4500 eldri borgarar missa grunnlífeyrinn og detta út úr kerfi TR!

Við lagabreytinguna,sem samþykkt var á síðasta degi þingsins missa 4500 eldri borgarar grunnlífeyri sinn og detta út úr kerfi almannatrygginga.Þeir fá ekki krónu þaðan þó þeir séu búnir að greiða skatta alla sína starfsævi og hafi greitt tryggingagjald.Þeir eru taldir hafa of góðan lífeyrissjóð.Það var aðeins tvennt sem núverandi ríkisstjórn  samþykkti á sumarþinginu 2013 fyrir aldraða,að leiðrétta grunnlífeyri,þannig að greiðslur úr lífeyrissjóði mundu ekki skerða hann og að leiðrétta frítekjumark vegna atvinnutekna. Nú afnemur ríkisstjórnin grunnlífeyrinn aftur.Hann er felldur niður og við það detta 4500 eldri borgarar út úr kerfi almannatrygginga.Eldri borgari,sem er í þessari stöðu, hafði samband við mig í gær.Hann sagði,að þau hjónin misstu 80 þúsund brútto við þessa breytingu,50 þúsund eftir skatt. okkur munar um það,sagði hann.

Öryrkjar eru mjög óánægðir með það hvernig ríkisstjórnin fór með þá.Þeim var nánast ítt út úr nýju lögunum um almannatryggingar.Þannig að þessar litlu lagfæringar sem gerðar voru fyrir eldri borgara gilda ekki fyrir öryrkja nema að litlu leyti.Á aðalfundi Öryrkjabandalagsins,sem haldinn var fyrir nokkrum dögum var skorað á nýja ríkisstjórn og nýtt alþingi að lagfæra þeirra kjör og afnema krónu móti krónu skerðinguna ,sem félagsmálaráðherra skellti á þá á lokadögum þingsins.Smáhækkun,sem öryrkjar fengu var byggð á framfærsluuppbót,þannig að ef öryrki vinnur sér inn 20-30 þúsund krónur,lækkar framfærsluuppbótin (lífeyrinn) ,sem því nemur.Óskar Öbi eftir að þessi framfærsluuppbót verði felld niður eða felld inn i nýjan heildarlífeyri eins og gert er hjá öldruðum. 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta með krónu á móti krónu er eignlega rangt. Jú rétt er að TR tekur brúttó þ.e. heildar summuna burt hafirðu fengið 20.þús þá er mínus 20.þús við næstu greiðslu en það gleymist að fólk borgar skatt og gjöld af þessum 20.þús svo nettó hefurðu fengið líklega um 14.þús greitt út svo þú ert í reynd 6000 fátækari. 
P.s. Reikningsmeistarar mega alveg reikna rétta upphæð en ég set þetta bara sem dæmi. 

Tómas V. Albertsson (IP-tala skráð) 21.10.2016 kl. 22:46

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

kæri vin, við munum vinna saman Flokkur fólksins í kærleika og með samkennd alla leið gegn lygurum og sjálfsdýrkandi flokksgæðingum. Núna eða aldrei það er verið að stela af þjóðinni.

Sigurður Haraldsson, 23.10.2016 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband