Miðvikudagur, 3. febrúar 2010
Þóra sýndi forsætisráðherra ókurteisi
Þóra Arnórsdóttir tók viðtal við Jóhönnu Sigurðarsdóttur forsætisráðherra í Kastljósi í gærkveldi.Í viðtalinu sýndi Þóra Jóhönnu mikla ókurteisi og valtaði hvað eftir annað yfir hana.Jóhanna fékk ekki að svara spurningum Þóru þar eð Þóra greip alltaf fram í fyrir henni.En þegar Jóhanna fékk að svara voru svör hennar góð og skilmerkileg.Jóhanna sýndi mikla stillingu í viðtalinu,var róleg og yfirveguð þrátt fyrir ókurteisi fréttamannsins. Framkoma fréttamannsins var óafsakanleg.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég og kona mín vorum einmitt að ræða þessa framkomu Þóru og hversu stillt Jóhanna var gagnvart þessum dónaskap.
Hjálmtýr V Heiðdal, 3.2.2010 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.