Írak:Mestu mistök í utanríkismálum Íslands

Mikið er  skrifað  um för Ingibjargar Sólrúnar,uanríkisráðherra,til  Miðausturlanda og sýnist sitt hverjum. Vinstri græn hafa tekið þá afstöðu að gagnrýna förina á þeim forsendum að Ingibjörg  Sólrún hafi ekki rætt við  Hamassamtökin.Ég er ósammmála þeirri  gagnrýni.Utanríkisráðherra Íslands getur ekki rætt við hryðjuverkasamtök,sem tekið hafa heilt landsvæði ,Gaza,  með vopnavaldi.Ingibjörg Sólrún ræddi við forseta bæði Ísraels og Palestínu araba og kynnti sér sjónarmið beggja. Þá fór hún einnig til Jórdaníu til þess að kynna sér flóttamannavandamálið en þar eru allt að 700 þúsund flóttamenn frá Írak og margir þeirra illa særðir.Í grein,sem ég skrifaði í Mbl. í dag um för Ingibjargar Sólrúnar segi  ég,að sennilega sé stuðningur Íslands við innrásina í Írak mestu mistök Íslands í utanríkismálum fyrr og síðar.Tveir menn tóku ákvörðun um þennan stuðning: Davíð Oddsson og  Halldór Ásgrímssson. Ábyrgð þeirra er mikil.

 

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 30. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband