Alþingi hækki lífeyri aldraðra og öryrkja strax jafnmikið og lágmarkslaun

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið i dag um kjör aldraðra og öryrkja.Þar segir svo: 

Ég skora á alþingi að hækka strax lífeyri aldraðra og öryrkja jafnmikið og lágmarkslaun hækkuðu 1.mai sl eða um 31 þúsund krónur á mánuði. Hækkunin gildi frá 1.mai þannig að lífeyrisþegar fái 5 mánaða hækkun með septemberhækkun, þegar hækkunin taki gildi eða 155 þúsund krónur.Alþingi samþykki þessa hækkun strax og það kemur saman 8.september.Allir flokkar á alþingi taki höndum saman  um þessa sjálfsögðu leiðréttingu á kjörum aldraðra og öryrkja.Náist þverpólitísk samstaða um þessa  leiðréttingu á kjörum aldraðra og öryrkja er unnt að afgreiða frumvarp um hana á einum degi.Þjóðin öll mundi standa með alþingi í þessu máli og álit alþingis mundi stóraukast.


     Algert lágmark fyrir lífeyrisþega

 

Einhleypir ellilífeyrisþegar, sem einungis hafa tekjur frá almannatryggingum,hafa í dag 225 þúsund krónur á mánuð frá TRi fyrir skatt og  192 þúsund krónur á mánuði  eftir skatt.Við leiðrèttingu alþingis mundi þessi upphæð hækka í 256 þúsund krónur á mánuði  fyrir skatt og 211 þúsund eftir skatt.Það eru öll ósköpin.Í rauninni er þetta algert lágmark til þess að lifa af fyrir einstakling.Ef húsnæðiskostnaður er hár dugar þetta ekki og það þarf til viðbótar að koma aðstoð frá sveitarfélagi.Alþingi þyrfti einnig  að samþykkja, að næstu 3 árin fengju aldraðir og öryrkjar  sömu hækkun og láglaunafólk, þ.e. hækkun í upp í 300 þúsund krónur á mánuði eins og láglaunafólk á að fá.


      Eiga rétt á þessu samkvæmt stjórnarskránni

 

Við erum hér að tala um einhleypa lífeyrisþega en síðan ættu aðrir aldraðir og öryrkjar að hækka tilsvarandi samkvæmt  útreikningum Tryggingastofnunar.

Stjórnvöld, alþingi og ríkisstjórn, hafa skert kjör aldraðra og öryrkja  á miðju ári. Á sama hátt getur alþingi hvenær sem er ársins hækkað lífeyri aldraðra og öryrkja.Það skiptir engu máli þó ekki sé lokið afgreiðslu nýrra fjárlaga.Stjórnarskráin er æðri fjárlögum og öllum öðrum lögum. Og samkvæmt 76.grein  stjórnarskrárinnar á ríkið að aðstoða þá, sem þurfa aðstoð vegna elli og örorku.Sannanlega þurfa þeir aldraðir og öryrkjar, sem verst eru staddir aðstoð.Það er engin spurning, að þeir aldraðir og öryrkjar, sem einungis hafa tekjur frá TR, eiga  rétt á aðstoð samkvæmt stjórnarskránni. Þeir hefðu hins vegar átt að fá hana miklu fyrr.

 

   Best að miða við lágmarkslaun


 Ï tengslum við þetta mál  ætti alþingi ef til vill einnig að samþykkja á ný eldri viðmiðun fyrir breytingar á lífeyri aldraðra og öryrkja, þ.e  miða ætti við breytingar á lágmarkslaunum verkafólks, þegar lífeyri væri breytt. Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra lét breyta þessari viðmiðun þannig, að  miða við launaþróun í stað lágmarkslauna en lífeyrir þó aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs. Hann lýsti því yfir í tengslum við þessa breytingu, að hún yrði hagstæðari lífeyrisþegum en eldra ákvæði. Það hafa seinni tíma stjórnmálamenn ekki viljað viðurkenna.Þeir hafa verið að reikna út  minni hækkun fyrir lífeyrisþega en láglaunamenn hafa fengið.Því er einfaldast að færa orðalagið til fyrra horfs svo ekki þurfi að deila um viðmiðunina. 

 

Alþingi sameinist um afgreiðslu málsins

 

Það er ekki oft, sem alþingi sameinast um afgreiðslu mála.Oftast fær almenningur þá mynd af alþingi, að þar sé hver höndin uppi á móti annarri.En nú gefst alþingi tækifæri til þess að sameinast um mikið sanngirnis-og  réttlætismál og skapa jákvæðari mynd af störfum þingsins.Það yrði gerbreyting á viðhorfi til alþingis.

 

Björgvin Guðmundsson

Formaður kjaranefndar

Félags eldri borgara í Reykjavík

og nágrenni..

www.gudmundsson.net

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Björgvin. Mér finnst alveg sjálfsagt að láta reyna á dómstóla í þessu máli og vita hvað kemur út úr því. Kv Guðmundur.....

Guðmundur. Halldórsson (IP-tala skráð) 29.8.2015 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband