Lífeyrir TR dugar ekki fyrir framfærslu!

 

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag um kjör aldraðra. Þar segir svo: 

Eldri borgari , sem er í sambúð eða hjónabandi, hefur 185 þúsund krónur á mánuði eftir skatt  frá almannatryggingum, ef hann hefur engar aðrar tekjur.

Einhleypur eldri borgari hefur 207 þúsund krónur á mánuði  eftir skatt frá almannatryggingum, miðað við sömu forsendur að því, er tekjur varðar. Þetta er það, sem ríkisstjórnin skammtar eldri borgurum. Af þessum upphæðum eiga þessir eldri borgarar að greiða allan sinn kostnað og þar á meðal húsnæðiskostnað. Leiga  getur verið 150 þúsund krónur á mánuði og þá er lítið eftir fyrir öllum öðrum kostnaði. Það eru 57 þúsund krónur eftir hjá einhleypingi. Hann á m.ö.o að greiða fyrir  rafmagn og hita,mat, fatnað,samgöngur,sima,tölvukostnað,lyf,lækniskostnað, gjafir o.fl af þessum 57 þús kr.

Ljóst er, að ekki er unnt að reka bíl af svo litlum tekjum. Og hætt við, að eldri borgarinn verði að sleppa einhverjum fleiri  útgjaldaliðum.

 

Mikil skerðing vegna lífeyrissjóðs

 

Ef einhleypur ellilífeyrisþegi hefur 50 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði heldur hann 18 þúsund kr á mánuði af þeirri upphæð eða ígildi þess. Tryggingastofnun skerðir lífeyri þessa eldri borgara um 32 þúsund á mánuði, einungis vegna þess að hann greiddi í lífeyrissjóð.Þessa skerðingu verður að stöðva. Það á auðvitað ekki að refsa þessum eldri borgara fyrir að hafa greitt í lífeyrissjóð. Eldri borgarinn  á að  halda lífeyri sínum hjá Tryggingastofnun óskertum. Hann var einmitt að greiða í lífeyrissjóð til þess að njóta þess að fullu, þegar hann væri kominn á eftirlaunaaldur.

Ef einhleypur eldri borgari hefur eitt hundrað þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði heldur hann helmingi  þeirrar fjárhæðar eða ígildi .TR tekur helminginn.Það er svipuð skerðing og í fyrra tilvikinu.Ég segi það sama og

áður: Það verður að stöðva þessa skerðingu.Það verður að afnema hana. Þetta er siðlaus skerðing. 

 

Hvað hækkaði lífeyrir   mikið 2016?

 

Nú hefur "methækkun"allra tíma komið til framkvæmda! Lífeyrir einhleypra ellilífeyrisþega hækkaði um 15 þúsund krónur eftir skatt.Lífeyrir þeirra eldri borgara,sem eru í sambúð hækkaði um 13 þúsund krónur.Tölurnar í þessari grein eru eftir hækkun um áramót.Hækkunin breytir engu.Þetta voru í kringum 200 þúsund krónur  á mánuði áður og þetta eru áfram í kringum 200 þúsund á mánuði. 300 þúsund á mánuði eða rúmlega það er lágmark.-Lífeyrisþegar fengu miklu meiri hækkun um áramótin 2008/2009 en nú.Almannatryggingar voru einnig efldar miklu meira 1946 við stofnun trygginganna (breytingu frá alþýðutryggingum) og 1960, þegar viðreisnarstjórnin tók við.

 

        30% hækkun yrði viðunandi um skeið

 

Ef lífeyrir aldraðra og öryrkja verður hækkaður um 30% vegna kjaragliðnunar hækkar lífeyrir um 73800 kr á mánuði og færi í tæp 320 þúsund krónur á mánuði. Það er sama tala og kemur út í neyslukönnun Hagstofunnar.Yrði viðunandi um skeið.

 

Björgvin Guðmundsson

Formaður kjaranefndar

Félags eldri borgara í

Reykjavík og nágrenni

 

 

 

 

6

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband