Fimmtudagur, 21. janúar 2010
Öryrkjabandalagið mótmælir kjaraskerðingu
Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeim kjaraskerðingum sem felast í því að aftengja lög er tryggja hækkun lífeyris miðað við vísitölu en halda verðtryggingu lána, sem hefur hækkað húsnæðiskostnað upp úr öllu valdi.
Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeirri breytingu á lögum er gera Úrskurðarnefnd almannatrygginga kleift að beita aðfararhæfi gegn þeim er Tryggingastofnun ríkisins telur sig hafa ofgreitt. Með þessu getur ÚRAL gengið að eignum fólks án dómsúrskurðar, sem þarf við almennar skuldir. Lífeyrisþegar eru þannig orðnir annars flokks borgarar.
Öryrkjabandalag Íslands mótmælir þeirri áráttu stjórnvalda að byrja ávallt á lífeyrisþegum þegar þarf að draga saman seglin. Með því að skerða lífeyri fólks og auka kostnaðarþátttöku þess í heilbrigðiskerfinu verða einstaklingarnir veikari fyrir og þurfa á dýrari úrræðum að halda síðar.
Ég tek undir mótmæli öryrkja.
Björgvin Guðmundsson
Um ÖBÍ
- Starfsmenn
- Lög ÖBÍ
- Stefna ÖBÍ
- Stjórn ÖBÍ
- Nefndir ÖBÍ
- Fundargerðir
- Ársskýrslur
- Ályktanir
- Lögfræðiþjónusta
- Djáknaþjónusta
- Kvennahreyfing ÖBÍ
- Vinnustaðir ÖBÍ
- BRYNJA - Hússjóður Öryrkjabandalagsins
- Aðildarfélög
- Tímarit ÖBÍ
- Styrkir
- Myndasafn
- Fréttir
- Viðburðadagatal
- Tenglar
- Hvatningarverðlaun ÖBÍ
- Greinasafn-skýrslur
- Verjum velferðina
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.