Gleði yfir stjórnlagaþingi

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagðist vera mjög glaður í dag að hafa náð þeim áfanga að fara greiða atkvæði um stjórnlagaþing. „Hér er verið að ná lýðræðisumbótum í okkar samfélagi," sagði Birkir Jón og sagði það sögulegt skref í sögu lýðveldisins. Hann sagði það mikilvægt að þing og þjóð gangi í takt og endaði á orðunum: „Ég segi til hamingju Ísland."

Ólína Þorvarðardóttir, Samfylkingu, lýsti ánægju sinni á frumvarpinu. „Málið hefur tekið farsælum breytingum í nefndinni," sagði Ólína.

Alþingi samþykkti samhljóða breytingartillögur allsherjarnefndar um stjórnlagaþingið. Nú fer málið til þriðju umræðu en allar líkur eru á að frumvarpið verði að lögum fyrir þinglok(visir.is)

Það er greinilega mikil ánægja með samstöðu um stjórnlagaþing enda að vonum:Það er krafa almennings að þinginu verði komið á fót.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband