Samfylkingin hefur umboð

Í kosningastefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir þingkosningar 2007 sagði svo um Evrópumál:

  • Að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu og hefji aðildarviðræður.
  • Unnið verði að víðtækri samstöðu um samningsmarkmið.
  • Að niðurstöður samninga verði bornar undir þjóðaratkvæði.
  • Samkvæmt þessu er það misskilningur hjá Ármanni Kr. Ólafssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins,að Samfylkingin hafi ekki umboð til þess að sækja um aðild að ESB.Samfylkingin hefur umboð en vill að víðtæk samstaða náist um samningsmarkmið. Ef Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir aðildarviðræður við ESB mundu stjórnarflokkarnir vinna sameiginlega að samningsmarkmiðum.Að aðildarviðræðum loknum mundi niðurstaða þeirra verða lögð undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.

    Það hefur engin flokkur eins skýrt umboð til samningaviðræðna við ESB og Samfylkingin. Það var samþykkt í póstkoningu meðal allra flokksmanna að sækja um aðild að ESB.

    Eitt aðalatriði samningsmarkmiða er að þjóðin haldi fullum yfirráðum yfir náttúruauðlindum sínum.

     

    Björgvin Guðmundsson


21.434 útlendingar hér á landi

Þann 1. desember voru 21.434 erlendir ríkisborgarar skráðir hér á landi. Þeim fjölgaði um 2.871 á árinu. Mikil fjölgun var framan af ári en undir lok þess fækkaði erlendum ríkisborgurum. Útlendingar eru nú 6,8% landsmanna, en þetta hlutfall var 3,6% fyrir þremur árum.

Langflestir erlendir ríkisborgarar koma frá Póllandi eða 8.488. Næstfjölmennastir eru Litháar, en þeir eru 1.322. 984 Þjóðverjar voru skráðir hér á landi 1. des. s. og 966 Danir.

Í fréttatilkynningu frá Hagstofu Íslands segir að framan af árinu hafi  mánaðarlegur fjöldi aðfluttra einstaklinga verið fleiri en nokkurt annað ár. Þetta eigi þó fyrst og fremst við um karla. Frá febrúar til maí á þessu ári fluttust mánaðarlega um 600 fleiri karlar en konur til landsins. Talsvert dró úr flutningum til landsins um mitt árið og í júlí, ágúst og í nóvember fluttust fleiri karlar frá landinu en til þess. Brottflutningurinn var mestur í nóvember en þann mánuð voru brottfluttir karlar 645 fleiri en aðfluttir.(mbl.is)

Af útlendingunum ery  8.488 Pólverjar.Framan af ári komu mjög margir útlendingar  en undir lok ársins fóru margir þeirra úr landi.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Útlendingar 6,8% landsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saga af forseta

Bókin Saga af forseta er áhugaverð bók.Bókin er ef til vill full löng en Guðjón Friðriksson,höfundur bókarinnar, er þekktur fyrir að skrifa langan og ítarlegan texta svo það kemur ekki óvart þegar forsetinn á í hlut.Kaflar um samskipti forsetans og Davíðs Oddssonar eru sérlega áhugaverðir.Fjallað er ítarlega um Davíð og Fréttablaðið,Baugsmálið og fjölmiðlamálið: Eftir að ríkislögreglustjóri hafði gert innrás í aðalstöðvar Baugs og tekið bókhald fyrirtækisins  sagði Davíð við ýmsa og þar á meðal forsetann,að forsprakkar Baugs yrðu komnir í tugthúsið  " næsta haust". Davíð trúði því ekki,að forsetinn mundi  neita að staðfesta fjölmiðlalögin og því var það,að þegar forsetinn hringdi  til Davíðs til  þess að tjá  honum tíðindin  þá varð hann orðlaus.

Ég er enn að lesa bókin en mun fjalla nánar um bókina hér síðar.

 

Björgvin Guðmundsson


Gjaldtaka í sjúkrahúsum er slæmt skref

Fólk víðs vegar að úr heiminum, sem alltaf hefur langað að koma til Íslands en ekki haft efni á því sér nú fram á möguleikann á að láta þann draum sinn rætast, samkvæmt því sem fram kemur í grein í bandaríska blaðinu The Washinton Post.

Greinin ber fyrirsögnina: Ísland á hálfvirði fyrir þá sem leita tilboða. Þar segir að landið sé nú kallað Halfpriceland eftir að hrun bankanna og gengisfall krónunnar gerðu það að verkum að verðlag hér á landi, sem hafi verið stjarnfræðilegt, varð jarðbundið. Þá segir að erlendir ferðamenn séu þegar farnir að koma í helgarferðir til Reykjavíkur, sem áður hafi verið svo dýr að New York og London hafi virst sanngjarnar í samanburðinum.

Haft er eftir forsvarsmönnum Icelandair að bókun á ferðum til Íslands hafi fjölgað um 90% frá síðasta ári á tímabilinu desember til mars og þar af hafi bókunum frá Bretlandi fjölgað um 48%. Þetta sé sérlega athyglisvert í ljósi þess að um sé að ræða þann tíma sem fram til þessa hafi verið minnsti ferðamannatíminn á Íslandi. Þá segir að sú breyting hafi orðið á að ferðamenn komi nú fremur til Íslands til að versla en upplifa náttúruna.

Haft er eftir Ingólfi Haraldssyni hótelstjóra á Hilton Reykjavik Nordica Hotel, að  nokkuð sé um að gestir, sérstaklega frá Bretlandi, hringi áður en þeir komi, og panti tíma í skartgripaverslun hótelsins, þar sem seldir séu sérhannaðir skartgripir. Slíkt hafi hann aldrei upplifað fyrr.  

„Ég hefði að öllu jöfnu komið þegar ég væri orðinn eldri og ætti meiri peninga en nú er það svo ódýrt,” segir ferðamaðurinn Andonis Marden, sem er 19 ára nemandi við Boston Northeastern Universityí Bandaríkjunum. Marden greip tækifærið er sá tilboð á netinu á ferðum til Íslands um bandarísku þakkargjörðarhelgina.(mbl.is)

Ég er algerlega andvígur gjaldtöku í sjúkrahúsum.Það er margbúið að lýsa því yfir,að sjúkrahúsvist eigi að vera ókeypis

 og við það á að standa.Þetta er sáralitil upphæð í ríkiskassann en mikið fyrir fátæka að greiða,þ..e. 4000 kr. Það þarf að afnema þessa gjaldtöku.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Fara til baka 


mbl.is Standa undir gjaldtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan er ekki komin

Kaupmenn segja,að jólaverslunin hafi verið svipuð og í fyrra,ef til vill örlítið minni.Það bendir til þess,að kreppan sé ekki komin enn.Auk þess hefur fólk lagt kapp á að  halda jól með svipuðu sniði og áður. Það vill segja,að fólk hefur dregið fram sparifé sitt,ef það hefur verið til,þar eð kaupmenn segja,að meira hafi verið greitt með reiðufé en áður og  síðan hafa aðrir greitt með greiðslukortum  og treysta á guð og lukkuna á nýju ári. Auðvitað er gott ef unnt er að gleðja börnin um jólin.Jólin eru hátíð barnanna.En ekki er nauðsynlegt að gefa  dýrar gjafir til þess að ná því markmiði og vel mætti draga úr því að gefa dýrar gjafir á  jólum. Hjá mörgum var gjafafarganið komið út í öfgar. Þær uppsagnir starfsmanna,sem áttu sér stað í desember og nóvember eru ekki allar komnar til framkvæmda,Margir eru enn að vinna á uppsagnarfresti. Þær koma til framkvæmda eftir áramót og þá dynja yfir miklar nýjar uppsagnir og gjaldþrot fyrirtækja. Þá kemur kreppan.

 

Björgvin Guðmundsson


Ódýrt fyrir erlenda ferðamenn að koma til Íslands

Fólk víðs vegar að úr heiminum, sem alltaf hefur langað að koma til Íslands en ekki haft efni á því sér nú fram á möguleikann á að láta þann draum sinn rætast, samkvæmt því sem fram kemur í grein í bandaríska blaðinu The Washinton Post.

Greinin ber fyrirsögnina: Ísland á hálfvirði fyrir þá sem leita tilboða. Þar segir að landið sé nú kallað Halfpriceland eftir að hrun bankanna og gengisfall krónunnar gerðu það að verkum að verðlag hér á landi, sem hafi verið stjarnfræðilegt, varð jarðbundið. Þá segir að erlendir ferðamenn séu þegar farnir að koma í helgarferðir til Reykjavíkur, sem áður hafi verið svo dýr að New York og London hafi virst sanngjarnar í samanburðinum.

Haft er eftir forsvarsmönnum Icelandair að bókun á ferðum til Íslands hafi fjölgað um 90% frá síðasta ári á tímabilinu desember til mars og þar af hafi bókunum frá Bretlandi fjölgað um 48%. Þetta sé sérlega athyglisvert í ljósi þess að um sé að ræða þann tíma sem fram til þessa hafi verið minnsti ferðamannatíminn á Íslandi. Þá segir að sú breyting hafi orðið á að ferðamenn komi nú fremur til Íslands til að versla en upplifa náttúruna.

Haft er eftir Ingólfi Haraldssyni hótelstjóra á Hilton Reykjavik Nordica Hotel, að  nokkuð sé um að gestir, sérstaklega frá Bretlandi, hringi áður en þeir komi, og panti tíma í skartgripaverslun hótelsins, þar sem seldir séu sérhannaðir skartgripir. Slíkt hafi hann aldrei upplifað fyrr.  

„Ég hefði að öllu jöfnu komið þegar ég væri orðinn eldri og ætti meiri peninga en nú er það svo ódýrt,” segir ferðamaðurinn Andonis Marden, sem er 19 ára nemandi við Boston Northeastern Universityí Bandaríkjunum. Marden greip tækifærið er sá tilboð á netinu á ferðum til Íslands um bandarísku þakkargjörðarhelgina.(mbl.is)

Þetta er gott fyrir íslenskan ferðamannaiðnað. Eins og ástatt er nú þarf að efla allar  atvinnugreinar og þar á meðal ferðaiðnaðinn. Fall krónunnar hefur  skaðað íslenska neytendur en um leið hjálpar það útflutningsiðnaði og ferðaiðnaði.

 

Björgvin Guðmundssoin

Fara til baka 


mbl.is Ísland á hálfvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupmáttur eins og fyrir 4 árum

Kaupmáttur launa er núna svipaður og hann var í árslok 2004. Kaupmátturinn hefur lækkað mikið undanfarna mánuði. Ástæðan er fyrst og fremst mikil verðbólga, en hún mælist nú 18%.

Sé miðað við 12 mánaða breytingu jókst kaupmáttur stöðugt frá maí 2000 til febrúar á þessu ári. Í janúar sl. var vísitala kaupmáttar komin upp í 120,2 stig. Síðan hefur vísitalan lækkað og í nóvember tók hún stökk niður á við og fór í 109,9 stig. Svo lágt hefur vísitalan ekki farið síðan í desember 2004.

Flest bendir til að kaupmáttur eigi eftir að lækka enn frekar á næsta ári. Verðbólga er enn mikil, en laun standa í stað eða lækka. (mbl.is)

Það er fyrst og fremst vegna mikillar verðbólgu,sem kaupomátturinn hefur fallið. Hann var byrjaður að falla mikið áður en bankahrunið varð. Gengið byrjaði að hrapa í mars og hefur gert það allt árið og er enn.Það er tvennt sem er lífsnauðsaynlegt nú,það er að lækka verðbólguna og minnka atvinnuleysið. Að þessu verður að vinna af krafti.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Svipaður kaupmáttur og í árslok 2004
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auður Capital og Björk vekja athygli í New York

Fagfjárfestasjóðurinn BJÖRK, sameiginlegur fjárfestingarsjóður Bjarkar Guðmundsdóttur og Auðar Capital, hefur vakið athygli víða um heim. Meðal annars hefur bandaríska stórblaðið New York Times birt frétt um þetta samstarf.

Athygli blaðsins er greinilega ekki vakin af því einu að Björk tekur þátt í fjármálafyrirtæki, heldur því, hvers kyns fjármálafyrirtæki um er að ræða og hver markmið þess eru. Blaðið vekur sérstaklega a athygli á að umhverfisverndarsjónarmið séu ráðandi, auk þess sem fjárfestasjóðurinn leggi sérstaka áherslu á fyrirtæki þar sem konur séu ráðandi í hópi eigenda eða viðskiptavina.

Vísað er á heimasíðu Auðar Capital, þar sem segir að Fagfjárfestasjóðurinn BJÖRK sé hugsaður sem farvegur fyrir fjárfesta sem hafi áhuga á að beina fé í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og taka þannig virkan þátt í uppbyggingu á Íslandi um leið og þeir ávaxta fé sitt. Fjárfest verði í fyrirtækjum sem leysi úr læðingi verðmæti sem byggi á sérstöðu Íslands og séu sjálfbær, það er standi fjárhagslega undir sér, stundi samfélagslega ábyrga viðskiptahætti og séu umhverfisvæn. Sérstakur áhugi sé á fjárfestingum sem nýti menntun Íslendinga og menningu og búi yfir nýrri tækni og/eða nýrri nálgun.

 

  New York Times vekur athygli á markmiðum Auðar Capital, sem séu ekki einungis að leita fjárhagslegs ávinnings í viðskiptum, heldur einnig að veita viðskiptavinum sínum aðgang að höfuðstól þekkingar og tilfinninga. Nýjasti fjárfestirinn í hópnum sé Björk og hún bæti um betur með markmiðum um umhverfisvernd og uppbyggingu Íslands með margbreytileika og fjölbreytni í nýsköpun að leiðarljósi.(ruv.is)

Ljóst er,að Björk vekur athygli enda hefur frægð hennar sem söngkonu farið víða. En markmið Auðar Capital vekja einnig mikla athygli.

 

Björgvin Guðmundsson

 


Flýtt hækkun atvinnuleysisbóta

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að flýta hækkun atvinnuleysisbóta,sem koma átti til framkvæmda 1.mars n.k. Kemur hækkunin í staðinn til framkvæmda 1.janúar.Þetta er fagaðarefni. Atvinnuleysi hefur aukist mikið undanfarið og er nú komið í tæp 10 þús. manns. Þetta mun aukast og dynja á okkur með fullum þunga á nýju ári.
Björgvin Guðmundsson

Mikil bókajól

Það voru mikil bókajól hjá mér að þessu sinni eins og oft áður. Ég fékk í jólagjöf 3 eintök af Saga af forseta og við hjónin fengum 2 bækur  af Í sól og skugga Bryndísar Schram.Svo menn hafa vilja vera vissir um að við gætum lesið nóg um Ólaf Ragnar forseta og Bryndísi.Annars eru jólin með hefðbundnu sniði hjá  mér og minni fjölskyldu. Stórfjöldskyldan kemur alltaf saman á jóladag hjá einhverjum af sonum mínum og að þessu sinni verður það hjá Þóri,syni mínum.Ég þakka góðar jólaóskir sem ég hefi fengið frá bloggvinum mínum og öðrum lesendum.
Björgvin Guðmundsson

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband