Stjórnin hangir á bláþræði

Aðeins helmingslíkur eru nú á því að ríkisstjórnin lifi.Samfylkingin hefur gert ákveðnar kröfur við Sjálfstæðisflokkinn og ef ekki verður orðið við þeim er stjórnin sprungin.Fari svo verður mynduð stjórn Samfylkingar og VG með hlutleysi  Framsóknar.

 

Björgvin Guðmundsson


Björgvin G. segir af sér

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur sagt af sér. Hann tilkynnti þetta rétt í þessu. Hann tilkynnti jafnframt að Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins og stjórn stofnunarinnar hætti störfum. Björgvin segist með þessu axla ábyrgð vegna bankahrunsins en segir aðspurður að mun fleiri beri ábyrgð.

Björgvin sagðist hafa tekið þessa ákvörðun í gærkvöldi og jafnframt ákveðið að stjórn og forstjóri Fjármálaeftirlitsins þyrftu að víkja. Hann tilkynnti formanni stjórnar stofnunarinnar, Jóni Sigurðssyni, í morgun að hann óskaði eftir því við stjórn Fjármálaeftirlitsins að hún gangi frá starfslokum við forstjóra eftirlitsins og í kjölfarið segði  í kjölfarið af sér. Hafi Jón ákveðið í framhaldi af því að biðjast lausnar.

Björgvin lýsti því yfir að hann sæti áfram á þingi og ætlaði að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir komandi alþingiskosningar. Hann sagðist enga afstöðu taka til þess hvort núverandi ríkisstjórn ætti að vera við völd fram að kosningum; það yrðu formenn stjórnarflokkanna að meta.

Björgvin sagði að enginn hefði þrýst á hann um afsögn og ekki hefði verið rætt um það úti í samfélaginu undanfarnar vikur. Hann sagðist ekki hafa rætt málið við formenn stjórnarflokkanna fyrr en í morgun en hann sendi Geir H. Haarde, forsætisráðherra, bréf þar sem hann baðst lausnar. Björgvin sagðist hafa tekið ákvörðun sína einn í gærkvöldi til að höggva á þann hnút, sem væri orðinn og vildi að pólitískur friður skapist í landinu til að endurreisa íslenskt samfélag.

Björgvin sagðist aldrei hafa verið í vafa um að hann bæri hluta af hinni pólitísku ábyrgð á bankahruninu og því að ekki hefði tekist að skapa traust um uppbyggingarstarfið og hann hefði ávallt ætlað að axla hana. „Ég hef aldrei verið í vafa um að ég ber hluta af hinni pólitísku ábyrgð og hef alltaf ætla að axla hana.“ Sagðist hann hafa trúað því lengi framanaf að ríkisstjórnin myndi vinna traust almennings í endurreisnarstarfinu en það hefði mistekist. Reiði fólks, vantrúin og rof á milli þjóðar og stjórnvalda væri svo djúpstæð. „Það verður aldrei unnið til baka nema það verði breytingar í lykistofnunum," sagði Björgvin.(mbl.is)

Ég tel,að nafni hafi tekið rétt skref með því að segja af sér og víkja forstjóra og stjórn FME frá. Með þessu axlar Björgvin ábyrgð. Hann axlar pólitíska ábyrgð.Hann var yfirmaður málaflokksins og sem slíkur æðsti yfirmaður bankamála þegar bankarnir hrundu.Þetta segir ekkert um það hvort hann hafi gert eitthvað af sér er  eða ekki.

 

Björgvin Guðmundsson

PDF-skrá 

Fara til baka 


Bjarni Benediktsson nýtur mests stuðnings sem formaður

Fjórir þingmenn eru einkum orðaðir við formennsku í Sjálfstæðisflokknum, en það eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður, Bjarni Benediktsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júlíusson.

Rætt er við 22 landsfundarfulltrúa um allt land í blaðinu í sunnudagsblaði Morgunblaðsins og nýtur Bjarni Benediktsson mests stuðnings meðal þeirra. Þá lýsa þrír þingmenn yfir stuðningi við Bjarna, þau Birgir Ármannsson, Ólöf Nordal og Sigurður Kári Kristjánsson.

Aðrir þingmenn og ráðherrar sem rætt var við gáfu ekki upp afstöðu sína og útilokuðu fæstir þeirra að gefa kost á sér til forystustarfa fyrir flokkinn á landsfundinum.

Miðstjórn hefur mælst til þess að kjördæmisráð raði á framboðslista fyrir landsfund, hvort sem það verður með prófkjöri eða uppstillingu. Það má því ljóst vera að niðurstöður úr prófkjörum geta haft áhrif á formannskjör.

.

Þó nokkrir höfðu á orði að þeir væru slegnir eftir tíðindin af veikindum núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, Geirs H. Haarde. „Ég verð að segja fyrir mína parta að mér var mjög brugðið að heyra tíðindin,“ segir Ásbjörn Óttarsson í Snæfellsbæ. „Hugur minn er hjá Geir H. Haarde og fjölskyldu hans þessa stundina. Og eins og hann réttilega benti á sjálfur er til fullt af góðu fólki sem getur tekið við keflinu - ég kvíði því ekki.“

Unni Brá Konráðsdóttur á Hvolsvelli finnst margir koma til greina í forystu flokksins og hún segir Bjarna Benediktsson augljósan kandídat. „Ég veit ekki hvað Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gerir. Illugi Gunnarsson kemur til greina, Árni Sigfússon og Kristján Þór Júlíusson.“(mbl.is)

Ef landsfundur hefði verið haldinn í lok janúar hefði  stefna flokksins í Evrópumálum legið fyrir upp úr mánaðamótum. Nú hefur landsfundi verið frestað þar til í lok mars og því verður stefnan í Evrópumálum ekk klár fyrr en  eftir fundinn í lok mars.Vegna leiðtogaskipta í flokknum má einnig búast við að enginn af forustumönnum flokksins vilji kveða upp úr um Ísland og ESB fyrr en stefnan hefur verið ákveðin á landsfundi.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 Kristján Þór Júlíusson


Braut Kaupþing lög með lánum til tengdra aðila.Gengið fram hjá lánanefnd

Í íslensku viðskiptalífi hafa þrifist viðskipti í skjóli bókstafs laganna sem færa má rök fyrir að séu undir ákveðnum kringumstæðum siðferðislega umdeilanleg. Ein tegund slíkra viðskipta er lán hlutafélags til tengdra aðila og til kaupa á hlutabréfum í sjálfu sér. Í lögum um hlutafélög er ákvæði sem leggur almennt bann við slíkum viðskiptum, en á banninu eru undantekningar.

„Að baki ákvæðinu liggur hættan á hagsmunaárekstrum, þ.e. reglunni er ætlað að koma í veg fyrir að fjármunir séu færðir úr sjóðum félaga til tengdra aðila með lánveitingum sem mögulega byggjast á öðrum sjónarmiðum en viðskiptalegum hagsmunum félagsins,“ segir Áslaug Björgvinsdóttir, dósent í félagarétti við lagadeild HR. Í ákvæðinu sem bannar þetta er hins vegar sérstök undanþága er snýr að fjármálafyrirtækjum. Lögmaður sem sérhæfir sig í félagarétti sagði í samtali við Morgunblaðið að sér hefði alltaf þótt þessi undanþága í lögunum undarleg og að hún byði heim hættunni á misnotkun. Bent hefur verið á að réttlæta megi tilvist ákvæðisins með hliðsjón af því stranga eftirliti og reglum sem bankar sæta á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki.

 

Kaup Ólafs Ólafssonar og sjeiks Mohamed Bin Khalifa Al-Thani á hlutabréfum í Kaupþingi í gegnum félagið Q Iceland Finance ehf. eru dæmi um viðskipti af þessu tagi. Þar veitti Kaupþing Ólafi, sem á þeim tíma var annar stærsti hluthafi bankans, lán fyrir helmingi kaupverðsins í gegnum félag hans sem skráð er á Jómfrúaeyjum, tryggt með veði í bréfunum sjálfum og án persónulegrar ábyrgðar hans sjálfs. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur sagt að engir fjármunir hafi farið úr Kaupþingi vegna fjármögnunar á kaupum sjeiksins, en fyrir liggur að bankinn keypti upp eigin bréf af öðrum fjárfestum til þess eins að selja sjeiknum.

 

 

Áslaug Björgvinsdóttir segir að tilvist undantekningarinnar sem slíkrar breyti því ekki að stjórnendur hlutafélags verða að virða önnur ákvæði. Sem dæmi má nefna að í 76. gr. laga um hlutafélög segir að stjórn hlutafélags, framkvæmdastjóri og aðrir þeir sem hafa heimild til að koma fram fyrir hönd þess megi ekki gera neinar þær ráðstafanir sem bersýnilega eru fallnar til þess að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins. Stefán Már Stefánsson, prófessor við lagadeild HÍ, segir í bók sinni Hlutafélög og einkahlutafélög: „Notkun fjármuna félagsins til að lána hluthöfum og trúnaðarmönnum félagsins eða til að fjármagna kaup á eigin hluta er almennt ekki talin til framdráttar starfsemi þess og getur auðveldlega orðið leið til óréttmæts hagnaðar lántakanda á kostnað félagsins.“ Stefán segir jafnframt að talin sé sérstök hætta á því að lán og ábyrgðir til þessara aðila séu oft veitt án fullnægjandi athugunar og að ákvarðanir um slík lán séu teknar gagnrýnislítið.

 

 

Lánveitingar til tengdra aðila í Kaupþingi, eins og Ólafs Ólafssonar, rétt fyrir hrun bankans, voru afgreiddar áður en lánanefnd stjórnar bankans tók tilhlýðilega ákvörðun um að samþykkja þau, en í lánanefnd sitja fulltrúar skipaðir af stjórninni sjálfri. Um er að ræða lán sem tengjast ekki viðskiptum sjeiksins. Í bankanum starfa ýmsar lánanefndir en lánanefnd stjórnar þarf að samþykkja meiriháttar lánveitingar. Þær upplýsingar fengust frá Kaupþingi að þetta hefði verið venjan, að ganga frá lánum áður en formlegt samþykki lánanefndar lægi fyrir, oft væri hringt í lánanefndarmenn þar sem þeir kæmu á framfæri athugasemdum. Reynslumikill lögmaður sem Morgunblaðið ræddi við sagði að slíkt fyrirkomulag bryti gegn öllum almennt viðurkenndum starfsaðferðum. „Það er ekkert viðkvæmara en viðskipti við tengda aðila og það þarf sérstaka umfjöllun [í lánanefnd]. Jafnframt er óheimilt samkvæmt lögum að láta tengda aðila fá hagstæðari viðskiptakjör en almenna viðskiptavini bankans,“ segir lögmaðurinn. „Menn hafa í framkvæmd, í neyð með einhverjar lánafyrirgreiðslur, afgreitt þær símleiðis [hjá lánanefnd], en aldrei viðskipti tengdra aðila. Það er alveg klárt.“

i

Sýndarviðskipti, sem falla undir markaðsmisnotkun, geta varðað allt að sex ára fangelsi, samkvæmt 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti.

 

Um er að ræða viðskipti eða tilboð um viðskipti sem byggð eru á tilbúningi eða þar sem notuð eru einhver form blekkingar eða sýndarmennsku.

Öll form blekkingar falla undir þetta ákvæði laganna. Lögfræðingur sem Morgunblaðið ræddi við segir að ef dregin sé upp einhver mynd af viðskiptum, þegar raunveruleikinn er annar vegna skorts á upplýsingum, þá geti það hugsanlega fallið undir þetta ákvæði. Hann segir að ef sú staða komi upp að menn sem eigi í hlutabréfaviðskiptum og séu ekki að taka neina áhættu þá veki það spurningar um hvort ekki sé nauðsynlegt að upplýsa um það.

Í venjulegum hlutabréfaviðskiptum er tekin ákvörðun um kaup á grundvelli hagnaðarvonar með þeirri áhættu sem slíkum viðskiptum fylgir. Þegar fjársterkur og öflugur aðili kaupir hlutabréf skráðs félags sendir það þau skilaboð út á markaðinn að viðkomandi líti svo á að hlutabréf félagsins séu verðugur fjárfestingarkostur.

Einnig fellur það undir markaðsmisnotkun í áðurnefndu ákvæði laganna um verðbréfaviðskipti að dreifa orðrómi eða fréttum sem gefa eða eru líklegar til að gefa rangar eða misvísandi upplýsingar eða vísbendingar um fjármálagerninga, t.d. kaupsamninga, enda hafi sá sem dreifði upplýsingunum vitað eða mátt vita að upplýsingarnar voru rangar eða misvísandi.

Ekki voru gefnar upplýsingar til almennings um hvernig viðskiptin urðu til þegar kaup sjeiks Mohamed Bin Khalifa Al-Thani voru kynnt í september sl. Ekkert lá fyrir á þeim tíma að áhætta sjeiksins af viðskiptunum væri engin og ekki lá fyrir að Ólafur Ólafsson hefði fjármagnað þau til helminga með láni frá Kaupþingi, án persónulegrar ábyrgðar. Það er hins vegar sjálfstætt athugunarefni hvort sú staðreynd, að þeir hafi látið hjá líða að tilkynna um tilurð viðskiptanna, falli undir undir áðurnefnt ákvæði um markaðsmisnotkun.

Getuleysi stjórnvalda og fjármálaeftirlits til að upplýsa um meinta hvítflibbaglæpi í bankaheiminum hefur legið undir gagnrýni almennings. Á netinu krefst almenningur aðgerða vegna meintra brota og vill eignir auðmanna kyrrsettar. Hafa skilvirk viðbrögð danskra stjórnvalda í máli Steins Baggers verið nefnd í þessu samhengi. Brot hans voru hins vegar í reynd hreinn þjófnaður og svikamyllan svo víðtæk að önnur eins dæmi þekkjast vart á Norðurlöndum. Auk þess var hann á flótta undan réttvísinni í tíu daga áður en hann gaf sig sjálfur fram. Í 76. gr. hlutafélagalaga segir að stjórn hlutafélags megi ekki gera neinar ráðstafanir sem bersýnilega eru til þess fallnar að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa. Ef hluthafar Kaupþings telja sig hlunnfarna vegna viðskipta rétt fyrir hrunið eiga þeir þess kost að stefna stjórn félagsins og krefjast skaðabóta. Vilhjálmur Bjarnason lét reyna á þetta vegna kaupa þáverandi stjórnar Glitnis á hlutabréfum Bjarna Ármannssonar á yfirverði og vann sitt mál í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þeirri niðurstöðu verður áfrýjað til Hæstaréttar. Starfsmenn hinna almennu lánanefnda bankanna voru oftast starfsmenn skipaðir af stjórnendum og stjórn bankanna og undir agavaldi þeirra. Í lögum um fjármálafyrirtæki er fjallað sérstaklega um heimild stjórnarmanna til afskipta af einstökum málum.

Er sérstaklega tekið fram að stjórn skuli ekki taka þátt í ákvörðunum um einstök viðskipti, nema umfang þeirra sé verulegt miðað við stærð fyrirtækisins. Þar segir jafnframt að einstakir stjórnarmenn skuli ekki hafa afskipti af ákvörðunum um einstök viðskipti.(mbl.is)

Miklar lánveitingar Kaupþings til Ólafs Ólafssonar og fleiri rétt fyrir fall banksns vekja miklar grunsemdir og  hvort sem  þær standast lög eða ekki tel ég,að  þar hafi verið um fullkomlega óeðlilegar ráðstafanir að ræða,sem mundu veikja bankann,þegar  hann hafði þörf fyrir mikið lausafé.

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


Bloggfærslur 25. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband