Ingibjörg Sólrún full rausnarleg gagnvart bönkunum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra slær því föstu í samtali við danska blaðið Berlingske Tidende að allir bankar landsins geti reiknað með stuðning frá ríkisvaldinu ef þeir lenda í vandræðum.

Hún er tilbúin til þess að styðja þá beint með framlögum úr ríkissjóði og einnig til þess að auka gjaldeyrisvarasjóð landsins.

Á sama tíma hafnar hún því að bankarnir muni komast í þrot áður en að lausafjárkreppunni á alþjóðamarkaðinum lýkur. Ingibjörg segir að stjórmvöld muni ekki láta það líðast að bankarnir verði gjaldþrota eins og staðan er í dag.

Þannig segir Vísir.is frá samtali Berlingske Tidende við Ingibjörgu Sólrúnu Gíslasdóttur,utanríkisráðherra.Ef þetta er rétt eftir haft þykir mér Ingibjörg Sólrún vera fullrausnarleg í yfirlýsingum um bankana.Ég þykist vita,að ráðherrar ríkisstjórnarinnar vilji með yfirlýsingum erlendis auka traust á íslenskum bönkum á ný. En ég tel ekki að ríkið eigi að veita bönkunum framlög eða styrki eins og það heitir á íslensku.Það má auka gjaldeyrisvarasjóðinn og Seðlabankinn gæti  tekið erlent lán í því skyni og  til þess að eiga peninga  sem varasjóð m.a. vegna íslensku bankanna.Jafnvel kaup  á einhverjum skuldabréfum af bönkunum kæmu til greina,ef allt um þryti hjá þeim. En það þarf að byrja á því að setja ný lög um viðskiptabanka og þar tel ég að kæmi til greina að skipta resktri þeirra í tvennt,fjárfestingarstarfsemi og viðskiptamannastarfsemi. Það gengur ekki að bankarnir séu í alls konar fjárrfestingarbraski og setji sparifé landsmanna í hættu.

 

Björgvin Guðmundsson


Þorvaldur Gylfason vill að Ísland lýsi því strax yfir,að Ísland sæki um aðild að ESB

Þorvaldurr Gylfason prófessor í hagfræði segir það skynsamlegasta sem ríkisstjórnin geti gert í þeim efnahagsþrengingum sem nú ríkja, sé að lýsa því strax yfir að Íslendingar hyggist sækja um aðild að Evrópusambandinu og myntbandalagi Evrópu. Ef dýpki á kreppu bankanna komi til greina að þjóðnýta bankanna til að einkavæða þá á nýjan leik segir,Þorvaldur.

 

Björgvin Guðmundsson


Peningar og mannúð takast á í heilbrigðiskerfinu

Peningar og mannúð takast á í heilbrigðiskerfinu,segir Magnús Pétursson,fyrrverandi forstjóri Landsspítalans í opnuviðtali  í Mbl. í dag. Það kemur fram í viðtalinu,að Magnús vill að mannúðarsjónarmiðið  sé haft í fyrirrúmi en það má lesa milli línanna i viðtalinu,að peningasjónarmiðið hafi verið farið  að hafa forgang. Nýr heilbrigðisráðherra setti sérstaka tilsjónarnefnd til höfuðs Magnúsi. Með því var í raun dregið úr valdi Magnúsar og  nefndin látin  sinna að mörgu leyti því sama og forstjóri. Sjálfstæðismenn tala gjarnan um það,að opinber rekstur sé mun þyngri í vöfum en einkarekstur. Ákvarðanataka gangi fljótar fyrir sig í einkafyrirtækjum.Því er það furðulegt,að heilbirgðisráðherra Sjálfstæðisflokksins skuli gera ákvarðanatöku Landspítalans þyngri í vöfum með því að setja sérstaka tilsjónarnefnd yfir forstjórann.Það má sjá af viðtalinu við Magnús ,að tilsjónarnefndin átti stóran þátt í því að Magnús hætti. Það má heita að ráðherra hafi flæmt Magnús úr starfi.

 

Björgvin Guðmundsson

 


Þorvaldur Gylfason:Bankastjórarnir verða að fara

Þorvaldur Gylfason prófessor var í  Silfri Egils í dag. Egill Helgason spurði hann hvað hann vildi segja um ummæli Gylfa Magnússonar dósents um Seðlabankann en  Gylfi sagði,að skipta yrði um bankastjórn og bankaráð Seðlabankans. Þorvaldur kvaðst sammála Gylfa um að bankastjórarnir yrðu að  fara.Peningamálastefna bankans hefði brugðist og stjórnendurnir bæru ábyrgð á því.Þoraldur gagnrýndi harðlega  pólitískar skipanir  á bankastjórum Seðlabankans.

 

Björgvin Guðmundsson


Tekst Seðlabankanum að lækka húsnæðisverðið?

Yfirlýsing  Seðlabankans um að íbúðaverð mundi lækka um 30 % á næstu 2-3 árum hefur

  komið eins og reiðarslag yfir marga.Þeir,sem ætluðu að fara að kaupa íbúð bíða nú áteka og segja við sinn fasteignasala,að þeir ætli að bíða eftir lækkun,sem spáð hefur verið. Þeir,sem eru að selja geta ekki selt,þar eða enginn vil kaupa á því "háa" verði,sem nú  er í gildi. Heita má því að öll fasteignaviðskipti hafi stöðvast.Bankarnir hafa einnig dregið mikið úr lánveitingum vegna íbúðakaupa.Sumir segja,að bankarnir hafi alveg lokað fyrir.Spurningin er sú hvort þessi glannalega yfirlýsing Seðlabankans muni ekki  sem slík valda lækkun íbúðaverðs. Mér þykir það ekki ólíklegt.

Ljóst er,að eins og ástandið er nú á fasteignamarkaðnum er alveg lífsnauðsynlegt,að Íbúðalánasjóður verði áfram við líði. Ef einhverjar hugmyndir hafa verið um að leggja hann niður eða að  breyta honum í heildsölubanka er rétt að leggja þeir hugmyndir algerlega til hliðar.

 

Björgvin Guðmundsson


Viðskiptaráðherra ræðir mannréttindamál við Kínverja

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hyggst ræða við kínversk stjórnvöld um mannréttindi og ástandið í Tíbet í nýhafinni heimsókn sinni þangað sem stendur alla næstu viku. Þar með er endurgoldin heimsókn kínverska vipskiptaráðherrans hingað í júní í fyrra. Höfuðtilgangur ferðarinnar er að ræða frekar við Kínverja um sameiginlega viðskiptahagsmuni og treysta viðskiptatengsl. Í för með ráðherranum er meðal annars hópur frá Félagi íslenskra stórkaupmanna og fulltrúar íslenskra fyrirtækja.

„Í ljósi ástands mannréttindamála í Kína, og ekki síst ástandsins í Tíbet, mun viðskiptaráðherra taka þau mál upp í viðræðum sínum við kínverska ráðamenn,“ segir í fréttatilkynningu. „Íslensk stjórnvöld hafa áður tjáð Kínverjum þá afstöðu sína að það sé þjóðréttarleg skylda Kínverja að virða mannréttindi í Tíbet. Þessi afstaða verður frekar áréttuð í ferðinni og áhersla lögð á hve órjúfanlegum böndum viðskiptafrelsi, upplýsingafrelsi og mannréttindi eru tengd. Af því tilefni hefur verið óskað eftir sérstökum fundi um mannréttindamál með aðstoðarutanríkisráðherra Kína. Viðskiptaráðuneytið hefur haft náið samráð við utanríkisráðuneytið af þessu tilefni og ennfremur kallað fulltrúa Íslandsdeidar Amnesty International og Mannréttindaskrifstofu Íslands á sinn fund. Á fundinum var farið yfir stöðu mannréttinda í Kína og hvernig íslensk stjórnvöld geta haft jákvæð áhrif á stöðu mála og um samfélagslega ábyrgð íslenskra fyrirtækja í Kína.“

Það er fagnaðarefni að viðskiptaráðherra skuli ætla að ræða mannréttindamál við Kínverja.Þegar samþykkt var að Olympiuleikarnir yr'ðu haldnir í Kína  á þessu ári var það gert í trausti þess að Kínverjar mundu koma mannréttindamálum sínum í lag. En lítið hefur gerst. Mannréttindabrot Kínverja í Tíbet hafa haldið áfram.Alþjóðasamfélagið verður að taka strangt á mannréttindabrotum ínverja. Best væri að sniðganga alveg opnunarhátíð Olympíuleikanna.Það væru skilaboð,sem Kínverjar mundu skilja.

Björgvin Guðmundsson
<


Útlendur,eftirlýstur,meintur morðingi gengur hér laus

Von er á alþjóðlegri handtökuskipan á hendur útlendum karlmanni sem hefur stundað byggingavinnu hér á landi undanfarna mánuði. Maðurinn er grunaður um morð í heimalandi sínu. Þetta kom fram í Fréttablaðinu. Í kvöldfréttum RÚV kom fram að samkvæmt heimildum fréttastofu útvarpsins hefur hann komið við sögu lögreglu hér á landi en er ekki í haldi.

Fréttablaðið greinir frá því að maðurinn sé grunaður um morð í Wloclawek í Póllandi og var handtökutilskipun gefin út á hann á síðasta ári. Hann var þá í tengslum við glæpahóp sem meðal annars fékkst við fíkniefnasölu og peningaþvætti. Grunar lögreglu að hópurinn sé að færa út kvíarnar, meðal annars með því að selja pólskar konur í vændisþjónustu í Þýskalandi. Maðurinn hélt til Íslands eftir að handtökutilskipunin var gefin út.

Það er alvarlegt mál,að eftirlýstur,meintur morðingi gangi laus hér.Það leiðir hugann að því hvort unnt sé að hafa betra eftirlit með útlendingum,sem koma hingað til vinnu eða dvalar.Þeirri hugmynd hefur veruð hreyft að láta ætti  útlendinga,sem komaa hingað   til vinnu eða lengri dvalar framvísa sakavottorði. Það er sennilega erfitt í framkvæmd,þar eð þá  yrðu Íslendingar að sæta því að þyrfa að framvísa sakavottirði,þegar þeir færu til útlanda.Sennilega væri best að lögregluyfirvöld hér tækju upp meira samstarf við l0gregluyfirvöld í l0ndum þeim,sem hafa verið að senda hingað flesta misyndismenn.

Björgvin Gupðmundsson


Atvinnuleysi mun aukast

 Avinnuleysi á Íslandi í mars 2008 var 1% líkt og í febrúar og voru að meðaltali 1.674 einstaklingur á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þetta er lítilsháttar fjölgun frá febrúarmánuði, eða um 43 manns, þó atvinnuleysið mælist óbreytt. Fyrir ári síðan, eða í mars 2007, var atvinnuleysið 1,3%.

Atvinnuleysi eykst á höfuðborgarsvæðinu um 10% og er nú 0,8% en var 0,7% í febrúar. Á landsbyggðinni minnkar atvinnuleysi um 3,5% og er 1,5% en var 1,6% í febrúar.  Atvinnuleysi karla eykst um   AAaaa6,6% og er 0,9% en var 0,8% í febrúar. Atvinnuleysi kvenna minnkar lítils háttar og mælist 1,3% líkt og í febrúar.

Seðlabankinn spáir nú 5% atvinnuleysi 2010.Talið er a&#39;ð strax næsta haust geti atvinnuleysi aukist vegna ýmissa merkja um samdrátt í efnahagslífinu.Það er ljóst,að uppsveiflunni er lokið í bili og niðursveifla hafin.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Atvinnuleysi 1% í mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vantar í fjölda stöðugilda á leikskólum

Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, kveðst eiga bágt með að sjá að hægt verði að fullmanna þannig að öll börn 12 mánaða og eldri fái dagvistun 2012 eins og borgarstjórnarmeirihlutinn hefur lofað. „Það þarf þá eitthvað mikið að gerast. Nú vantar enn í fjölda stöðugilda.“

Að sögn Bjargar þarf tvennt að koma til svo að starfsfólk fáist. „Eins og við erum búin að segja í mörg ár þarf að laga launakjörin og með því laða fleira fólk í námið og fólk á vettvang sem af einhverjum ástæðum hefur horfið frá.“

Björg tekur það þó fram að hugsanlega gæti orðið tilfærsla á markaðnum. „Eflaust hafa einhverjir áhuga á að vinna með þessum ungu börnum.“

Það ríkir ófremdarástand á leikskólum borgarinnar, Hvað eftir annað verður að grípa til þess að senda börnin heim vegna þess að ekki er nægilega margt starfsfólk. Sumir leikskólar hafa orðið að tilkynna foreldrum,að börnin verði að vera heima 1 dag í viku. Það þýðir að annað foreldrið verður að taka sér frí úr vinnu til þess að vera heima hjá barninu. Það er aðeins ein lausn á þessu máli: Hækkun launa leikskólakennara,

 

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Formaður Félags leikskólakennara: Efast um að hægt verði að manna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vorið er að koma

Þeir sem bíða sumarsins eftir óvenjuharðan vetur geta tekið gleði sína á ný: Vorið kemur á þriðjudaginn. Þetta staðfestir Árni Sigurðsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

„Þetta er fyrsta vísbendingin um að vorið sé að koma,“ segir Árni og á þar við lægð sem von er á upp að sunnanverðu landinu en hún ber með sér hlýja vinda sunnan úr Evrópu. Árni segir líklegt að hitinn fari jafnvel í tíu stig, þá helst fyrir norðvestan. Lægðinni fylgir mögulega eitthvert súldarloft.

Samkvæmt langtímaspá er gert ráð fyrir að hlýindin standi yfir í 2–3 vikur. „Fólk getur því farið að kíkja eftir farfuglum og líta við í sumarbústaðnum og taka til,“ segir Árni.

Þetta eru ánægjulegar fréttir.Það er ekki alltaf sem veðurfræðingar geta sagt okkur upp á dag hvenær vorið kemur. En nú höfum við það: Vorið kemur á þriðjudaginn. Hæ.hó. Fögnum því.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


mbl.is Vorið kemur á þriðjudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband