Sameining útrásarfyrirtækjanna ógild

Ég tel, að  sameining Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Invest  sé ógild.Fundurinn,sem ákvað sameininguna var ekki boðaður með löglegum fyrirvara. Boða átti fundinn með 7 daga fyrirvara en fundurinn var boðaður með innan við 1 dags fyrirvara. Lögmæti fundarins hefur verið kært til héraðsdóms. En auk þess var   samningur um samruna útrásarfyrirtækjanna ( REI og GGI) ekki kynnt nægilega vel fyrir borgarfulltúum.T.d. liggur nú fyrir,að hvorki borgarstjóri né óbreyttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vissu um 20 ára einkarétt  REI á þjónustu frá Orkuveitunni.Hinir óbreyttu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vissu ekki um ráðgerða sameiningu útrásarfyrirtækjanna fyrirfram.Hér er svo stór mál að ræða að  kynning gagnvart borgarfulltrúum verður að vera í fullkomnu lagi .Það   á bæði við um  sameiningu útrásarfyrirtækjanna en einnig   og ekki síður um 20 ára einkaréttarsamninginn. Deila um það hvort Vilhjálmur Vilhjálmsson   hafi fengið minnisblað um 20 ára einkaréttarsamninginn  skiptir engu máli í þessu sambandi. Ef það minnisblað hefur verið lagt til hans ásamt fjölda annarra skjala hefur alla vega ekki verið vakin athygli hans á þessu mjög svo mikilvæga atriði. Það er ámælisvert. Auðvitað átti að vekja sérstaka athygli á þessu atriði. Hér hafa embættismenn og stjórnarmenn í REI brugðist skyldu sinni varðandi það að kynna efni ráðgerðra  samninga nægilega vel.

Ekki verður séð,að  neina nauðsyn hafi borið til þess að hespa afgreiðslu framangreinds máls af í  flýti. Kaupsýslumenn í einkarekstri eru að vísu vanir að afgreiða málin hratt. En stjórnmálamönnum ber  að afgreiða og taka nægilegan og lýðræðislegan tíma í að   afgreiða málin.Því  verður ekki trúað að kaupsýslumennirnir hafi viljað hespa afgreiðsluna af til þess að stjórnmálamennirnir gætu ekki kynnt sér málin nægilega vel. En staðreynd er að málið var ekki kynnt nægilega vel fyrir stjórnmálamönnunum.

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 16. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband