Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Ætlar rikisstjórnin að lækka skatta?
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á Viðskiptaþingi í dag að ríkisstjórnin væri reiðubúin til að greiða fyrir kjarasamningum á almennum markaði. Vísaði Geir í því sambandi sérstaklega til þess sem segir í stefnuyfirlýsingu hennar um lækkun á sköttum einstaklinga og fyrirtækja.
Það ber að fagna þessum ummælum forsætisráðherra. En það dugar ekki að láta orð falla. Það verður að framkvæma. Og þetta verður að gerast fljótt. Það þarf að lækka skatta fljótt,helst á þann hátt að hækka skattleysismörkin verulega.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Lækkun skatta tengd samningum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Viðskiptaráð vill losna við íbúðalánasjóð
Meðan Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti til að slá á verðbólgu heldur hið opinbera húsnæðisvöxtum lágum með niðurgreiðslu almennra húsnæðislána í gegnum Íbúðalánasjóð. Þetta jafngildir því að stíga á bremsu og bensíngjöf á sama tíma. Þessi vinnubrögð hins opinbera hafa án nokkurs vafa átt stóran þátt í að spilla fyrir virkni peningastefnunnar og leitt til óhóflegrar hækkunar stýrivaxta. Þetta skaðar sérstaklega þá sem síst skyldi, hópa samfélagsins sem ekki geta varið sig fyrir háum skammtímavöxtum," sagði Erlendur Hjaltason á Viðskiptaþingi í dag.
Þessi ummæli formanns viðskiptaráðs koma ekki á óvart. Bankarnir og helstu viðskiptaaðilar hafa lengi viljað losna við Íbúðalánasjóð til þess að bankarnir geti hækkað' vextina að vild og okrað á húsbyggjendum. Það er rangt hjá Erlendi,að ríkið greiði niður vexti íbúðalánasjóðs. Það var gert á meðan verkamannabústaðakerfið var við líði en ekki nú. Ibúðalánasjóður hefur haldið vöxtum niðri og ef hann verður lagður niður munu íbúðavextir bankanna rjúka upp úr öllu valdi.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Íbúðalánasjóður mein í íslensku hagkerfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Lækka verður álögur á bensíni
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda sendir fjármála- og forsætisráðherra erindi í dag þar sem lagt er til að stjórnvöld lækki skattaálögur á eldsneyti. Segist hann telja að lækkun eldsneytisverðs geti orðið talsverð kjarabót.
Bensínverð á Íslandi er eftir síðustu hækkun orðið það hæsta sem verið hefur hér á landi.Það er vissulega orðin full ástæða til þess að stjórnvöld lækki þær miklu álögur,sem eru á bensíni.Þær eru óeðlilega miklar.Auk þess má vekja athygli á því,að olíufélögin eru alltaf fljót til að hækka bensín ef gengið lækkar en ekki eins fljót til ef gengið hækkar. Verðlagning olíufélaganna er oft mjög óeðlileg.Er full ástæða fyrir samkeppniseftirlitið að fara ofan í þá verðlagningu og ef hún er ekki eðlileg þá ætti að setja verðlag á bensíni og oíuvörum undir verðlagsákvæði. Óbreytt ástand gengur ekki lengur.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Þrýsta á lækkun eldsneytis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Matvælaverð hækkar stöðugt hér
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, birtir á vefsíðu samtakanna hugleiðingar sínar um verðhækkanir. Birgjar innlendra sem innfluttra matvara hafa flestir hækkað verð á vörum sínum. Umræðan hér er sú sama og í nágrannalöndum okkar, matvöruverð snarhækkar, bara miklu meira hér á landi. Hver skyldi ástæðan vera, er einhver maðkur í mysunni?
Það er rík ástæða til að hvetja bæði birgja og smásala að reyna að mæta óhjákvæmilegum hækkunum með hagræðingu eins og þeir best geta. Það er undir engum kringumstæðum hægt að sætta sig við að þessir aðilar nýti sér verðhækkunarskriðuna til að hækka álagningu sína í krónum
Þetta eru uggvænlegar fréttir. Nýlega var skýrt frá því,að matvælaverð hér væri 64% hærra en í löndum ESB.Svo koma nú fréttir um að matvælaverð fari ört hækkandi. Undanfarin misseri hefur gengi krónunnar verið mjög hátt. Við hækkun krónunnar átti verð innfluttra matvæla að lækka en það gerðist ekki. Nú lækkar krónan og af þeim sökum og öðrum hækkar matvælaverð nú stöðugt. Innflytjendur eru fljótari að hækka en lækka. Það þarf róttækar ráðstafanir til þess að ná matvælaverði hér niður.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Matvöruverð hækkar stöðugt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Lækka þarf skatta
Samfylkingin boðaði það í síðustu þingkosningum,að hún vildi lækka skatta. Sérstaka áherslu lagði hún á hækkun skattleysismarka,sem ekki hefðu fylgt launavísitölu frá 1988. Í stjórnarsáttmálanum segir ,að lækka eigi skatta fyrirtækja og einstaklinga en ekkert er sagt hvenær.
Nauðsynlegt er,að skattar almennings lækki sem fyrst. Skattleysismörkin eru nú 95 þúsund krónur á mánuði. En ef þau hefðu fylgt launavísitölu frá 1988 ættu þau að vera 150 þúsund krón ur í dag.Félag eldri borgara í Rvk. vill ,að þau verði hækkuð í 150 þúsund á mánuði. Það yrði mikil kjarabót fyrir eldri borgara,öryrkja og allt láglaunafólk. Væntanlega leiðréttir ríkisstjórnin skattleysismörkin á þennan hátt. Það stendur í stjórnarsáttmálanum að jafna eigi kjörin í landinu. Þetta er besta leiðin til þess.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Vill Sjálfstæðisflokkurinn fórna Vilhjálmi?
Allt bendir nú til þess,að herráð Sjálfstæðisflokksins
hafi ákveðið að fórna Vilhjálmi Þ.Vilhjálmssyni.Allt frá því,að flokkurinn myndaði meirihluta með Ólafi Magnússyni,sem kostaði flokkinn borgarstjórastólinn,
hefur flokkurinn verið í miklum kröggum.Reykvíkingar fordæmdu það strax,að íhaldið skyldi leggjast svo lágt að kaupa Ólaf með borgarstjórastólnum. Allir borgarfulltrúar flokksins stóðu að því ráðslagi og formaður Sjálfstæðisflokksins lagði blessun sína yfir það. Skoðanakannanir sýndu fylgi Sjálfstæðisflokksins í lágmarki eftir þessi makalausu vinnubrögð.Nú voru góð ráð dýr. Þá barst herráðinu sú himnasending,að Vilhjálmur mismælti sig í kastljósþætti. Hann sagði borgarlögmaður í staðinn fyrir fyrrverandi borgarlögmaður.Ekki mjög alvarlegt en þetta dugði herráðinu. Vilhjálmur var strax úthrópaður,einkum af Morgunblaðinu og vissum sjálfstæðismönnum. Einhvern tímann hefðu mismæli sem þessi ekki þótt alvarleg. En nú dugðu þau til þess að hamast á Vilhjálmi. Honum var umsvifalaust kennt um slæma stöðu flokksins enda þótt fyrir lægi að staðan var slæm þar eð flokkurinn beitti óvönduðum vinnubrögðum við það að fá Ólaf til fylgilags við sig. Nei, herráðið telur,að það eina sem geti bjargað Sjálfstæðisflokknum í Rvk. nú sé að fórna Vilhjálmi og láta Hönnu Birnu eða Gísla Martein taka við. En dugar það?
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Kjarasamningar á lokastigi
Samningamenn aðila vinnumarkaðarins ætla í dag að reikna út kostnað við tillögur sem landssambönd ASÍ lögðu fram á fundi með Samtökum atvinnulífsins í gærkvöldi. Vonast er eftir að samkomulag takist um nýja kjarasamninga um eða eftir helgi á grundvelli þeirra tillagna sem nú liggja fyrir.
Guðmundur Gunnarsson sagði að yfirstandandi sólarhringur gæti ráðið úrslitum um framhaldið. Ef þessi tilraun skilaði ekki árangri færu blokkirnar innan ASÍ líklega hver í sína átt í lokafasa kjaraviðræðnanna; Starfsgreinasambandið í eina, iðnaðarmenn í aðra og verslunarmenn í þá þriðju. Guðmundur sagði að SA mundi fara yfir hugmyndirnar sem forysta ASÍ kynnti í gær og svara þeim í dag.
Þau samningsdrög sem nú liggja fyrir gera ráð fyrir að kaup hækki mest hjá þeim lægst launuðu og minna hjá þeim,sem betri kjör hafa.Það er sú stefna,sem allir segjast fylgja en oft hefur reynst erfitt að koma í framkvæmd. Vonandio tekst nú að framfylgja þeirri stefnu.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Lokaþáttur samningaviðræðna í sjónmáli? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Komum fram við útlendinga af virðingu
Greint hefur verið frá vefsíðu á vefsvæðinu Myspace þar sem unglingar á aldrinum 13-15 ára fara niðrandi orðum um Pólverja sem hér eru búsettir. Á sjöunda hundrað manns höfðu skrifað inn á vefsíðuna en búið er að loka henni núna.
Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahússins segir útlendingaandúð aukast eftir neikvæðan fréttaflutning af ákveðnum þjóðfélagshópum.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur ákveðið að efna til tónleika gegn rasisma í Austurbæ á miðvikudaginn í næstu viku vegna málsins.
Mér finnst útlendingaandúð hafa keyrt langt úr hófi fram undanfarið.Þetta er eins konar múgsefjun. Það eltir hver annan í því að kenna útlendinum um hluti,sem gerast á skemmtistöðum og víðar. Í flestum tilfellum hafa Íslendingar leitað eftir útlendingum til vinnu og ef við hefðum ekki útlendinga í frystihúsunum og í ýmsum þjónustustörfum væri hér vandræðaástand. Við verðum að koma fram við útlendingana af virðingu.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Verðum við að kasta krónunni?
Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að innganga Íslands í Evrópusambandið myndi skila þjóðinni mun meiri efnahagslegum ávinningi en aðildin að Evrópska efnahagssvæðinu á sínum tíma.
Kostnaður heimila og fyrirtækja af íslensku krónunni er í dag metinn á milli 50 og 100 milljarða króna á ári. Ekkert sýnir betur hversu gríðarlegir hagsmunir eru af því að fyrir íslensk fyrirtæki og heimili að fá stöðugan og viðskiptahæfan gjaldmiðil,segir Árni Páll Árnason.
Árni Páll ræðir hér mjög mikilvægt mál,sem ekki verður lengi enn unnt að íta á undan sér.Ég tel,að vísu,að þær tölur,sem hann nefnir um aukakostnað fyritækja af því að nota krónuna séu í hærri kantinum. En samt sem áður er aukakostnaðurinn mikill og að því kemur,að taka verður upp annan gjaldmiðil til þess að spara fjármuni.Ekki er sjálfgefið að það verði evra. Guðni Ágústsson formaður Framsóknar telur aðra gjaldmiðla koma til greina og vill kanna málið.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
ESB hagstæðara en EES |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Ólafur uppi í skýjunum
Ólafur F.Magnússon,borgarstjóri,var
i kastljósi í gær. Reynt var að fá,Vilhjálm og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins en þeir fengust ekki. Spyrill Kastljóss spurði Ólaf hvort ekki yrði erfitt að starfa í meirihlutanum,þegar Vilhjálmur væri í svona veikri stöðu og öll spjót stæðu á honum. Ólafur horfði bara upp í loftið og sagði: Ja,við erum með svo góð stefnumál,að þetta mun ganga vel. Þegar spyrill ítrekaði spurningu sína svaraði Ólafur alltaf því sama. Það var eins og hann væri á annarri plánetu. Það þýðir ekkert að stinga hausnum í sandinn og loka augunum fyrir staðreyndum. Það er staðreynd,að staða Vilhjálms hefur veikst.Hann er varaborgarstjóri og formaður borgarráðs. Það er ekkert svar við óþægilegum staðreyndum að segja: Við erum með svo góða stefnuskrá.
Ólafur kom því inn í stefnuskrá meirihlutans,að Rvíkurflugvöllur ætti að vera áfram inni á aðalskipulagi. Það segir ekkert um það hvort flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Það tekur mörg ár að kanna nýtt stæði fyrir flugvöll,t.d. á Hólmsheiði. Þess vegna er það sjálfsblekking að halda að flugvöllurinn verði kyrr í Vatnsmýrinni. Samfylkingin er andvíg því,VG er andvíg því,Gísli Marteinn er andvígur því og Vilhjálmur er sennilega andvígur því líka. Ólafur verður að komast niður á jörðina.
Björgvin Guðmundsson