Sunnudagur, 22. mars 2009
M;orgunblaðið níðir Jóhönnu Sigurðardóttur
Í dag birtist í Mbl. grein eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur um Jóhönnu Sigurðaróttur.Þetta er hrein níð grein um Jóhönnu.Boðskapur greinarinnar er sá,að vegna þess að Jóhanna tók sér langan tíma til þess að ákveða hvort hún byði sig fram til formanns Samfylkingarinnar yrði hún óhæfur formaður.Hún hefði nánast látið neyða sig í starfið og hefði engan áhuga á því.Þetta er fráleitur málflutningur.Það er mjög eðlilegt,að Jóhanna hafi tekið sér langan umhugsunartíma,þar eð hún er forsætisráðherra og það var ekki sjálfgefið að hún bætti á sig formennskunni. Fyrir viku birtist svipuð níðgrein um Jóhönnu eftir Agnesi Bragadóttur.Sú grein var jafnvel eenn svæsnari.Þar var t.d. sagt,að Jóhanna liti aldrei framan í viðmælanda sinn.Algert rugl. Hvað gengur þessum blaðamönnum til. Geta þeir ekki unnt Samfylkingunni þess að eiga vinsælan foringja.Þurfa þeir að reyna að níða hann niður.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 22. mars 2009
Spron gat ekki staðið við skuldbindingar sínar
Seðlabankinn mat stöðu SPRON þannig á föstudag að hann gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavinum sínum eða kröfuhöfum. Yfirvofandi vandamál sparisjóðsins gætu einnig haft neikvæð og keðjuverkandi áhrif á önnur fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur birt á vef sínum ákvörðun um að beita heimildum laga til að taka yfir vald hluthafafundar SPRON og víkja stjórninni þegar frá. Eins og fram kom á blaðamannafundi viðskiptaráðherra í gær fólst í ákvörðuninni að skipuð er skilanefnd til að fara með öll málefni SPRON. Innlánin eru færð til Nýja Kaupþings banka og á það að gerast núna klukkan 9.
Í ákvörðuninni kemur fram að frá lokum október hefur eiginfjárstaða SPRON verið undir lögbundnum mörkum en Fjármálaeftirlitið veitt ítrekaða fresti í því skyni að gefa SPRON, í samvinnu við kröfuhafa, kost á að endurskipuleggja fjárhag sjóðsins á raunhæfan hátt.
Fyrir rúmri viku, eða 12. mars, óskaði Fjármálaeftirlitið eftir nánari upplýsingum um það hvernig SPRON hygðist uppfylla kröfur um nauðsynlegt eigið fé og laust fé og upplýsti alþjóðlega kröfuhafa um það síðastliðinn miðvikudag. Þar þess getið að leysa þyrfti eiginfjárvandann með öðrum aðferðum en lánalengingum.
Í svari SPRON sl. miðvikudag benti sparisjóðurinn á sölu fasteignabréfa til Íbúðarlánasjóðs sem leið til lausnar á fjármögnun félagsins. Er þar ráðgert að selja 43 milljarða kr. skuldabréfasafn og í framhaldinu annað safn veðskuldabréfa í erlendri mynt fyrir 20 milljarða kr.
Seðlabankinn benti á að ólíklegt væri að þessi sala bætti eiginfjárstöðu Sparisjóðsins. Til þess verði ávöxtunarkrafan í þessum viðskiptum að vera lægri en sú krafa sem liggur til grundvallar bókfærðu verði bréfanna hjá sparisjóðnum.
Jafnframt benti Seðlabankinn á að til þess að viðskiptin við Íbúðarlánasjóð bæti lausafjárstöðu sparisjósins þurfi kaupverðið að vera hærra en nemur þeim lánum sem sparisjóðurinn hefur fengið hjá Seðlabankanum gegn veði í umræddum fasteignaveðsbréfum.
.
Nýi Kaupþing banki yfirtekur skuldbindingar SPRON vegna innstæðna. Allir skilmálar innlána haldast óbreyttir. Yfirdráttur á veltureikningum flyst með sama hætti yfir.
Nýi Kaupþing banki tekur þó ekki peningamarkaðsinnlán frá fjármálafyrirtækjum.
Jafnframt yfirtekur Nýja Kaupþing skuldbindingar samkvæmt inn- og útflutningsábyrgðum, ábyrgðir vegna efnda fyrirtækja og einstaklinga sem tengjast reglulegri starfsemi. Ekki eru yfirteknar skuldbindingar dótturfélaga erlendis, fyrirtækja í greiðslustöðvun, skuldbindingar þeirrar sem eiga virkan eignarhluta í SPRON ofl.
Stofnað verður sérstakt hlutafélag í eigu SPRON til að ganga frá þessum viðskiptum við Nýja Kaupþing. Á að vera búið að ganga frá þeim á hádegi á morgun.(mbl.is)
Það er furðulegt,að Spron skuli hafa snúið við rekstri sínum á örfáum árum.Sparisjóðurinn var mjög sterkur áður en hann leiddist út í brask. Spron taldi nauðsynlegt eins of fleiri fyrirtæki að taka upp hlutafélagsform,sagði,að þá ætti hann auðveldara með að keppa við önnur fjármálafyrirtæki.En þessi ákvörðun varð banabiti Spron. Síðan bættist það við,að' ýmsir hluthafar( stofnfjáreigendur) seldu hluti sína og tóku stórfé út úr Spron.Það var algerlega siðlaust.
Björgvin Guðmundsson