Bankarnar geta borið skaðann af dómnum

Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að bankarnir hafi borð fyrir báru og þurfi því ólíklega meira fé úr ríkissjóði til að leiðrétta gengistryggðu bílalánin. Ríkisbankarnir geta tekið skellinn sem verður vegna dóms Hæstaréttar um að gengistryggð bílalán séu ólögleg. Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins, segir þó líklegt að ríkissjóður, sem bankaeigandi, verði af fjármunum vegna dómsins. Hagnaður bankans minnki. Elín metur það svo, að þar sem að Fjármálaeftirlitið geri nú kröfu um hærra eigið fé bankanna geti þeir staðið tapið af sér án þess að ríkið þurfi að veita þeim meira fé.

Viðskiptanefnd og skatta-og efnahagsnefnd Alþingis funduðu í dag með ýmsum hagsmunaaðilum. Niðurstaðan var sú að leita þyrfti leiða til að leiðrétta lán sem flestra, óháð við hvaða banka þeir skiptu. Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, harmar að Hæstiréttur hafi  ekki skorið úr um hvernig leysa ætti vandann. Hún telur að til þess að ná sátt í samfélaginu um leiðréttingu á forsendubrestinum sé mun betra að stjórnvöld taki heildstætt á skuldavanda heimilanna. Það sé brýnt að svo verði sem allra fyrst, ef hér eigi ekki að vera mikið ósætti um þessa leiðréttingu á gengistryggðum lánum.(ruv.is)

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband