Sunnudagur, 29. mars 2009
Samfylking vill eitt ráðuneyti efnahagsmála
Málefnahópur á landsfundi Samfylkingarinnar sem nú stendur yfir í Smáranum, Kópavogi, leggur til að efnahagsmál og málefni fjármálamarkaða verði sameinuð í einu ráðuneyti efnahagsmála.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur og frambjóðandi í Reykjavík, segir hér átt við þá þætti sem snúa að efnahagsmálum úr ráðuneytum fjármála og viðskipta og forsætisráðuneyti. Ástæðan er sú að iðulega skorti upplýsingaflæði milli þessara aðila og með þessu náist samstilltari og markvissari aðgerðir.
Sigríður segir meginþemað í þessum ályktunum vera að skapa traust á hagkerfinu með því að lýsa því yfir að Ísland stefni að aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Sigríður bendir ennfremur á að nauðsynlegt sé að uppfylla Maastricht-skilyrðin um efnahagslegan stöðugleika, meðal annars vegna samningsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, hvort sem sótt verði um aðild að ESB eður ei.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 29. mars 2009
Jóhanna vill félagshyggjustjórn og aðild að ESB
Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar telur að það sé Íslandi fyrir bestu að Sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórnarandstöðu eftir kosningar. Hún útilokar þó ekki samstarf. Þetta kom fram í ræðu hennar á landsfundi Samfylkingarinnar í dag. Hún vill ganga til samninga við Evrópusambandið eftir kosningar og bera samning um aðild undir þjóðaratkvæði.
Í stjórnmálaályktun Samfylkingarinnar segir að hagsmunum Íslands að loknum kosningum sé best borgið með félagshyggjustjórn. Vinstri græn útilokuðu á landsfundi sínum fyrir viku stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokki eftir næstu kosningar. Samfylkingin ályktaði ekki á sama hátt en Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins vill vinstristjórn. Jóhanna var ákaft hyllt í lok ávarpsins.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 29. mars 2009
Bjarni kosinn formaður
Bjarni Benediktsson var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í dag. Bjarni fékk 990 atkvæði af 1705 greiddum atkvæðum eða 58,1%. Kristján Þór Júlíusson fékk 688 atkvæði eða 40,4%. Aðrir fengu 10 atkvæði eða færri, 5 atkvæði voru ógild og 2 auð.
Bjarni þakkaði fundargestum og sagðist vilja taka orð tengdaföður síns sér í munn: Ég er eins og skyr, ég er mjög hrærður."(mbl.is)
Þetta er ágæt útkoma hjá Bjarna.Að visu finnst mér Kristján Þór hafa náð jafnvel betri árangri en ég átti von á. Nú er eftir að sjá hvernig Bjarni stendur sig sem formaður.Sumum í Sjálfstæðisflokknum finnst hann ekki hafa nægilega reynslu og að Kristjan Þór sé meiri reynslubolti.En Bjarni er geðþekkur maður og sjálfsagt duglegur.Hann fær eldskírnina í kosningabaráttunni.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 29. mars 2009
Hættuástand hjá bönkunum þegar 2006
Árnór Sighvatsson hagfræðingur,aðstoðarbankastjóri Seðlabankans var í ítarlegu viðtali Á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.Hann kom víða við.M.a. sagði hann,að vegna ofþenslu bankanna hefði þegar verið komið hættuástand hjá bönkunum 2006.Það vill segja,að þegar áður en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var mynduð var hætta á ferðum í bönkunum,þeir bólgnuðu svo ört´út.
Arnór sagði,að skerpa þyrfti á eftirlitsskyldum Fjármálaeftirlits og Seðlabanka með fjármálastofnunum. Það hefði verið svo,að eftirlitsaðilar hefðu fyrst og fremst verið að fylgjast með því að lögum og reglum væri fylgt en ekki að fylgjast með .því t.d. að bankarnir skuldsettu sig ekki um of.Arnór gagnrýndi miklar lánveitingar bankanna til eigenda sinna og skyldra aðila.Hann sagði,að eigið fé bankanna hefði ekki verið eins mikið (sterkt) eins og ætla hefði mátt af bókum bankanna.
Arnór var spurður um verðbólguna og verðhjöðnun,sem nú væri spáð.Hann sagði,að verðhjöðnun hér þyrfti ekki að vera eins varasöm og í mörgum öðrum löndum.T.d. gerði verðtryggingin hér það að verkum,að skuldir lækkuðu um leið og verðhjöðnun yrði.Verðhjöðnun hefði orðið í Ísrael oftar en einu sinni og hún hefði ekki reynst Ísrael illa.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. mars 2009
Samfylkingin:Kvótar verði innkallaðir
Samfylkingin greiðir nú atkvæði um stefnumál sín á lokadegi landsfundar í Smáranum. Endurreisnarnefnd landsfundar vill að dregið verði úr vægi verðtryggingar í lánaviðskiptum - en ekki að hún verði afnumin. Umhverfishópurinn leggur til að kvótar verði innkallaðir í Auðlindasjóð á næstu tuttugu árum.
Ekki er búist við átökum við afgreiðslu mála á landsfundi Samfylkingarinnar. Fundurinn hófst klukkan tíu í morgun með kynningu á frambjóðendum til ritara, gjaldkera og formanns framkvæmdastjórnar, en Rannveig Guðmundsdóttir lætur af því starfi og eru þar tveir í framboði, Margrét Björnsdóttir og Ari Skúlason.
Nú stendur yfir umræða og afgreiðsla tillagna málefnanefndanna. Málefnanefnd efnahagslegrar endurreisnar vill að dregið verði úr vægi verðtryggingar í lánaviðskiptum og að leitað verði leiða til að auka framboð óverðtryggðra íbúðarlána. Eins að aukin stöðugleiki samfara aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði nýttur til að innleysa verðtryggðar skuldbindingar fyrir óverðtryggð evrubréf.
Skiptar skoðanir eru þó á landsfundinum um verðtrygginguna og óvíst hver niðurstaðan verður. Áætlað er að fundinum ljúki um fjögurleytið í dag með stefnuræðu nýs formanns flokksins - Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem fékk rússneska kosningu í embættið í gær.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 29. mars 2009
Eignir LSR lækkuðu um 30 milljarða sl. ár
Eignir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins lækkuðu um 30 milljarða á síðasta ári, samkvæmt uppgjöri sjóðsins sem birt var í dag.
Hrein eign lífeyrissjóðsins í árslok 2008 til greiðslu lífeyris nam 287 milljörðum en í lok árs 2007 var hún 317 milljarðar. Raunávöxtun sjóðsins á árinu 2008 var neikvæð um 25 prósent. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins starfar í þremur deildum, A-deild, B-deild og séreignardeild. Heildarskuldbindingar A deildar sjóðsins umfram eignir námu tæpum 47 milljörðum króna í lok árs 2008.
Sjóðurinn er með ríkisábyrgð og eru réttindi sjóðfélaga hans því varin gegn tapi, sem lendir þess í stað á skattgreiðendum.
Það hefur lengi verið álitamál hvort réttlætanlegt sé að halda uppi slíku tvöföldu lífeyriskerfi, þar sem einn hópur þjóðfélagsins búi við önnur kjör en aðrir hópar.
Í uppgjöri sjóðsins segir að erfiðleikar á fjármálamörkuðum hafi haft mikil áhrif á afkomuna. Í kjölfar falls íslensku viðskiptabankanna hafi hlutabréf og víkjandi skuldabréf sem sjóðurinn átti í bönkunum verið afskrifuð. Lífeyrissjóðurinn hefur einnig fært niður skuldabréf í eignasafni sínu vegna óvissu um stöðu margra fyrirtækja. (visir.is)
Þetta er mikil eignalækkun hjá LSR.Eðlilegt er,að rætt sé hvort ríkið eigi að ábyrjast skuldbindingar LSR en í því sambandi ber að hafa í huga að það var hluti af kjörum ríkisstarfsamann,að fá betri lífeyrisréttindi en aðrir.Ríkisstarfsmenn fengu minni launahækkanir en launþegar á frjálsum markaði og sættu sig við það vegna betri lífeyrisréttinda.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 29. mars 2009
Leiðtogaskipti í Samfylkingu gengu vel fyrir sig
Jóhanna Sigurðardóttir hefur tekið við formennsku í Samfylkingunni.Hún flutti skelega ræðu eftir að hún hafði verið kosinn.Hún sagðist ekki vera formaður til bráðabirgða,hún sagðist ekki vera formaður upp á punt.Það mátti skilja á henni að hún ætlaði að vera formaður svo lengi sem Samfylkingin vildi nýta starfskrafta hennar.Með þessum orðum svaraði hún vel áróðri andstæðinganna,sem hafa haldið því fram að hún ætti aðeins að vera formaður í stuttan tíma.Einhverjir í Samfylkingunni voru hræddir um að Jóhanna ætlaði fljótlega að hætta í stjórnmálum. En hafi svo verið hefur Jóhanna breytt um afstöðu.Hún ætlar að vera lengi formaður.Þetta eru slæmar fréttir fyrir andstæðingana,þar eð Jóhanna er í dag vinsælasti stjórnmálamaður landsins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skilaði vel af sér. Hún hefur látið af formennsu af heilsufarsástæðum og flutti mjög góða ræðu þegar hún skilaði af sér. Hún rakti aðdraganda bankahrunsins og skýrði þróunina frá sínum sjónarhóli.Hún sagði,að Samfylkingin hefði ekki gert nægar kröfur þegqr stjórnin með Sjálfstæðisflokknum var mynduð. Ég er sammála því og skrifaði oft um það í byrjun stjórnarstímabilsins. Ingibjörg Sólrún sagði,að hún og stjórnin hefðu sýnt andvaraleysi.Það er sjálfsagt rétt.
Ég tel,að þurft hefði að grípa í tímana vegna útþenslu bankanna mikið fyrr en við myndun fyrri stjórnar.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. mars 2009
Skilanefnd sett yfir Sparisjóðabankann
Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd yfir Sparisjóðabanka Íslands, en ákvörðun um þetta var tekin á föstudag. Tæpri viku fyrr tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um ráðstöfun eigna og skulda bankans til Seðlabankans og Kaupþings.
Skilanefndin tekur við öllum heimildum stjórnar félagsins samkvæmt ákvæðum neyðarlaganna. Formaður skilanefndarinnar er Þorvarður Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi. (visir.is)
Það kemur nokkuð á óvart að búið sé að skipa skilanefnd yfir Sparisjóðabankann,þar eð Seðlabankanum hafði verið falin verulegur hlutii af starfsemi bankans.
Björgvin Guðmundsson