Laugardagur, 30. maí 2009
Endurskoða á hryðjuverkalög reglulega
Samþykkt var á ráðherrafundi Evrópuráðsins í Reykjavík , að aðildarríki ráðsins skuli reglulega endurskoða lög sín um baráttu gegn hryðjuverkum og hvernig þeim er beitt. Þannig verði komið í veg fyrir að þeim sé misbeitt í málefnum sem eru alls óskyld hryðjuverkum, svo sem til að hefta tjáningarfrelsi eða halda upplýsingum leyndum.
Á fundinum var sérstaklega fjallað um fjölmiðla og nýja miðla og hvernig þeir hefðu breyst með tilkomu, leitarvéla, samskiptavefja og netveita. Einnig var fjallað um áhrif nýrra miðla á tjáningarfrelsi og persónuvernd.
Í lokayfirlýsingu fundarins segja ráðherrarnir, að fram hafi komið áhyggjur af því, að hryðjuverkalög í tilteknum löndum sem takmarka tjáningarfrelsi og upplýsingastreymi séu of víðtæk og innihaldi ekki ákvæði sem komi í veg fyrir misnotkun þeirra. (mbl.is)
Rnda þótt ekki sé getið um hryðjuverkalög Breta gegn Íslendingum í þessari ályktun þá á þessi ályktun að sjáklfsögðu við þau eins og önnur.Bresku hryðjuverkalögin gegn Íslendingum verða þeim alltaf til ævarandi skammar.Mér vitanlega hafa Bretar enn ekki afnumið þau.Þessi lög hafa valdið Íslendingum ómældum skaða.Margir Íslendingar munu aldrei líta Breta sömu augum eftir setningu laganna eins og áður.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 30. maí 2009
Kjarasamningar að springa?
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ segir að viðræður aðila vinnumarkaðarins um stöðugleikasáttmála hafi hangið algerlega á bláþræði í dag. Stærsta ágreiningsefnið er um frestun launahækkana. Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins þrýsta á frestun helmings áformaðra launahækkana 1. júlí, fram í nóvember og frestun almennra launahækkana um næstu áramóti fram í september árið 2010.
Við tókumst á um þetta í dag og það er alveg ljóst að við erum ekki að ná saman um þetta. SA er ekki tilbúið að hreyfa sig meira, segir Gylfi. Við sögðum þeim strax í síðustu viku að afskaplega lítill áhugi væri fyrir því í okkar baklandi. Það væri mjög skýr krafa um að þetta kæmi til framkvæmda núna 1. júlí. Atvinnurekendur einfaldlega tilkynna okkur í dag að þeir muni þá ekki óska eftir framlengingu þessara samninga. Málið hefur því hangið algerlega á bláþræði að þessu leyti.(mbl.is)
Það yrði mikill skaði,ef það slitnaði upp úr kjaraviðræðum en mikil hætta er nú á því.Málið er snúið,þar eð ríkið hefur litla möguleika á því að koma til aðstoðar.Það hefur enga fjármuni afgangs.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 29. maí 2009
Rikið hirðir 3/4 lífeyrisgreiðslna í formi skatta og skerðinga!
Á landsþingi LEB í síðustu viku var eftirfarandi samþykkt:
Landsfundurinn telur það óþolandi,að ríkissjóður skuli eins og einn helsti ráðgjafi
rikisstyjórnarinnar í velferðarmálum orðar það,vera stærsti lífeyrisþeginn hjá því lífeyrissjóðakerfi,sem launþegar landsins haga með ærnum´
fórnum byggt upp sl. hálfa öld með því að hirða 3/4 útgreiðslna úr kerfinu í formi skatta og skerðinga á bótum.Landsfundurinn treystir því,að markmið um að skapa norrænt velferðarssamfélag á Íslandi þýði það,að meiri sanngirni verði gætt í samspili tryggingabóta,lífeyrissjóðstekna og atvinnutekna þannig,að kerfið í heild sinni hvetji betur til öflunar atvinnutekna og sparnaðar.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 29. maí 2009
Samfylkimngin fékk 73 millj. í styrki 2006
Samfylkingin hefur aflað upplýsinga um fjáröflun einstakra aðildarfélaga hennar, kjördæmis- og sveitastjórnarráða árið 2006. Í tilkynningu frá flokknum segir að þessar fjáraflanir hafi að mestu farið fram í aðdraganda sveitastjórnarkosninga og komu til viðbótar fjáröflun Samfylkingarinnar á landsvísu á árinu 2006.
Styrkir þeirra lögaðila sem styrktu flokkinn um meira en 500.000 krónur námu rúmum 37 milljónum króna hjá aðildarfélögum, kjördæmis- og sveitastjórnarráði. Þeir lögaðilar sem styrktu flokkinn um meira en 500.000 krónur í fjáröflun flokksins á landsvísu á árinu 2007 námu um 36 milljónum króna.
Á árinu 2006 þáði flokkurinn því rúmar 73 milljónir króna frá 25 aðilum í styrki frá þeim sem veittu meira en 500.000 krónur.
Samtals styrkti Kaupþing flokkinn mest á árinu 2006 eða um 10 milljónir króna. Dagsbrún styrkti flokkinn um 5 milljónir, FL-Group um 8 milljónir, Glitnir um 5,5 milljónir, Landsbankinn um 8 milljónir, Actavis um 5,5 milljónir og Baugur um 5 milljónir.
Á árinu 2006 öfluðu aðildarfélögin, kjördæmis- og sveitastjórnarráð styrkja upp á rúmar 67 milljónir. Styrkir einstaklinga námu tæpum fimm milljónum og í öllum tilvikum var um lágar fjárhæðir að ræða. Styrkir 185 lögaðila námu rúmum 62 milljónum. Þar af styrktu 18 lögaðilar flokkinn um hærri fjárhæð en 5 milljónir og námu styrkir þeirra rúmum 37 milljónum.
Samfylkningin skorar á aðra stjórnmálaflokka að birta upplýsingar um fjáröflun sína með sama hætti.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 29. maí 2009
Krónan hefur styrkst um 3,4% í vikunni
Krónan hefur styrkst um 3,4% í vikunni. Bara í dag hefur hún styrkst um 1,8% samkvæmt vefnum M5. Gengisvísitalan er nú 223 stig.
Evran kostar 172 krónur, Bandaríkjadollar 122 krónur, Sterlingspundið 197 og dönsk króna kostar 23 íslenskar.(ruv.is)
Góðar fréttir.Gætu stuðlað að lækkun vaxta í næstu viku.
Björgvin Guðmundsson
:
Föstudagur, 29. maí 2009
Framsókn snúin gegn ESB!
Umræður halda áfram á alþingi um ESB málin.Það vekur athygli,að formaður Framsóknar hefur allt á hornum sér í umræðunni.Hann sér ekkert jákvætt við að fara í aðildarviðræður við ESB.Hann talar alltaf um að þetta snúist eingöngu um Samfylkinguna.Það sé verið að óska eftir að Samfylkingin fái umboð til samninga við ESB og að samráðið eigi eingöngu að vera innan Samfylkingarinnar!Þessi málflutningur Sigmundar Davíðs er alveg dæmalaus.Auðvitað veit hann,að það er verið að veita ríkisstjórn en ekki Samfylkingu umboð.Og auðvitað veit hann,að alþingi mun beita sér fyrir víðtæku samráði,ekki aðeins samráði innan Samfylkingar.Málflutningur Sigmundar Davíðs lýsir algeru vantrausti á alþingi.Hann treystir ekki alþingi til þess að meðhöndla ESB málið,hvorki til þess að semja nógu góðan texta né til þess að skapa nægilegt samráð.Hann sér Samfylkinguna í hverju horni
Framsókn hefur samþykkt á þingum sínum að fara eigi í aðildarviðræður.Framsókn hefur haft ákveðna forustu fyrir því að Ísland gangi í ESB að uppfyllltum ákveðnum skilyrðum.En undir forustu Sigmundar Davíðs hefur Framsókn snúist geng ESB. Það hafa orðið sinnaskipti.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 29. maí 2009
ESB tilagan farin til utanríkismálanefndar
Fyrstu umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar lauk á Alþingi í dag og fær utanríkismálanefnd þingsins hana til umfjöllunar. Eftir hádegishlé verður umræða um ESB-tillögu stjórnarandstöðuflokkanna.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði í lok umræðunnar, að hann vildi að umsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu verði send í júlí þegar Svíar verða komnir með formennsku í sambandinu.
Lang farsælast væri fyrir Ísland að koma málinu fram það fljótt að Íslendingar geti falið Svíum að koma umsókninni gegnum ferlið sem gæti leitt til þess að Ísland yrði samþykkt sem umsóknarríki og aðildarviðræðurnar gætu hafist á næsta ári.
Þá sagðist Össur vilja að utanríkismálanefnd fjallaði um tillögur stjórnar og stjórnarandstöðu (mbl.is)
Bæði utanríkisráðherra og fjármálaráherra hafa talað um að ekki beri mikið á milli beggja tillagnanna og Steingrimur talaði um,að best væri að bræða tiilögurnar saman.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 29. maí 2009
IMF: Þróun efnahagsmála í grófum dráttum í takt við spá sjóðsins.
Fyrsta endurskoðun lánasamnings Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) er langt komin, en aðaláhersla hefur verið lögð á að klára endurfjármögnun bankakerfisins og að jafna stöðu ríkissjóðs. Kom þetta fram á fréttamannafundi með fulltrúum IMF í morgun.
Mark Flanagan, sem stýrir þeirri nefnd Íslandsnefnd IMF, segir í tilkynningu að þessum aðgerðum ætti að vera hægt að ljúka fyrir júnílok, en þær hafa tafist töluvert. Það þýðir að endurskoðun áætlunarinnar verður lögð fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í júlí.
Flanagan segir að halli á ríkissjóði sé nú mjög mikill og hafi það áhrif til mildunar á áhrifum kreppunnar. Ekki sé þó hægt að viðhalda svo mikilum hallarekstri til lengri tíma og mikilvægt sé að jafna rekstur ríkissjóðs.
Leggur hann áherslu á að mat IMF sé að Ísland geti staðið undir skuldabyrði hins opinbera, en hann hafi oft verið spurður að því í heimsókninni nú.
Telur IMF að þróun efnahagsmála hér á landi sé í grófum dráttum í takt við spá sjóðsins. Botninum ætti að vera náð á seinni hluta þessa árs og batinn ætti að hefjast árið 2010.
Er sjóðurinn enn á þeirri skoðun að gjaldeyrishöft séu ennþá nauðsynleg, en hugsanlega sé hægt að létta á þeim á seinni hluta þessa árs. Það verði hins vegar að gerast smátt og smátt. Krónan sé ennþá viðkvæm og því sé þörf á styrkri peningastjórn hér á landi.
Íslensk stjórnvöld munu á næstu vikum senda framkvæmdastjórn sjóðsins uppfærða viljayfirlýsingu, líkt og gert er í lok hverrar endurskoðunar. Yfirlýsingin lýsir helstu verkefnum og áætlunum stjórnvalda næstu mánuði. Hún byggir á þeim grunni sem lagður var í upphafi samstarfsins í nóvember.
Búist er við að framkvæmdastjórn sjóðsins taki afstöðu til yfirlýsingarinnar í júlímánuði. Í kjölfar þess mun Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veita annan hluta láns hans til styrkingar gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands.
Fyrirhuguð heildarlánveiting sjóðsins til Íslands nemur 2,1 milljarði Bandaríkjadala. Þegar hafa verið greiddar um 830 milljónir dala inn á reikning Seðlabanka Íslands hjá seðlabanka Bandaríkjanna. Að lokinni samþykkt stjórnar sjóðsins verður viljayfirlýsingin ásamt greinargerð sendinefndarinnar gerð opinber.(mbl.is)
Það er jákvætt,að IMF er í grófum dráttum ánægt með þróun mála hér og aðgerðir ríkisstjórnar.Sjóðurinn telur Ísland geta staðið undir skuldum.Sjóðurinn ítrekaði,að hann hefði ekki afskipti af ákvörðun stýrivaxta.Ákvörðun um þá væri í höndum Seðlabankans.IMF væri aðeins ráðgefandi í því máli.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 29. maí 2009
Bensín komið í 181 kr. literinn
Algengt verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu er nú 181,30 krónur eftir 10 króna hækkun á bensíngjaldi, sem Alþingi samþykkti í gærkvöldi. Þá hækkaði bensínverð einnig um tæpar 4 krónur lítrinn í gær af öðrum ástæðum.
Sjálfsafgreiðsluverð á dísilolíu er nú 171,70 krónur en olíugjald hækkaði um 5 krónur og einnig hækkaði dísilolían minna en bensínið í gær.
Öll olíufélög hafa ekki hækkað verð á eldsneyti. Þannig kostar bensínlítrinn enn rúmar 163 krónur á stöðvum Orkunnar og Atlantsolíu. (mbl.is)
Þetta er mikil hækkun og þungur baggi á heimilin. Mér kæmi ekki á óvart,að margir muni draga úr notkun einkabíls vegna þessa. Þar kemur margs til greina,aukin notkkun strætisvagna og reiðhjóla t.d.
Björgvin Guðmundsson
Föstudagur, 29. maí 2009
Óanægja með hækkanir skatta á eldsneyti og áfengi
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að skattahækkanir stjórnvalda á eldsneyti, áfengi og tóbak rýri lífskjörin í landinu. Erfitt sé þó að gagnrýna aðgerðina. Með þessu geti ríkið haldið ákveðnum umsvifum.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, segir hækkanirnar áhyggjuefni. Hann sé ósáttur við breytingarnar. Verðbólga haldist svipuð áfram og lán hækki um 7-8 milljarða króna. Stjórnvöld telja að vísitala neysluverðs hækki um hálft prósent vegna þessa. Gylfi segist ekki vilja gera lítið úr vanda ríkissjóðs en hliðaráhrifin af hækkun óbeinna skatta séu skelfileg. Nýjustu mælingar sýni meiri verðbólgu en búist var við. Ákvörðunin núna viðhaldi þessu ástandi og því gæti svo farið að Seðlabankinn hiki við að lækka vexti. En vonandi horfi bankinn á að þarna sé verið að taka á afkomu ríkissjóðs. (visir.is)
Þessar skattahækkanir skila sér strax í ríkissjóðs en áhrifin á húsnæðislán,sem Tryggva Þór Herbertssyni þingmanni varð tíðrætt um munu dreifast á m jög langan tíma. Það er því ekki sambærilegt. Ríkisstjórn Geirs H.Haarde greip til svipaðra ráðstafana rétt fyrir áramót og þá varð þess ekki vart ,að þingmenn Sjálfstæðisflokksins gagnrýndu þessa leið. Það er eins nú og áður,að enginn flokkur er óábyrgari í stjórnarandstöðu en Sjálfstæðisflokkurinn. það er slæmt að hækka skatta á eldsneyti og áfengi.En hvað vilja menn gera í staðinn.Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki bent á neitt.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)