Mánudagur, 15. október 2007
Góð tillaga Kristins H.Gunnarssonar
Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Frjálslynda flokksins hefur flutt till0gu á alþingi um afnám skerðingar bóta ellífeyrisþega vegna atvinnutekna og séreignalífeyrissparnaðar. Ég fagna þessari tillögu en bendi á,að það vantar í tillöguna ákvæði um að afnema skerðingu vegna tekna úr lífeyrissjóði.Í Svíþjóð eru engar slíkar skerðingar. Íslendingar eru sennilega eins ríkir og Svíar. Þess vegna geta þeir afnumið tekjutengingar eins og Svíar.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. október 2007
ÍIhaldið styður að opinber orkufyrirtæki séu í samkeppnisrekstri.Átti að fella Vilhjálm?
Hvað felldi Sjálfstæðisflokkinn nú? Það var sundrung í eingin röðum. Upp kom alvarlegur ágreiningur meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Orkuveitu Reykjavíkur og útrásarfyrirtæki þess ,REI. Enda þótt Guðlaiugur Þór fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og nú ráðherra, hafi flutt tillöguna í stjórn Orkuveitunnar um stofnun Reykjavik Energy Invest ( REI) og enginn ágreiningur verið um það mál þá í röðum sjálfstæðismanna snérust nokkrir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gegn málinu og ætluðu að nota það gegn borgarstjóra. Hér virðist hafa verið um hreina valdabaráttu innan Sjálfstæðisflokksins að ræða. Nú segja sjálfstæðismenn, að þeir séu á móti því að orkufyrirtæki sveitarfélaga og hins opinbera séu í samkeppnisrekstri. En þeir áttu sjálfir tillöguna um stofnun slíks fyrirtækis hjá Orkuveitu Reykjavíkur og þeir hafa sjálfir stutt stofnun slíks fyrirtækis á vegum Landsvirkjunar. Þannig að það er alger fyrirsláttur hjá sjálfstæðismönnum,að þeir vilji ekki að orkufyrirtæki séu
i samkeppnisrekstri.En nýju mennirnir í Sjálfstæðisflokknum tefldu of djarft og þeir telfdu af sér enda óvanir í stjórnmálum.Þeir ætluðu að koma Vilhjálmi,borgarstjóra frá.Þeim lá svo á að komast til valda . Þeir gátu ekki beðið til næstu kosninga. En þeir skutu sjálfa sig í fótinn. Þeir tóku sína eigin gröf´.
Björgvin Guðmundsson