Samfylking og VG næðu meirihluta í borgarstjórn

Sjálfstæðiflokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Samfylkingin og Vinstri græn í Reykjavík gætu hins vegar myndað saman meirihluta í borgarstjórn, þrátt fyrir að tapa lítillega frá síðustu könnun.

Sjálfstæðiflokkurinn bætir við sig fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup. Samfylkingin og Vinstri græn í Reykjavík gætu hins vegar myndað saman meirihluta í borgarstjórn, þrátt fyrir að tapa lítillega frá síðustu könnun.

Gallup spurði nærri 2.600 atkvæðisbæra Reykvíkinga að því hvað þeir myndu kjósa, yrði gengið til borgarstjórnarkosninga nú. Rúm 70% svöruðu. Aðrir en stóru flokkarnir fjórir fengju samanlagt 2% atkvæða.

41% myndi kjósa sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði til borgarstjórnar nú samkvæmt könnun Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn yrði því stærsti flokkurinn með sjö borgarfulltrúa. Þetta er tveimur prósentustigum meira en í síðustu könnun fyrir mánuði en einu prósentustigi minna en í kosningunum 2006. Framsóknarflokkurinn fengi 5% nú, rétt eins og síðast, sem er litlu minna en í kosningunum næði ekki inn manni.

Þriðjungur ætlar sér að kjósa Samfylkinguna, sem tapar einu prósentustigi frá síðustu könnun, en er þó áfram vel yfir kjörfylgi. Þetta myndi skila fimm borgarfulltrúum.

19% segjast ætla að kjósa Vinstri græn sem tapar tveimur prósentustigum frá því síðast en fékk 14% í kosningunum. Tveir borgarfulltrúar þar.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er því fallinn samkvæmt þessu. VG og Samfylkingin gætu hins vegar myndað nýjan átta manna meirihluta. Hvor um sig gæti líka gangið í eina sæng með sjálfstæðismönnum. Meirihluti V og D hefði tíu borgarfulltrúa.

Sterkasti meirihlutinn yrði undir listabókstöfunum S og D og hefði 12 borgarfulltrúa af 15.(ruv,is)

Það er athyglisvert,að Samfylking og VG næðu hreinum meirihluta í borgarstjórn miðað við könnun

Capacent Gallup.Það er þá unnt  að mynda sams konar meirihluta í Reykjavík og er á alþingi.Ég tel að það væri æskilegt.

 

Björgvin Guðmundsson


 

 


    « Síðasta færsla | Næsta færsla »

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband