Er Jón Ásgeir lagður í einelti?

Talsvert er rætt um svokallaða  útrásarvíkinga í kjölfar bankahrunsins enda telja margir að þeir  eigi  stóran þátt í hruninu.Mest er rætt um Jón Ásgeir en lítið minnst á Björgólfsfeðga,Bakkavararbræður,Hannes Smárason eða aðra útrásargreifa.Af umfjöllun fjölmiðla að dæma mætti ætla,að Jón Ásgeir hefði  komið bönkunum í þrot.

Jón Ásgeir er dæmigerður " selfmade" kaupsýslumaður eins og Bandaríkjamenn kalla slíka menn,sem hafa unnið sig upp úr engu. Hann byrjaði að raða flöskum í verslun SS í Austurveri þar sem faðir hans var verslunarstjóri. Síðan gekk hann í öll störf,þegar faðir hans hafði stofnað Bónus. En hæfileikar hans á viðskiptasviðinu komu  fljótlega í ljós. Sjálfsagt hefur Jón Ásgeir gert mistök eins og aðrir og  ekki gætt þess sem skyldi,að misstíga sig ekki á  krókustíg laga og reglna.Ég er ekki viss um,að  margir kaupsýslumenn hefðu þolað  6 ára nákvæma  lögreglu-og dómsrannsókn eins og Baugur og Jón Ásgeir máttu þola.Þegar upp var staðið var það lítið sem ekkert sem fannst og dæmt var fyrir. En þegar því máli er lokið er Jóni Ásgeiri stefnt fyrir skattalagabrot á tímabilinu 1999-2002. Hvers vegna var það mál ekki tekið fyrir samhliða hinu eiginlega Baugsmáli? Ríkisskattanefnd hafði lokið athugun á þessu skattamáli og  endurgreitt Jóni Ásgeiri vegna oftekinna skatta. Samt er farið af stað með málið.Hvað er að gerast? Og í ofanálag sektar Samkeppniseftirlit Bónus um rúmar 300 milljónir fyrir að selja vörur of ódýrt!

Er nema von,að upp komi spurning eins og er í fyrirsögn á þessum pistli: Er Jón Ásgeir lagður í  einelti?

 

Björgvin Guðmundsson


Brotalöm í úrskurði Samkeppniseftirlits

Menn eru á móti því,að markaðsráðandi fyrirtæki knésetji keppinauta sína.En menn vilja,að lágvöruverðsverslanir tryggi neytendum lágt vöruverð.Bónus hefur um langt skeið verið leiðandi lágvöruverðsverslun og hefur unnið þrekvirki í því að lækka vöruverð og færa neytendum kjarabætur. Sumir segja,að Bónus hafi náð meiri árangri  í kjarabaráttu en verkalýðshreyfingin sl. 2 áratugi.Ein ástæða þess,að Bónus hefur náð þetta góðum árangri er sú,að það hefur verið stefna verslunarinnar sl. 20 ár,að vera ávallt með lægsta vöruverðið.Verslunin hefur auglýst,að ef einhver önnur verslun væri með lægra vöruverð þá mundi Bónus lækka sig niður fyrir það verð. Samkeppsinyfirvöld hafa aldrei sl. 20 ár gert ahugasemd við þessa stefnu Bónus og framkvæmd hennar- fyrr en nú. Var þetta stefnumark alltaf ólöglegt hjá Bónus? Hvers vegna gerðu  samkeppnisyfirvöld ekki athugasemd við þetta fyrr? Þurfti verðstrið milli Krónunnar og Bónus til þess að opna augu Samkeppniseftirlits? Bónus segir,að  Krónan hafi byrjað þetta verðstríð. Bónus hafi verið að verja vígi sitt. Mér finnst brotalöm í úrskurði Samkeppniseftirlits.Verðstríðið  stóð um mjólk  og nokkrar mjólkurafurðir. Verslanirnar lækkuðu verðið á víxl.Ekki verður með neinum rökum sagt,að Bónus hafi verið að verðleggja Krónuna eða Kaupás út af markaðnum.Miklu frekar virðist hér hafa verið um það að ræða að Bónus hafi viljað verja  þá stefnu sína að vera ávallt með lægst verðið. Krónan eða Kaupás fer ekki á hausinn út af verði á mjólk.Öðru máli hefði gegnt,ef um allar matvörur hefði verið að ræða. Það er einhver brotalöm í vinnubrögðum og úrskurði Samkeppniseftirlits. Það var kvartað' yfir of háu verði í lágvöruverðsverslunum.Samkeppniseftirlitið gerði ekkert í  því máli en kærði Bónus fyriir of lágt verð!

 

Björgvin Guðmundsson

..


Meirihluti fyrir því að innkalla allar veiðiheimildir

Steingrímur J. Sigfússon formaður VG sagði í þættinum Í vikulokin í morgun,að VG vildi innkalla allar veiðiheimildir og úthluta þeim aftur þannig,að hluti rynni til sjávarbyggða og hluti færi á uppboðsmarkað.Stefna Samfylkingarinnar,samþykkt á landsfundi, er að veiðiheimildirnar verði innkallaðar samkvæmt svonefndri fyrningarreglu.Þeirri stefnu hefur ekki verið breytt á landsfundi enda þótt henni hafi ekki verið framfylgt í tíð núverandi stjórnar. Samkvæmt skoðanakönnunum eru Samfylking og VG nú með hreinan meirihluta á alþingi,miðað við kosningar í dag. Það' er því kominn meirihluti fyrir því að innkalla allar veiðiheimildir.

 

Björgvin Guðmundsson


Jóhannes í Bónus: Fyrsta sinn í 20 ár,sem samkeppnisyfirvöld telja okkur vera að gera eitthvað sem ekki er rétt

Jóhannes í Bónus  segir í viðtali við Mbl. í dag,að Bónus hafi haft það fyrir stefnu í 20   ár að vera ávallt með lægsta verðið.Samkeppnisyfirvöld hafi aldrei á  þeim, tíma talið að Bonus væri að gera eitthvað sem ekki væri rétt með því að fylgja þessari stefnu.

 

Björgvin Guðmundsson

 


Krafa almennings er kosningar

Björgvin Guðmundsson skrifar eftirfarandi grein í Morgunblaðið í dag:

Það er þung undiralda  í þjóðfélaginu.Almenningur er óánægður,margir eru reiðir.Menn hafa tapað miklu í bönkunum við fall þeirra og lífskjörin  versna dag frá degi. Kaupmáttur hefur minnkað um rúm 6% og heldur áfram að minnka.Verðlag í verslunum hefur stórhækkað og vextir og afborganir af lánum hafa skrúfast upp,bæði á verðtryggðum lánum og mynkörfulánum.Það er í þessu andrúmslofti,sem almenningur kemur saman  á Austurvelli á hverjum laugardegi og mótmælir.Almenningur mótmælir falli bankanna og  fjármálakreppunni. Almenningur krefst þess,að þeir,sem bera ábyrgðina, axli ábyrgð,stjórnmálamenn  og þær eftirlirsstofanir,sem áttu að fylgjast með bönkunum.Mótmælafundirnir á Austurvelli hafa krafist afsagnar yfirstjórnar Seðlabanka og Fjármálaeftirlits og krafist hefur verið kosninga.
r
Áður en Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að flýta landsfundi sínum og halda hann ´
i lok janúar setti Samfylkingin fram þær óskir, að stjórnarsáttmálinn yrði endurskoðaður.Bæði formaður flokksins og Jóhanna Sigurðardóttir lýstu því yfir opinberlega að endurskoða þyrfti stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, þar eð hann væri orðinn úreltur. Svo mikið hefði breyst vegna bankahrunsins og fjármálakreppunnar. Samfylkingin hefur  hert baráttu sína fyrir aðild að Evrópusambandinu og telur,að bankahrunið hafi sýnt okkur, að krónan dugar ekki lengur.Samfylkingin vill  sækja um aðild að ESB og taka upp evru.Enda þótt menn geri sér ljóst,að umsókn um ESB nú leysir ekki aðsteðjandi efnahagsvanda  þá telja menn ei að síður að slíkt skref mundi hafa jákvæð áhrif og  auka tiltrú erlendra aðila á Íslandi.Finnar hafa nýlega sagt, að Ísland gæti fengið aðild að ESB á 1/2- 1 1/2 ári .Það er mikið skemmrri tími en áður hefur verið rætt um. Í nýjum stjórnarsáttmála yrði sjálfsagt fjallað með öðrum hætti en áður um Ísland og ESB en auk þess þyrfti að breyta öðrum ákvæðum sáttmálans vegna breyttra aðstæðna.Nauðsynlegt er að skýrt komi fram í nýjum stjórnarsáttmála  að ríkisstjórnin vilji standa vörð um lífskjör láglaunafólks,aldraðra og öryrkja. Það þarf að bæta kjör aldraðra og öryrkja þrátt fyrir eriftt ástand og taka það skýrar fram en í núverandi stjórnarsáttmála.
Samþykkir Sjálfstæðisflokkurinn aðild að ESB?
Menn bíða spenntir eftir landsfundi Sjálfstæðisflokksins og sérstaklega eftir því hvað fundurinn ákveður um ESB.Mun Sjálfstæðisflokkurinn samþykkja að sækja um aðild  að sambandinu eða ekki. Ummæli Geirs formanns og Þorgerðar Katrínar,varaformanns, í þætti RUV  Í vikulokin, benda til þess að þau muni mæla með því  að sótt verði um aðild að ESB. Það yrðu  stórtíðindi. Líklegt er,að það mundii styrkja stjórnarsamstarfið, ef Sjállstæðisflokkurinn samþykkti að sækja um aðild að ESB. En ekki er það öruggt. Það verður einnig að  tryggja  að stjórnin  gæti hagsmuna láglaunafólks og aldraðra og persónulega tel ég að taka verði  einnig upp kvótamálið. Það er ekki unnt að íta því á undan sér lengur. 
Spurningin um kosningar   eða ekki kosningar getur einnig haft úrslitaáhrif.Krafa almennings er: Kosningar. Menn vilja kjósa til þess að ríkisstjórn og alþingismenn axli ábyrgð af bankahruninu og kreppunni.Það er ekki nóg, að stjórn Seðlabanka og FME víki. Stjónmálamenn verða einnig að axla ábyrgð.Forseti ASÍ hefur sett fram þá kröfu,að viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra víki úr stjórninni vegna hruns bankanna.Sjálfsagt setur hann fram .þessa kröfu vegna þess, að hann vill síður að stjórnin í heild víki.Þess vegna vill hann,að þeir ráðherrar,sem haft hafa með bankamál og fjármál að gera axli ábyrgð. Ég  hallast fremur að kosningum, þar eð þá má segja,að stjórnin í heild axli ábyrgð og leggi mál sín í dóm þjóðarinnar.Á því er nauðsyn.
Björgvin Guðmundsson

Bloggfærslur 20. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband