Eldri borgarar og öryrkjar njóti fullra mannréttinda

Samkvæmt stjórnarskránni eiga allir að vera jafnir fyrir lögunum og allir eiga að njóta mannréttinda.Í lögum um málefni aldraðra segir,að aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við aðra þegna þjóðfélagsins.Mikill misbrestur hefur verið á því,að þessum lagaákvæðum hafi verið framfylgt.Rannsóknir leiða í ljós,að biðtími aldraðra eftir meðferð á sjúkrastofnunum er lengri en þeirra,sem yngri eru.Í launa- og kjaramáum hafa eldri borgarar og  öryrkjar sætt annarri meðferð en launþegar almennt.Kjörum eldri borgara og öryrkja hefur verið haldið niðri og þau skert á sama tíma og láglaunafólk hefur fengið kjarabætur.Embttismenn og alþingismenn hafa fengið leiðréttingu á kjörum sínum afturvirkt á sama tima og kjör aldraðra og öryrkja hafa verið fryst!Eldri borgurum og öryrkjum hefur því verið mismunað freklega.Mannréttindi hafa ítrekað verið brotin á þeim.Kjaraskerðing aldraðra og öryrkja,sem tók gildi árið 2009 var brot á mannréttindum og hið sama er að segja um kjaragliðnun krepputímans.(Samþykkt á aðalfundi Félags eldri borgara í Rvk 2015).

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband