna að nefnd sú sem unnið hafi að endurskoðun á stjórnsýslulögum væri að ljúka störfum á næstunni. Að sögn Jóhönnu leggur nefndin til töluverðar breytingar í stjórnsýslunni sem meðal annars er ætlað að mæta þeirri gagnrýni sem sett hefur veið fram af rannsóknarnefnd Alþingis.

(visir.is)

Ljóst er að forsætisráðherra tekur þessi mál föstum tökum.Hún hraðar breytingum á stjórnsýslunni og eflir embætti  skattrannsóknarstjóra.Hún virðist taka á þessum málum með röggsemi.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband