Sunnudagur, 30. september 2007
Óheimilar fjárveitingar úr ríkissjóði upp á hundruð milljóna
Björgvin Guðmundsson skrifar um Grímseyjarferjuna í Morgunblaðið í dag.Hann segir m.a.:
Ríkisendurskoðun hefur skilað skýrslu um mál þetta og gagnrýnir þar harðlega óheimilar fjárveitingar upp á mörg hundruð milljónir til viðgerða og kaupa á ferjunni.Ríkisndurskoðun gagnrýnir sérstaklega ónógan undirbúning að kaupum ferjunnar. Telur ríkisendurskoðun að undirbúningi hafi verið verulega ábótavant.Siglingamálastofnun vildi að mun ítarlegri athugun færi fram á ferjunni en ekki var farið eftir þeirri ábendingu..Ríkisendurskoðun kemst að þeirri niðurstöðu, að mun ódýrara og skynsamlegra hefði verið að gera við gömlu ferjuna í stað þess að kaupa notaða ferju að utan.
Fjármálaráðherra verður að lúta alþingi
Bent hefur verið á það í umræðum um málið, að fjármálaráðherra hafi samþykkt að greiða mætti stórar fjárhæðir úr ríkissjóði umfram fjárlagaheimildir.Hafi þar verið um að ræða að nýta vannýttar fjárheimildir Vegagerðarinnar og að túlka rúmt heimild alþingis til þess að selja gömlu Grímseyjarferjuna og kaupa aðra notaða í staðinn. Fjármálaráðherra, þó valdamikill sé, hefur enga heimild til þesss að heimila fjárrveitingar úr ríkissjóði
umfram heimild alþingis.Samkvæmt stjórnarskránni má ekki ráðstafa neinum fjármunum úr ríkissjóði
án heimildar alþingis.
Niðurstaða Björgvins er sú,að fyrrum samgönguráðherra hafi borið ábyrgð á því að ekki var nægur undirbúningur við kaup á ferjunni og að farið var mörg hundruð milljón króna fram úr áætlun og fram úr lögum. Fyrrum samgönguráðherra er nú forseti alþingis. Hann á að axla ábyrgð og segja því embætti af sér.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)