Sigurður Ingi hefur fallið á prófinu!

Laun forsætisráðherra: 1490.813 kr á mánuði

Sigurður Ingi forsætisráðherra lýsti því yfir í ræðu 17.júní,að enginn ætti að líða skort á Íslandi.Þetta reyndust innan tóm orð hjá honum.Hann hefur ekkert gert til þess að bæta úr þessu.Sigurður Ingi er varaformaður Framsóknarflokksins.Flokkurnn lofaði kjósendum því fyrir kosningar 2013 að leiðrétta lífeyri aldraðra og öryrkja vegna kjaragliðnunar krepputímans. Hann hefur ekkert gert í þvi heldur.Loforðið hefur verð svikið. Sigurður Ingi hefur því fallið á prófinu.

Sigurður Ingi neitaði öldruðum og öryrkjum um afturvirkar kjarabætur frá 1.mai 2015 við afgreiðslu fjárlaga það ár.Lífeyrir þeirra var og er í kringum 200 þúsund kr á mánuði.Á sama tíma og ríkisstjórn og meirihluta alþingis þótti þetta nóg fyrir aldraða og öryrkja í jólamánuðinum fengu ráðherrar og alþingismenn mikar afturvirkar kauphækkanir,ekki frá 1.mai,nei frá 1.mars!Laun forsætisráðherra hækkuðu þá um rúmar 200 þúsund á mánuði og hann fékk tæpar 2 milljónir í vasann í kaupuppbót rétt fyrir jólin.Ráðherrar,þar á meðal Sigurður Ingi, fengu rúmlega eitt hundrað þúsund króna hækkun á mánuði og tæpa milljón í vasann fyrir jólin.Með alla þessa peninga var ekki von að Sigurður Ingi eða aðrir ráðherrar hefðu skilnng á því fyrir jólin í fyrra,að 200 þúsund á mánuði væri ekki nóg fyrir aldraðra og öryrkja! Enda sagði Sigurður Ingi á alþingi:Það er vont(erfitt) að eiga peninga á Íslandi!Það sagði hann, þegar upp komst um aðild Sigmundar Davíðs að Panamaskjölunum og ljóst var að hann og kona hans áttu mikla peninga í skattaskjólum.

Tveir dagar eru liðnir af sumarþingi. Stjórnarflokkarnir ætla greinilega ekki að efna stóra kosningaloforðið við aldraða og öryrkja ( vegna kjaragliðnunar). Og Sigurður Ingi meinti ekkert með ræðu sinni 17.júni um að enginn ætti að líða skort á Íslandi.Hann gerir ekkert í því máli.Hann féll á prófinu.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Þú verður að fyrirgefa Björgvin en mér finnst Sigurður Ingi hafa staðist prófið með glæsibrag. Nánast fullkominn stjórnmálamaður. Allavega er það þetta sem þjóðin vill og kýs aftur og aftur. Þú verður líka að átta þig á því að það er svo stutt eftir af þinginu að það gefst ekki tími til að standa við loforðin, til handa öldruðum og öryrkjum, vegna þess að hann er svo upptekinn við að afnema gjaldeyrishöftin. Svo að aldraðir og öryrkjar geti keypt nægan gjaldeyri fyrir allar utanlandsferðirnar.

En svona grínlaust þá eru þessir alþingismenn í mínum huga bara þurfalingar á ofurörorkubótum. Svo gerir hann bara eins Halldór gerði forðum þegar flokkurinn var að þurrkast út. Bara að setja "fótósjoppaða" mynd af sér brosandi á nógu mörg strætóskýli og flýgur inná þing og heldur áfram að vera þurfalingur á ofurlaunum.

Þeir kunna þetta í framsókn.

Steindór Sigurðsson, 17.8.2016 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband