Opið bréf til Sigurðar Inga!

 

 

Sæll Sigurður Ingi Jóhannsson,forsætisráðherra!

Ég þakka þér fyrr ágæta ræðu á þjóðhátiðardaginn,17.júní. Ég hnaut sérstaklega um þau orð þín, að enginn ætti að líða skort á Íslandi og, að menn þyrftu að taka höndum saman um að uppræta skort.Það hljóta að vera hæg heimatökin hjá þér að vinna að þessu máli, þar eð þú ert forsætisráðherra og æðsti embættismaður ríkisins.

Ég vil koma á framfæri við þig nokkrum orðum um þetta mikilvæga mál. Með því að ég hef verið formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík til margra ára,hef ritað mikið um kjör aldraðra,  er ég vel kunnugur því hvernig eldri borgurum tekst að komast af, ef þeir hafa einungis lífeyri almannatrygginga sér til framfærslu. Fjöldi eldri borgara á eftirlaunum hringir reglulega til mín og greinir mér frá afkomu sinni.Margir þeirra búa við skort. Skrifstofa Félags eldri borgara í Reykjavik fær einnig stöðugt kvartanir frá ellilífeyrisþegum, sem komast ekki af , eiga ekki fyrir mat í lok mánaðar, geta ekki leyst út lyfin sín eða eiga ekki fyrir læknisheimsókn. Þetta ástand er að sjálfsögðu óásættanlegt.Þetta er einmitt dæmi um skortinn, sem þú ræddir um í þinni ræðu.

Ríkið ber ábyrgð á því hvað aldraðir, öryrkjar og aðrir fá mikinn lífeyri frá almannatryggingum. Það má því segja, að þú berir ábyrgð á því, ef þessi lífeyrir dugar ekki til framfærslu og veldur skorti. Ég legg til,   að þú gangir strax í málið og leggir til, að ríkisstjórnin hækki lífeyrinn það mikið, að hann dugi til framfærslu, svo unnt verði að uppræta skort hjá  þeim, sem fá þennan lifeyri.

Aldraðir fá í dag 207 þúsund krónur á mánuði eftir skatt frá almannatryggingum , þ.e. einhleypingar, sem hafa eingöngu tekjur frá almannatryggingum.Það liggur fyrir og það þarf ekki að ræða það eða athuga, að ekki er unnt að framfleyta sér á svo lágum lífeyri .Það þarf því ekki að setja það í neina  nefnd eða athugun hvort þetta dugi.Niðurstaðan liggur fyrir. Spurningin er þá sú hvað þarf að hækka þetta mikið svo það dugi til framfærslu? Hagstofan hefur kannað meðaltalsútgjöld einstaklinga og fjölskyldna.Engir skattar eru inni í þeim tölum.Hafa má hliðsjón af þessum tölum.

Mín tillaga er þessi: Lífeyrir aldraðra og öryrkja, sem eingöngu hafa tekjur frá TR, verði  hækkaður um  50 þúsund. kr  á mánuði. Við það mundi lífeyrir aldraðra einhleypinga hækka í 257 þúsund krónur á mánuði eftir skatt; miðað  við engar aðrar tekjur.Lífeyrir öryrkja  hækki jafnmikið og aðrir aldraðir og öryrkjar hækki hlutfallslega.Ég tel, að ríkið hafi auðveldalega efni á þessari leiðréttingu í dag miðað við þær fréttir, sem fluttar hafa verið undanfarið um góða stöðu ríkissjóðs.

Þessi tillaga mín felur í sér algert lágmark. En slík hækkun mundi samt skipta sköpum fyrir aldraða og öryrkja.

Tillögur um endurskoðun almannatrygginga, sem liggja hjá félagsmálaráðherra, gera ekki ráð fyrir neinni hækkun lífeyris aldraðra og öryrkja hjá þeim hópi, sem ég hef hér rætt um. Þess vegna leysa þær ekki málð.

Ég skora á þig Sigurður Ingi að ganga strax í  þetta mál  og leysa það fyrir haustið. Með því mundir þú leiða i ljós, að full meining var í ræðu þinni 17.júní.

Með bestu kveðju

Björgvin Guðmundsson

Viðskiptafræðingur

pistlahöfundur

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll. Varst þú eitthvað á Alþingi áður fyrr og ef svo var hvað gerðirðu þá fyrir aldraða  og öryrkja? Það þarf að hækka lífeyri mun meira en um 50 þús. Nettó þyrfti hann að vera 300 amk þ.e.a.s eftir skatt. Sjálf hef ég 196 nettó plús 10 frá LVR enda unnið sjálfstætt meiri part lífsins. 

Aróra (IP-tala skráð) 20.6.2016 kl. 11:20

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Þar sem þessi umræddi Sigurður Ingi telur hvern sinn gæfu smið mun hann ekkert gera,

 við sem búum ein þurfum lágmark 199.þús. kr hækkun það er staðreynd.

 kv.

Erla Magna Alexandersdóttir, 20.6.2016 kl. 18:58

3 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæl! Ég var í borgarstjórn og beitti mér þar fyrr málefnum aldraðra,einkum byggingu hjúkrunarheimila og byggingu B-álmu Borgarspítalans fyrir aldraðra og langlegusjuklinga.Það er rétt að hækka þarf lífeyri meira en um 50 þús. Ég hef lagt til áður,að lífeyrir fari í 321 þús á manuði eins ig neyslukönnun Hagstofunnar. En í bréfinu til Sigurðar Inga er 50 þús kr. hækkun lágmarksskref.Síðan á lífeyrir að hækka eins og lágmarkslaun.

Bestu kveðjur

Björgvin

Björgvin Guðmundsson, 21.6.2016 kl. 08:08

4 identicon

Hvaða ástæður liggja fyrir því að þú hefur ekki tekið upp umræður um innleiðingu borgaralauna sem myndu tryggja öllum grunn framfærslu og fólk þyrfti ekki að flýja land vegna fátæktar.

Gerdur Palmadóttir (IP-tala skráð) 21.6.2016 kl. 18:44

5 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

 Sæl! Ég er ekki sannfærður um,að borgaralaun séu rétt leið.Ég  óttast,að borgaralaun yrðu ákveðin svo lág,að ekkert gagn væri í þeim. Ákvörðun velferðarráðuneytis um fjárhæðir neysluviðmiðs gefa ekki vonir um há brgaralaun. Á meðan stjórnvöld eru andstæð öldruðum, öryrkjum og lágtekjufólki er þessi lleið ófær.

Með kærri kveðju

Björgvin

Björgvin Guðmundsson, 22.6.2016 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband