Sunnudagur, 20. maí 2007
Morgunblaðið í stjórnarandstöðu?
Morgunblaðið rak harðan áróður fyrir því fyrir kosningar, að Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn mynduðu ríkisstjórn. Nú,þegar verið er að mynda ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar heldur Mbl. áfram að berjast fyrir samstjórn með VG og hamast gegn Samfylkingunni. Mbl.óttastað Samfylkingin fái betri pólitíska vígstöðu með aðild að ríkisstjórn og má ekki til þess hugsa. , Býr Mbl. til alls konar samsæriskenningar svo sem þá, að Ingibjörg Sólrún gæti slitið stjórninni með Sjálfstæðisflokknum á miðju kjörtímabili og myndað vinstri stjórn!
Mikið á móti Samfylkingunni
Þetta kemur fram í Reykjavíkurbréfi Mbl. í dag. Það mætti ætla, þegar Reykjavíkurbrefið er lesið, að höfundur þess væri mjög mikið á móti Samfylkingunni.Ef til vill er hann sálufélagi Davíðs Oddssonar og Samfylkingin höfuðóvinur þeirra beggja.Þessir menn virðast búnir að gleyma því, að jafnaðarmenn hafa áður átt ágætt stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn,bæði í viðreisnarstjórninni og Viðeyjarstjórninni.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)