Sþ: Kvótakerfið óréttlátt

.

Mannréttindanefnd SÞ hefur úrskurðað að  íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið sé óréttlátt og að

íslenskum stjórnvöldum beri að endurskoða kerfið og greiða tveimur sjómönnum bætur fyrir að hafa ekki fengið úthlutað kvóta. Þeir keyptu kvótalausan bát og fóru á veiðar án kvóta. Mennirnir voru dæmdir í Hæstarétti.

Lúðvík Kaaber, lögmaður þeirra, segist ávallt hafa talið að fiskveiðistjórnunarkerfið sé búið til úr lofti. Það hafi mannréttindanefndin nú staðfest. Nefndin sé alþjóðleg stofnun og Ísland hafi skuldbundið sig til að virða úrskurði hennar og fylgja eftir.

Sjávarútvegsráðherra leggur áherslu á að álitið sé tekið alvarlega og farið rækilega yfir hvernig skuli brugðist við því, en hann telur það ekki vera bindandi. 

Úrskurður mannréttindanefndar Sþ. er mikill áfellisdómur yfir kvótakerfinu íslenska.Stjórnvöld geta ekki stungið hausnum  í sandinn. Þau verða að taka tillit til dómsins og endurskoða kerfið. Forseti Alþingis er sammála.

 

Björgvin Guðmundsson


Lífeyrir aldraðra hefur ekki verið hækkaður um eina krónu!

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,formaður Samfylkingarinnar sagði m.a. eftirfarandi í  áramótaávarpi sinu:
Samfylkingin hefur á þessum fyrstu mánuðum í ríkisstjórn lagt megináherslu á velferðarmálin með sérstaka áherslu á umtalsverðar kjarabætur fyrir lífeyrisþega og öryrkja, aðgerðir í þágu barna og nýja sókn í jafnréttismálum. Þá er hafin löngu tímabær vinna við heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins í félagsmálaráðuneytinu. Á næstum mánuðum verður einnig gripið til aðgerða til að tryggja félagsleg úrræði í húsnæðismálum, þar sem staðan er algerlega óviðunandi fyrir ungt fólk og lágtekjuhópa.
Það er rétt,að Samfylkingin hefur lagt áherslu á aðgerðir i þágu barna og nýja sókn í jafnréttismálum.Einnig er endurskoðun almannatrygginga hafin. En engar kjarabætur  fyrir aldraða og öryrkja hafa enn tekið gildi enda þótt  7  1/2 mánuður sé liðinn frá því að Samfylkingin kom til valda.Lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum hefur ekki verið hækkaður um eina krónu enn,fyrir tilstuðlan núverandi ríkisstjórnar. Það eina,sem hefur tekið gildi er að dregið hefur verið úr bótaskerðingu þeirra,sem orðnir eru 70 ára og  vinna. Einnig hefur ríkisstjórnin lýst því yfir,að hún ætli fra 1.júlí n.k. að draga úr bótaskerðingu 67-70 ára sem eru á vinnumarkaði.En ekkert hefur verið gert í   því að bæta kjör þeirra sem eru hættir að vinna   en það er mikill meirihluti ellilífeyrisþega. Það  á ekki  að mismuna lífeyrisþegum. Það
á að bæta kjör allra lífeyrisþega jafnt. 
Björgvin Guðmundsson



Bloggfærslur 11. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband