Fá eldri borgarar meiri hækkun en þeir lægst launuðu á almennum vinnumarkaði?

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,þingmaður Samfylkingarinnar, er  ötull baráttumaður fyrir bættum kjörum aldraðra og öryrkja  og mikill stuðningsmaður Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún ritar grein í Fréttablaðið í dag um það sem áunnist hefur í málefnum aldraðra og öryrkja  í tíð þessarar ríkisstjórnar.Ég vil gera eina athugasemd við þessa grein.

Ásta Ragnheiður segir,að  lífeyrisþegar hafi fengið 9400 kr. hækkun á lífeyri í kjölfar kjarasamninga og að meðtalinni hækkun um síðustu áramót. En síðan leggur hún við þessa hækkun 15 þús. kr. hækkun fyrir skatta,sem hún segir,að  þeir sem ekkert  hafi úr lífeyrissjóði  fái 1.júlí n.k. Og þá verði þeir komnir með meiri hækkun en þeir lægst launuðu á almennum vinnumarkaði  eða alls 24.400 kr. Þessar 25 þúsund krónur,sem verða ekki nema 8 þúsund krónur þegar búið er að skerða þær og skattleggja, koma  aðeins í hlut lítils hóps aldraðra.Hinir fá ekkert,sem hafa einhverja hungurlús úr lífeyrissjóði. En ef þessar  15000 kr. fyrir skatta,sem Ásta Ragnheiður talar um,  hafa eitthvað með kjarasamningana að gera þá hefðu þær átt að borgast úr 1.febrúar eins og 18000 kr. sem tugir þúsunda verkafólks fengu 1.febrúar.

Það munar um það,sem gert hefur verið en ég sakna þess,að ekki skuli gerðar ráðstafanir,sem gagnast öllum ellilífeyrisþegum og öryrkjum.En að sjálfsögðu  mundu bætur hækka mismikið eftir aðstæðum þó um almennar ráðstafanir væri að ræða. En það væri þá ekki verið að skilja stóra hópa eftir eins og nú er gert.

Björgvin Guðmundsson


Á að fara að byggja hjúkrunarheimili?

Verið er að undirbúa áætlun sem felur í sér að biðlistum eftir hjúkrunarrýmum fyrir aldraða verður eytt. Samkvæmt henni verða reist 400 ný hjúkrunarrými á næstu 3-4 árum og fjölbýlum fækkað stórlega, segir félagsmálaráðherra.

Verið er að leggja lokahönd á áætlunina í félags og tryggingamálaráðuneytinu. Árið 2005 var ákveðið að byggja hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut og var stefnt að því að starfsemi þar hæfist árið 2007. Nú er áætlað að heimilið verði tilbúið árið 2010. Hins vegar er óvíst hvort hjúkrunarheimili verði byggt á Lýsislóðinni á Seltjarnarnesi eins og áður hafði verið ákveðið.

Það  ber að fagna því,að loks komist skriður á byggingu hjúkrunarheimila.Mörg hundruð manns eru á biðlistum eftir slíku rými. Samfylkingin lofaði því fyrir síðustu kosningar,að byggð yrðu 400 hjúkrunarrými   á 2 árum.Ljóst er,að það næst ekki.Það verða liðin 4-5 ár þegar það mark næst.Að sumu leyti hefur miðað aftur á bak í þessu efni,þar eð ekkert hefur orðið úr framkvæmdum við heimili,sem búið var að taka skóflustungur fyrir. Hjúkrunarheimili á Lýsisreitnum verður sennilega ekki byggt. Og loks nú er verið að bjóða út byggingu hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbaut sem rætt hefur verið um árum saman. En væntanlæega stendur þetta allt til bóta.

Björgvin Guðmundsson

 

 


Við viljum engin skólagjöld

Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ítrekaði á Alþingi í dag þá stefnu flokksins, sem mörkuð var á landsfundi í fyrra, að öllum eigi að standa til boða gjaldfrjáls menntun frá og með leikskóla til og með háskóla.Engin skólagjöld eigi að vera í almennu framhalds-og grunnnámi Sigurður Kári Kristinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að stuðningur við skólagjöld í opinberum háskólum fari vaxandi í samfélaginu. 

Talsverður hiti var í umræðu um skólagjöld, sem Björn Valur Gíslason, varaþingmaður VG, hóf umræðuna í byrjun þingfundar. Vísaði Björn Valur í nýlegt viðtal við Sigurð Kára í Fréttablaðinu þar sem hann sem lýsti skoðun sinni á skólagjöldum en Sigurður Kári er formaður menntamálanefndar Alþingis. Þar sagði hann að stjórnarflokkarnir yrðu að taka afstöðu til þess hvort taka eigi upp skólagjöld í opinberum háskólum og hann teldi það sjónarmið njóta sífellt meiri stuðnings í samstarfsflokknum, þ.e. Samfylkingarinnar.

Ég er algerlega andvígur öllum skólagjöldum í framhaldsskólum og háskólum.Ég tel raunar,að innritunargjöld í háskólum

 hér séu þegar orðin of há.Treysti á að Samfylkingin berjist gegn skólagjöldum. Tryggasta leiðin til þess að tryggja algert jafnrétti til náms er að hafa engin skólagjöld.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


mbl.is Heitar umræður um skólagjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Regluleg heildarlaun 368 þús sl.ár en lífeyrir aðeins 130 þús.!

Regluleg laun fullvinnandi launamanna voru 330 þúsund krónur að meðaltali   árið 2007 og regluleg heildarlaun, það er regluleg laun ásamt yfirvinnu, voru 368 þúsund krónur, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Á sama tíma og þessi voru launin  var verið að skammta lífeyrisþegum  126-130 þúsund kr. á mánuði! Þessi skömmtun er til háborinnar skammar. Og ekki batnar skömmtunin á þessu ári. Lífeyrir er aðeins  136 þús. kr. fyrir skatta.

i

Greiddar stundir fullvinnandi launamanna voru að meðaltali 44,8 stundir á viku. Heildarlaun fullvinnandi launamanna voru 424 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Í heildarlaunum eru regluleg heildarlaun að viðbættum ýmsum greiðslum sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili svo sem desemberuppbót og afkomutengdar greiðslur.

Regluleg laun fullvinnandi launamanna eftir starfsstéttum voru á bilinu 209 til 638 þúsund krónur að meðaltali á mánuði árið 2007. Heildarlaun voru á bilinu 316 til 826 þúsund krónur. Laun stjórnenda voru hæst og laun verkafólks lægst.

 

Björgvin Guðmundsson


Samfylkingin ræðir álit Mannréttindanefndar Sþ.

„Íslensk stjórnvöld þurfa að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir miðjan næsta mánuð. Málið er að sjálfsögðu í höndum sjávarútvegsráðherra en við í Samfylkingunni verðum að skoða þetta vandlega og taka afstöðu til þeirra kosta sem til greina koma,“ segir Karl V. Matthíasson, annar formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd flokksins um ráðstefnu sem nefndin gengst fyrir á laugardaginn undir heitinu „Kvótakerfi á krossgötum“. Frummælendur eru Lúðvík Kaaber, Aðalheiður Ásmundsdóttir, Jóhann Ársælsson og Þorvaldur Gylfason, en ráðstefnan er haldin á Grand hóteli í Reykjavík og stendur frá 13 til 15.30. 

Ekkert hefur komið fram enn frá stjórnarflokkunum um það hvernig bregðast á við álitinu.Við getum ekki hummað það fram af okkur., Það verður að gera róttækar breytingar á kvótakerfinu.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


6,9% atvinnulausir á aldrinum 16-24 ára

Á fyrsta ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 2% og var það sama hjá körlum og konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,9%, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni.

Á fyrsta ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 4200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,3% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,5% hjá körlum og 2,2% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,5%.

Á fyrsta ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 2,0% og var það sama hjá körlum og konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,9%.

Þessar tölur  benda til þess,að atvinnuleysi muni dynja fljótar á okkur en við reiknuðum með.Bæði Seðlabanki og fjármálaráðuneyti spá því,að stvinnuleysi munio aukast á næstu misserum.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is 6,5% atvinnuleysi hjá 16-24 ára fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru andvígir því,að lífeyrissjóðirnir láni bönkunum

Ögmundur Jónasson formaður BSRB gagnrýnir harðleg frumvarp,sem fram er komið,og heimilar lífeyrissjóðum að  lána verðbréf  til áhættufjárfesta. Ögmundur spyr: Er ekki nóg komið af áhættubraski? Hann leggst alveg gegn frumvarpinu og kallar það raunar algert rugl.Í sama streng tekur Guðmundur Gunnarsson,formaður Rafiðnaðarsambandsins.Hann segir,að lífeyrissjóðirnir eigi 500 milljarða í erlendum verðbréfum og nú vilji bankarnir komast í fjármagn lífeyrissjóðanna. Hann segir það ekki koma til greina.

 

Björgvin Guðmundsson


Margir þingmenn á faraldsfæti

Tuttugu og sex varaþingmenn hafa tekið sæti á Alþingi það sem af er þessu þingi, þar af hafa sjö komið inn tvisvar. Varamaður situr alla jafna inni í tvær vikur og því hafa varaþingmenn setið á Alþingi í 66 vikur samtals. Þetta er meira en á síðustu tveimur árum.

Veturinn 2006 til 2007 tóku 23 varaþingmenn sæti á Alþingi þar af fimm tvisvar og árið þar á undan líka 23, þar af þrír tvisvar. Þannig hafa mun fleiri varaþingmenn verið kallaðir til nú en þá og flestir frá Vinstri grænum. Sjö varaþingmenn sitja nú á Alþingi.

Það eru ýmsar ástæður fyrir því að varaþingmenn eru kallaðir inn, oftast er það vegna þess að þingmaður getur ekki sótt þingfundi vegna opinberra erinda. Sama má segja um ráðherra. Margir þingmenn eru nú á faraldsfæti eða allavega þrettán.

Þingmenn sitja í nefndum og ráðum erlendis og því er eðlilegt,að þeir þurfi að ferðast til útlanda.En það er hins vegar óeðlilegt að þeir teygi úr ferðum sínum til þess að varamenn geti komið inn. Þingmaður þarf að vera fjarverandi í 2 vikur til þess að kalla megi inn varamann.Þetta kerfi á ekki að misnota.Og það sama gildir að sjálfsögðu um ráðherra. Þeir eiga ekki að lengja ferðir sínar að óþörfu til þess að varamenn komist inn.

Björgvin Guðmundsson


REI í útrásarverkefnum.Fjármagn vantar

Aðkoma fjárfesta að Reykjavík Energy Invest (REI) er eitt af því sem skoðað verður í stefnumótun fyrirtækisins til framtíðar, að því er kom fram í máli Kjartans Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur og REI, á borgarstjórnarfundi í gær.

Kjartan sagðist ekki sjá fyrir sér að REI fengi fjármagn frá Orkuveitunni í framtíðinni og fyrirtækið myndi lágmarka áhættu í þeim verkefnum sem þegar væru komin í gang. Á meðan vinna við stefnumótun væri í gangi þyrfti hins vegar að standa vel að rekstri REI og halda áfram með verkefnin. Borgarfulltrúi Framsóknarflokks sagði útrásarstefnu meirihlutans af sama meiði og mörkuð var af fyrsta meirihluta þessa kjörtímabils – sem sprakk eftirminnilega þegar REI-málið stóð hvað hæst.

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, bar það undir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita sjálfstæðismanna í borginni, hvort Kjartan hefði haft umboð borgarstjórnarflokksins þegar hann undirritaði samkomulag milli REI og ríkisstjórnar Afríkuríkisins Djíbútís og vilyrði fyrir frekari viðræðum við orkufyrirtæki jemenska ríkisins nú nýverið. Vilhjálmur játti því að Kjartan hefði haft umboð „til að vinna að framgangi þessara mála en með lágmarksáhættu að leiðarljósi“. Hann hrósaði jafnframt stjórnarformanninum fyrir vel unnin störf.

REI hefur leitað eftir lánsfjármagni erlendis og væntanlega fæst það því annars eru þessi verkefni,sem eru í burðarliðnum,strand.Ég er sammmála því að ekki á að láta Orkuveituna fjármagna verkefni erlendis.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Skoða aðkomu fjárfesta og halda áfram verkefnum REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin fagnar jafnréttislögum

Kvennahreyfing Samfylkingarinnar  fagnaði nýju jafnréttislögunum með sérstökum fagnaðarfundi í Ráðhúsi Reykjavíkur síðdegis í gær.Flutt voru sturtt framsöguerindi og pallborðsumræður voru þar sem þátt tóku  í meðal annars þær Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jóhanna Sigurðardóttir utanríkis-, félgs-, trygingamála- og jafnréttisráðherrar.  

 

Björgvin Guðmundsson


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband