Ríkisstjórnin ætlar að skila hluta af........... til baka!

 

 

Þegar stjórn Alþýðuflokks,Sjálfstæðisflokks og Sósalistaflokks kom almannatryggingunum á fót 1946 fór það ekki á milli mála fyrir hverja almannatryggingarnir áttu að vera. Tekið var skýrt fra, að almannatryggingarnar ættu að vera fyrir alla án tillits til efnahags og stéttar. Þær áttu ekki að vera fátækraframfærsla. Þegar lífeyrissjóðirnir voru  stofnaðir kom það skýrt fram, að þeir áttu að vera viðbót við lífeyri almannatrygginga. Það kom ekki til greina, að lífeyrissjóðirnir mundu skerða almannatryggingar eins og gerist í dag. Ef það hefði legið fyrir,  þá hefðu launamenn á Íslandi ekki greitt i lífeyrissjóðina.

Eins og eignaupptaka

Ég hef sagt það áður, að skerðing lífeyris vegna greiðslna úr lífeyrissjóði er eins og eignaaupptaka.Áhrifin af þessari gífurlegu skerðingu ríkisins á lífeyri almannatrygginga  eru nákvæmlega eins og  ríkið væri að gera upptækan hluta lífeyris eldri borgara í lífeyrissjóðum. Það er líkast því sem rikið sé að taka hluta lífeyrisins ófrjálsri hendi.Það eru til ljótari orð í íslenskri tungu yfir slikt athæfi.

Ætla að skila hluta  þess,sem tekið er!

En þegar ríkið er búið að leika þann leik árum saman að taka hluta lífeyris eldri borgara reglulega traustataki, kemur ríkisstjórnin fram nú og segist ætla að skila hluta af þessu til baka eða réttara sagt ætla að hætta að taka svona mikið af okkur „ófrjálsri hendi“.Og þá eigum við eldri borgarar að falla fram og þakka fyrir, að við fáum að halda örlitlu meira af þvi, sem við eigum. Já, þakka skyldi þeim.

Hækkun lífeyris er forangsverkefni

Verkefni ríkisstjórnarinnar númer eitt er að hafa lífeyri aldraðra og öryrkja það háan,að hann dugi til sómasamlegrar framfærslu.Ríkisstjórnin svíkst um það. Hún hækkar ekki lífeyrinn um eina krónu.Hún leggur fram tillögur um óbreyttan lífeyri.Þó vita allir, að það er ekki unnt að lifa af honum.En verkefni ríkisstjórnarinnar númer tvö er að afnema tekjutengingarnar, afnema skerðingar með öllu. Það á ekki að draga úr þeim; það á að afmema þær. Bjarni Benediktsson,formaður Sjálfstæðisflokksins lofaði eldri borgurum því fyrir síðustu kosningar,  að svo yrði gert.Við það á að standa

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

björgvin.

 það er búið að tala nóg við þessa herra sem eru að brjóta mannrettindi okkar.

 FJÖLDAMÁLSÓKN GEGN RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS ER ÞAÐ EINA SEM ÞEIR SKILJA- VIÐ GETUM EKKI FARIÐ Í VERKFALL.

 ÆTLAR ÞÚ AÐ GANGAST FYRIR UNDIRSKRIFTSÖRNUN- EG ER TIL OG GERI ÞAÐ EF ENGINN ANNAR FER FYRIR ÞESSU,

 ÞEIR SVARA EKKI- ÞEIR HLUSTA EKKI- ÞEIR HUNDSA OKKUR.KV.

Erla Magna Alexandersdóttir, 2.7.2016 kl. 17:55

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæl  Erla Magna! Mér líst vel á,að þú  setjir í gang undirskriftasöfnun.

Kær kveðja

Björgvin

Björgvin Guðmundsson, 2.7.2016 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband