Mistök Landsbankans við sölu á Borgun

Í lok ársins 2014 seldi Landsbankinn þriðjungshlut sinn í Borgun,Visakortfyrirtæki.Það,sem var sérkennilegtvið þessa sölu, var það,að ekkert útboð fór fram,heldur voru kaupendur handvaldir.M.ö.o: :Það var aðeins fyrir vissa útvalda að fá að bjóða í hlutinn. Salan fór fram.Meðal kaupenda var föðurbróðir Bjarna Benediktssonar ,fjármálaráðherra.Nokkru eftir að hinir nýju  eigendur höfðu eignast Borgun samþykkti félagið að greiða nýjum eigendum umtalsverðan arð.

 Gárungarnir sögðu þá,að nýju eigendurnir hefðu greitt fyrir Landsbankahlutinn með arðinum!

Þegar alþingi kom saman á ný í vikunni stóð upp Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar og gagnrýndi sölu Landsbankans á Borgun harðlega.Fór hann fram á,að alþingi rannsakaði söluna.

Árni Páll sagði,að Borgun væri að fá á annan tug milljarða í arð af sölu Visa Europe til Visa Inc en sú sala hefði verið fyrirsjáanleg þegar Landsbankinn hafi selt Borgun. Við sambærilega sölu á hlut í Valitor hefði Landsbankinn sett ákvæði í sölusamninginn um að bankinn fengi hlut af arði vegna sölu Visa Europe til Visa Inc.Sambærileg ákvæði hefðu átt að vera í sölusamningi vegna sölu Landsbankans á Borgun. Árni Páll taldi,að Landsbankanum hefðu orðið á mistök við söluna á Borgun.Þetta væri eitt stórt klúður.Þessi mistök lofa ekki góðu um væntanlega sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum.-Bankastjóri Landsbankans  hefur nú lýst því yfir,að við sambærilega sölu í framtíðinni verði söluferlið opið. Með þeirri yfirlýsingu hefur bankastjórinm viðurkennt,að ranglega hafi verið staðið að sölunni á Borgun.

Eftirlits-og stjórnskipunarnefnd alþingis ætlar að rannsaka sölu Landsbankans á Borgun. Ekki er vanþörf á. Fyrir handvömm tapar Landsbankinn meira en tug milljarða. Þetta er banki í eigu okkar. Það hefði mátt nota þessa peninga í Landsspítalann og fyrir aldraða og öryrkja.Sama má segja um 2 milljarða,sem rïkisstjórnin setur í einhvern fjárfestingarbanka í Asíu.Ísland á ekkert erindi í þann banka. þessir 2 milljarðar hefðu átt að fara til aldraðra og öryrkja

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband