Verið að brjóta stjórnarskrána á öldruðum og öryrkjum

 Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag: Verið að brjóta stjórnarskrána á öldruðum og öryrkjum.Þar segir svo:

Hagstofan hefur birt rannsókn um það hverja skorti efnisleg gæði.Samkvæmt rannsókninni skortir hóp öryrkja og aldraðra efnisleg gæði og hefur þessi hópur stækkað frá árinu 2013 til 2014.Með  skorti á efnislegum gæðum er m.a átt við eftirfarandi: Hefur ekki efni á að fara í vikulegt frí með fjölskyldunni, hefur ekki efni á kjöti,fiski eða sambærilegri grænmetismáltíð, a.m.k annan hvern dag, hefur ekki efni á heimasíma,farsíma eða sjónvarpi, hefur ekki efni á þvottavél, hefur ekki efni á bíl og ekki heldur á tövubúnaði, hefur ekki efni á að kynda íbúðina nógu vel og hefur lent í vanskilum með húsnæðislán eða önnur lán vegna fjárskorts.Ef um skort á a.mk þremur framangreindum atriðum er að ræða, telst vera skortur á efnislegum gæðum.
Ríkið skammtar nauman lífeyri
Þessi rannsókn er mjög athyglisverð. Hún staðfestir það, sem áður hefur verið vitað, að margir aldraðir og öryrkjar  geta ekki lifað eðlilegu lífi vegna þess, að ríkið skammtar þeim svo nauman lífeyri, að þeir geta ekki framfleytt sér að fullu.Samkvæmt  þessu er ljóst, að ríkið er að brjóta stjôrnarskrána með þessu framferði gegn lífeyrisþegum.Réttur aldraðra og öryrkja til þess að lifa eðlilegu lífi er stjórnarskrárvarinn.Þegar stjórnvöld eru að skera mikið niður greiðslur til aldraðra og öryrkja eins og nú, eru þau að brjóta stjórnarskrána.
Láta lífeyrisþega fá þriðjung af hækkun launþega
Ríkisstjórnin ætlar nú  láta lífeyrisþega fá þriðjung af þeirri hækkun, sem launþegar fá á  nýju samningstímabili.Það er hoggið í sama knérunn og áður. Í stað þess að láta lífeyrisþega fá meira en launþegar fá  til þess að leiðrétta lífeyrinn vel er skorið niður til lífeyrisþega einsog  áður.Lífeyrir einhleypra lífeyrisþega, sem einungis hafa tekjur fra TR, er í dag 225 þúsund krónur fyrir skatt,192 þúsund eftir skatt. Eins hár og húsnæðiskostnaður er í dag er engin leið að lifa eðlilegu,mannsæmandi lífi af þessari hungurlús.Algeng húsaleiga í dag er 150 þúsund krónur á mánuði.Og þó hún sé 10 þúsund krónum lægri  í vissum tilvikum sjá allir, að engin leið er að lifa eðlilegu lífi af því,sem eftir er af lífeyrinum.Þeir, sem eiga sitt húsnæði, þurfa að greiða eitthvað minna í húsnæðiskostnað..En útgjöld eru samt mikil í afborganir og vexti lána,fasteignagjöld,rafmagn og hita,hússjóð o.fl. Flestir úr þessum hópi öryrkja og aldraða flokkast undir þá, sem skortir efnisleg gæði.
Lífeyrisþegar fái það sama og launþegar
Rïkisstjórnin hefur nú tækifæri til þess að laga ástandið hjá lífeyrisþegum og hætta að brjóta á þeim stjórnarskrárvarinn rétt. Hún getur látið lífeyrisþega fá sömu hækkun og láglaunafólk fèkk sl vor, þ.e. 31þúsund króna hækkun á mánuði frá 1.mai. Lágmarkstrygging hækkaði þá um 31 þúsund á mánuði. 28 % hækkun verður  á  3 árum.Lífeyrir á að  hækka  í 300 þúsund á mánuði á  þessum tíma eins og lágmarkslaun.
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
www.gudmundsson.net
Birt í Fréttablaðinu 29.júlí 2015

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband