Sunnudagur, 16. nóvember 2008
Kosningar í vor eða afsögn
Það er krafa almennings,að kosningar fari fram eigi síðar en næsta vor eða þá að ríkisstjórnin segi af sér. Á þann hátt geti ríkisstjórn og alþingi axlað ábyrgð á því ástandi,sem skapast hefur í landinu.
Eins og ég hefi skrifað um áður brugðust allar eftirlitsstofnanir og létu það aðgerðarlaust,að bankakerfið þendist svo mikið út að umsvif þess yrðu tólfföld þjóðarframleiðslan.Ríkisstjórnin brást einnig.Hún átti að veita eftirlitsstofnunum aðhald og taka í taumana. Þess vegna verður að kjósa.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 16. nóvember 2008
Líkti starfsemi LÍ í Bretlandi við strandhögg víkinga
Sunnudagur, 16. nóvember 2008
7-8 þúsund á mótmælafundi á Austurvelli
Einn ræðumanna, Viðar Þorsteinsson heimspekingur sagði í ræðu sinni að gerspillt valdaklíka auðmanna og flokksforingja stjórnaði í raun landinu. Hér væri í raun alls ekkert lýðræði en ráðherrar og hagsmunahópar skrifuðu lögin sem síðan væri rennt í gegnum alþingi á færibandi. Glæpamenn fengju náðun hjá vinum sínum og færu þá inn á þing. Vinir, synir og ættingjar væru ráðnir í ábyrgðarstöður og stjórnmálamenn töluðu við almenning eins og heimtufrekan krakka þegar þessi óhæfuverk væru gagnrýnd.
Þátttakendur sem MBL ræddi við í bænum voru allir sammála um að reiðin væri að stigmagnast í þjóðfélaginu. Kröfuspjöld voru afar mismunandi en þess er krafist að spillingin verði upprætt, kosið verði aftur til Alþingis, ráðherrar segi af sér sem og forystumenn Fjármálaeftirlits og Seðlabanka
mbl.is) Fundurin fór vel fram og lögðu fundarboðendur áherslu á að mótmæli væru friðsamleg.Það er ljóst af fjölmenninu á fundinum og undirtektum fundarmanna,að það er mikil óánægja í fólki og það vill að ábyrgir aðilar axli ábyrgð á því hvernig komið er.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ráðamenn og frekir krakkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |