Lífeyrir aldraðra hjá TR verði skattfrjáls.Skattleysismörkin verði hækkuð!

Það er fráleitt að skattleggja lífeyri aldraðra og öryrkja hjá TR.Þessi lífeyrir er alger hungurlús en samt er ríkið að hrifsa hlut af honum til baka í formi skatta.Í Noregi er lífeyrir aldraðra hjá almannatryggingum skattfrjáls. Það á að vera eins hér.Ef ástandið hér er eins gott og ráðamenn segja á að vera auðvelt að afnema skatta af lífeyri aldraðra og öryrkja.

Auk þess þarf að hækka skattleysismörkin myndarlega. Slík hækkun væri mjög góð kjarabót fyrir aldraða,öryrkja og lágtekjufólk.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband