Olíuleit á Drekasvæðinu boðin út

Fýsilegt er að byggja upp þjónustu í Gunnólfsvík í Finnafirði á olíuleitarstiginu sem áætlað er að geti staðið í 8 til 10 ár. Í upphafi verði að mestu nýtt mannvirki sem til staðar eru í sveitarfélögunum Vopnafjarðarhrepp og Langanesbyggð. Jafnframt eru aðstæður í Gunnólfsvík til frekari uppbyggingar taldar mjög fýsilegar þegar og ef olía og gas finnst á svæðinu. Þetta er meðal helstu niðurstaðna staðarvalsskýrslu vegna þjónustumiðstöðvar fyrir olíuleit á Drekasvæðinu. Útboð vegna olíuleitarinnar verða auglýst á morgun. Úthluta á fimm leyfum síðari hluta ársins.

Á 135. löggjafarþingi Íslendinga 2007-2008 var lögð fram og samþykkt þingsályktunartillaga um að fela ríkisstjórninni að aðstoða sveitarfélögin Vopnafjarðarhrepp og Langanesbyggð við að undirbúa og kanna þörf á starfrækslu  þjónustumiðstöðvar sem gæti annast alla helstu þjónustu hérlendis við skip sem leita olíu á Drekasvæðinu.

Í kjölfar þessarar samþykktar stofnuðu sveitarfélögin  félagið, Drekasvæðið ehf., til þess að vinna að undirbúningi málsins. Í febrúar 2008 ákvað Iðnaðarráðherra að aðstoða sveitarfélögin með fjár- og vinnuframlagi til þess að standa straum að sérfræðiaðstoð við þarfagreiningu og staðarvalsathugunum fyrir þjónustumiðstöð á svæðinu. Verkefnið var boðið út í mars meðal nokkurra verkfræðistofa með reynslu í sambærilegum verkefnum og var samið við Línuhönnun og Almennu verkfræðistofuna í apríl 2008.

Markmið verkefnisins var að kanna möguleika og hagkvæmni þess að á svæði þessara sveitarfélaga verði reist þjónustumiðstöð fyrir olíuleit, tengdar rannsóknir og síðar mögulega olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Verkefnið fólst í þarfagreiningu fyrir starfsemi olíuleitarfyrirtækja á fyrstu tveimur stigum olíuleitar, þ.e.a.s. mælingum og tilraunaborunum og síðar borun dýpri borhola ef í ljós kemur að slíkt sé fýsilegt.   Þessi fyrstu ferli geta tekið allt að 8-10 ár. Að þeim tíma liðnum gætu vinnsluboranir hafist.

Í skýrslunni skyldi og meta möguleika til uppbyggingar þjónustusvæðis á landi á vinnslustigi olíu og gass í Gunnólfsvík í Finnafirði.  Í þessu sambandi átti að greina þá aðstöðu sem fyrir er á svæðinu og möguleikum á frekari uppbyggingu hennar þ.a. notkunar-, umhverfis- og öryggiskröfum sé framfylgt.

Staðarvalsskýrslan liggur nú fyrir og verður kynnt á íbúafundum  í sveitarfélögunum Vopnafjarðarhreppi og Langanesbyggð í dag.(mbl.is)

Hér eru miklir atvinnumöguleikar.Rannsóknir og kannanir krefjast mikillar þjónustu og er talið,að Vopnafjörður sé vel fallinn til þess að vera   þjónustumiðstöð  á könnunar-og rannsóknarstigi en Finnafjörður þegar olíuleit hefst.Össur Skarphéðinsson,iðnaðarráðherra,hefur drifið undirbúning máls þessa áfram af miklum krafti.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 


Þegar Kennedy var kosinn forseti Bandaríkjanna

Eftir 6 daga tekur Obama við  forsetaembættinu í Bandaríkjunum.Miklar vonir eru bundnar við valdatöku hans.Ég var í Bandaríkjunum,þegar John F.Kennedy var kosinn forseti.Ég fylgdist með kosningunum sem blaðamaður og  flutti erindi í útvarpið um kosningarnar. Ég fór á kosningafundi   í New York hjá báðum frambjóðendunum Kennedy og Nixon.Það var mjög skemmtilegt. Kennedy var mjög hrífandi persónuleiki. Hann talaði algerlega blaðlaust og hreif fólk með sér. Nixon var þunglamalegur og talaði af blöðum. Þar var mikill munur á. Á kosningadaginn fór ég ásamt öðrum blaðamönnum á milli kjöstaða og fylgdist  með.Þetta var hreint ævintýri.

 

Björgvin Guðmundsson


Taka ber bílana af bankastjórum og ráðherrum

Það er mikið talað um það þessa daga hvað kreppan sé mikil og að hún muni dýpka eftir  nokkra mánuði.En ekki verður  séð á bruðlinu í bönkunum,að alvarleg kreppa  sé í landinu.Ruglið í bönkunum heldur áfram. Bankastjórarnir eru með mikið hærri laun en ráðherrar og margföld laun á við almenning í landinu. Auk þess eru þeir með bíla og alls konar hlunnindi. Það á að taka bílana af bankastjórunum og afnema ýmis konar hlunnindi,sem þeir hafa.Auk þess á að lækka laun þeirra.Þeir þurfa ekki fremur en almenningur í þjóðfélaginu að hafa bíla  til umráða.Þeir geta sætt sig við svipuð  kjör og aðrir í þjóðfélaginu. Einnig á að taka bílana af ráðherrunum.Þeir geta  notað eigin bíla á meðan kreppa ríkir í þjóðfélaginu. Þegar mikið liggur við má nota leigubíla en  yfirleitt ættu ráðherrar og bankastjórar að nota eigin bíla eins og almenningur verður að gera.

 

Björgvin Guðmundsson


Var Seðlabankinn að fara í þrot?

Skattgreiðendur gætu tapað allt að 270 milljörðum króna vegna framsals á kröfum Seðlabankans á fjármálafyrirtæki til ríkisins.

Alls voru framseldar kröfur að fjárhæð 345 milljarðar króna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru kröfur að andvirði 75 milljarða króna með tryggum veðum í ríkistryggðum bréfum en restin, 270 milljarðar króna, voru með ótryggum veðum sem mikil óvissa er um hvernig innheimtist.

Þorri þeirra veða var bréf sem föllnu bankarnir þrír gáfu út, þau eru verðlaus í dag.(mbl.is)

Svo virðist,sem Seðlabankinn hafi verið óvarkár,þegar hann lánaði viðskiptabönkunum háar fjáræðir gegn ótryggum veðum.270 milljarðar eru tapað fé og Seðlabankinn  sennilega gjaldþrota  ef ríkið hleypur ekki undir bagga með honum.

 

Björgvin Guðmundsson

 


IMF lánið ónotað.Getum skilað því

Samningum við Færeyinga um 50 milljóna Bandaríkjadala lán er lokið. Viðræður við Dani, Finna, Norðmenn, Svía, Pólverja og Rússa um samtals allt að 3 milljarða dala lán standa hins vegar enn yfir, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Þessir peningar hafa því ekki borist til bankans enn.

Fyrsti hlutinn af 2,1 milljarðs dala láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), 827 milljónir dala, barst Seðlabankanum í lok nóvembermánaðar síðastliðins. Eru þeir fjármunir geymdir á reikningi Seðlabankans hjá bandaríska seðlabankanum í New York og hefur ekkert af þeim verið notað enn. Afgangurinn af láninu verður greiddur í átta jöfnum áföngum, um 155 milljónir dala hvert sinn, á þriggja mánaða fresti. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum er von á næstu greiðslu þegar ársfjórðungsleg skoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda fer næst fram í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ætla má að það verði í næsta mánuði.

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti þann 19. nóvember síðastliðinn beiðni Íslands um lán og áætlun um að koma á efnahagsstöðugleika hér á landi.(mbl.is)

Með því,að við höfum ekkert notað lán IMF enn getum við skilað því,ef við ákveðum að greiða ekki Icesave reikningana.Á meðan við erum með gjaldeyrishöft í gangi þurfum við ekkert lán  frá IMF. Lánið var hugsað til þess að koma á frjálsum gjaldeyrisviðskiptum en  því hefur greinilega verið frestað að framkvæma þau.Margir telja,að það verði of mikil skuldabyrði fyrir íslenska ríkið að  greiða stóran hluta Icesave reikninganna ásamt vöxtum af lánum vegna þeirra og vöxtum af láni IMF. Því sé betra að taka engin lán, hvorki frá IMF eða erlendum þjóðum vegna Icesave. Við getum alla vega endurmetið stöðuna nú úr því ekkert hefur verið notað af láni IMF. Það er ekkert í tilskipun ESB um ábyrgðir vegna spariinnlána  sem segir,að íslenska  ríkið eigi að greiða eitthvað vegna þessara reikninga. Íslenska ríkinu ber ekki skylda til þess að greiða neitt.

 

Björgvin Guðmundssin


Bloggfærslur 14. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband