Mánudagur, 30. maí 2016
Þurfa minnst 300.000 krónur á mánuði
- "Einstaklingur,sem á bíl og húsnæði þarf minnst 300.000 kr í mánaðarlaun,þótt öryrki eða gamall sé",segir kona,sem hefur áhuga á mínum skrifum um málefni aldraðra og bregst oft við þeim. Það kemur heim og saman við kröfu eldri borgara um 300 þúsund á mánuði í lífeyri og þetta kemur einng heim og saman við neyslukönnun Hagstofunnar.Ef rikisstjórnin leiðréttir lífeyri vegna kjaragliðnunar krepputímans og vegna kjaragliðnunar síðasta árs fer lifeyrir í 320 þúsund á mánuði.Það er lágmark.
Vissulega er eðlilegt,að eldri borgarar og öryrkjar eigi bíl eins og aðrir borgarar.Það teljast sjálfsögð lífsþægindi í dag og enginn luxus.En jafnvel þó eldri borgari eigi ekki bíl veitir honum ekki af 300 þúsund krónum á mánuði til þess að geta haft sómasamlegt húsnæði og lifað með reisn.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:04 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.