Miðvikudagur, 7. janúar 2009
ISG: Ekki þörf á þingkosningum í vor,ef ákveðið verður að sækja um aðild að ESB
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist ekki sjá ástæðu til þess að fara í kosningar í vor, verði tekin ákvörðun um það fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið á vormánuðum. Þetta sagði Ingibjörg í Kastljósi nú í kvöld.
Ingibjörg benti á að ef stjórnvöld tækju ákvörðun um að sækja um aðild að Evrópusambandinu yrði að rjúfa þing og boða til kosninga. Hún sagði jafnframt að kosið hefði verið til þings fyrir 18 mánuðum síðan og mynduð ríkisstjórn. Sú stjórn væri að vinna að því að byggja upp eftir kerfishrunið sem hefði orðið.(visir,is)
Ingibjörg Sólrún staðfesti það sem hún hefur sagt áður,að ef kjósa ætti um aðildarviðræður væri eðlilegt að kjósa til þings um leið.Hún sagði,að þær raddir heyrðust innan Samfylkingarinnar,að bankahrunið hefði verið tilefni til kosninga og jafnvel stjórnarbreytingar.En hún teldi,að stjórnin þyrfti að ljúka sínu verki,sem hafið væri,vegna bankahrunsins,
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 7. janúar 2009
Ísraelsmenn eru sekari
Mér virðist,að Ísraelsmenn séu sekari í átökunum í Gaza en Palestínuarabar.Ísraelsmenn víla ekki fyrir sér að skjóta á saklausa borgara,jafnvel á skóla og sjúkrahús. Það er forkastanlegt.Palestínuarabar eru ekki saklausir og Hamassamtökin ,sem ráða Gaza hafa drýgt margan glæpinn gegnum árin.En í dag hefur Ísrael gengið of langt.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 7. janúar 2009
Hægri sjónarmið í heilbrigðiskerfinu
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur í hyggju að gera umtalsverðar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á næstunni og voru þær breytingar kynntar á fundi nú klukkan tvö.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að skipulagsbreytingarnar byggist á vinnu sem farið hefur fram á vegum heilbrigðisráðuneytisins undanfarna mánuði, eða frá því ný lög um heilbrigðisþjónustu tóku gildi haustið 2007.
Með skipulagsbreytingunum hyggst ráðherra ná fram hagræðingu í rekstri heilbrigðisstofnana víðs vegar um landið og treysta um leið undirstöður grundvallarstarfsemi heilbrigðisþjónustunnar," segir í tilkynningunni.
Breytingarnar hafa verið unnar í samráði við stjórnendur stofnananna sem þær taka til og meginmarkmið þeirra hafa verið kynnt starfsmönnum viðkomandi stofnana. Á næstu dögum verður unnið með stjórnendum stofnana að útfærslu breytinganna hvað varðar tilfærslur verkefna og starfsfólks. Þetta verður gert í vinnuhópum sem skipaðir verða úr hópi stjórnenda stofnananna og skila þeir útfærslu sinni til ráðherra fyrir 19. janúar 2009," segir einnig.
Megin breytingarnar verða þessar að því er varðar spítalarekstur á Höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess:
- St. Jósefsspítala-Sólvangi verður alfarið falið hlutverk á sviði öldrunarlækninga og hvíldarinnlagna
- Sérfræðingum og fagfólki, sem þar hafa gert skurðaðgerðir, verður boðin aðild að því að byggja upp skurðstofurekstur í nýrri aðstöðu á Suðurnesjum
- Meltingasjúkdóma - og lyflækningadeild verður tengd starfsemi á Landspítalans og hin góða reynsla af göngudeildarstarfsemi á St. Jósefsspítala þróuð með sérfræðingum þaðan
- Landspítalinn mun yfirtaka skurðstofurekstur á Selfossi
- Vaktir á skurðstofum á Selfossi og í Keflavík verða lagðar af
Þá segir að breytingarnar á landsbyggðinni feli í sér verulega einföldun stjórnsýslu stofnana með sameiningu þeirra og ákvörðun um stóraukna samvinnu þeirra. Er þetta meðal annars gert í framhaldi af setningu nýrra laga um heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi fyrir rúmu ári.
Þetta eru helstu breytingarnar á landsbyggðinni:
- Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar á Norðurlandi verða sameinaðar í eina undir forystu Sjúkrahússins á Akureyri, sem verður Heilbrigðisstofnun Norðurlands og mun m.a. taka við hlutverki ráðuneytisins varðandi samning um heilsugæsluna á Akureyri
- Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar á Vesturlandi verða sameinaðar í eina með höfuðstöðvar á Akranesi
- Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja verður sameinuð Heilbrigðisstofnun Suðurlands sem jafnframt tekur við umsjón með samningi sem í gildi er milli Heilbrigðisstofnunarinnar á Höfn í Hornafirði og heilbrigðisráðuneytisins
- Heilbrigðisstofnunin á Patreksfirði sameinast Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sem hefur höfuðstöðvar á Ísafirði
- Aukið verður enn frekar samstarf milli Heilbrigðisstofnunar Austurlands og sjúkrahússins á Akureyri
Einfaldari stjórnsýsla, hagkvæmari rekstur og aukin samvinna stofnanna er talin geta dregið verulega úr útgjaldaaukningunni sem er staðreynd varðandi þær stofnanir sem hér eiga í hlut, en markmið breytinganna er að slá skjaldborg um og tryggja kjarnastarfsemi þessara mikilvægu stofnana á sviði heilbrigðismála á erfiðum tímum," segir að lokum í tilkynningunni frá ráðuneytinu.
(visir,is) Ekki líst mér alls kostar á væntanlegar breytingar í heilbrigðisþjónustunni. Mér sýnist,að halda eigi áfram á þeirri braut,sem Guðlaugur Þór hefur markað að auka íhalds-hægri sjónarmið í heilbirgðisþjónustunni.Nýlega hefur hann tilkynnt,að tekin verði upp komugjöld þegar fólk leggst inn á spítala. Verða menn að greiða 6 þús. kr. þegar þeir leggjast inn á spítalan en það hefur verið aðalsmerki sjúkrahúsa hér,að vistin væri ókeypis og Samfylkingin hafði lýst því yfir,að svo yrði áfram.Leggja á niður St.Jósefsspítala,sem hefðbundið sjúkrahús og breyta því í öldrunarheimili. St.Jósefsspítali hefur verið mjög góður spítali með færum skurðlæknum og meltingarsérfræðingum. Sú starfsemi verður nú lögð niður. Þegar sjúkrahúsin í Reykjavík voru sameinuð átti að spara og hagræða mikið. En ríkisendurskoðun komst að þeirria niðurstöðu að svo hefði ekki orðið en kostnaður af sameiningunni hefði orðið mikill.Ég er hræddur um,að eins geti farið nú. Það er verið að gera miklar breytingar nú til þess að geta komið ákveðinni starfsemi í einkarekstur.Þetta slær mig illa.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 7. janúar 2009
Forsetinn gekk of langt í stuðningi við útrásarvíkinga
Í bókinnni Saga af forseta segir Ólafur Ragnar Grímsson,forseti, itarlega frá samskiptum sínum við svokallaða útrásarvíkinga og stuðningi sínum við þá.Þar kemur fram, að forsetinn hefur lagt lið mörgum útrásarverkefnum,ekki aðeins almennt heldur einstökum verkefnum,fyrir einstaka auðmenn,t.d. Björgólf Thor Bjórgólfsson .Ég geri ekki athugasemd við það,að forsetinn veiti íslensku viðskiptalífi lið .t.d. með því að taka þátt í viðskiptasendinefndum til Asíu,þar sem oft getur verið mikilvægt að opna leiðir almennt til viðskipta.En ég tel orka tvímælis,að forsetinn sé að mæla með einstökum viðskiptaverkefnum og styðja í því sambandi fremur einn en annan.Forseti Ísland má ekki mismuna.Við lestur bókarinnar verður mér ljóst,að fosetinn hefur gengið of langt í þessu efni. Hann hefur gengið of langt í stuðningi við einstaka útrásarvíkinga. En forsetinn hefur beðist afsökunar á þessu í ræðu.Og það er virðingarvert.
Björgvin Guðmundsson
Miðvikudagur, 7. janúar 2009
Ríkisstjórnin skerðir kjör eldri borgara og öryrkja
Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík (FEB) mótmælti kjaraskerðingu eldri borgara um áramót í ályktun,sem gerð var um jólin.Í ályktun FEB sagði svo:
Kjaranefnd FEB mótmælir harðlega kjaraskerðingu aldraðra,sem ákveðin var í endurskoðuðu fjárlagafrumvarpi og kom til framkvæmda um áramót. Samkvæmt þessari breytingu skerðast kjör 3/4 lífeyrisþega TR,þar eð lífeyrir þeirra hækkaði aðeins um 9,6% um áramót en átti að hækka um 20%,ef fullar verðlagsbætur hefðu komið á lífeyrinn eins og lögbundið var áður. Aðeins 1/4 lífeyrisþega fékk fullar verðlagsbætur á lífeyri sinn. Er þar um að ræða þá,sem eru á lægstu bótum. Kjaranefnd fagnar því,að lægstu bætur skerðast ekki.
Kjaranefnd bendir á,að Hagstofan hefur nú birt nýja könnun um meðaltalsútgjöld heimilanna í landinu. Samkvæmt henni nema meðaltalsútgjöld einhleypinga 282 þús. kr. á mánuði án skatta. Það er stefna FEB,að lífeyrir aldraðra hækki í þessa fjárhæð. Vegna erfiðleika í fjármálum þjóðarinnar telur kjaranefnd,að framkvæma megi slíka leiðréttingu á lífeyri aldraðra í áföngum. Fyrsti áfangi leiðréttingarinnar komi til framkvæmda strax í byrjun árins.
Ríkisstjórnin afsakar allar sínar gerðir nú með fjármálakreppunni.En fjármálakreppan afsakar ekki að skerða kjör eldri borgara og öryrkja.Áður en það er gert á að skera hraustlega niður í ríkiskerfinu,leggja niður óþarfar stofnanir eins og varnarmálastofnun og jafnvel sendiráð.En kjör aldraðra og öryrkja eru það slæm,að ekki má skerða þau. Það þarf að bæta þau eins og sést best á neyslukönnun Hagstofunnar.
Björgvin Guðmundsson