Miðvikudagur, 10. febrúar 2010
Atvinnuleysi eykst.Mælist nú 9%
Greint er frá þessu á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að atvinnuleysið er 9,5% á höfuðborgarsvæðinu en 8,1% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 14,5% en minnst á Vestfjörðum 3,4%. Atvinnuleysi eykst um 7,4% meðal karla en um 5,7% meðal kvenna. Atvinnuleysið er 9,9% meðal karla og 7,9% meðal kvenna.
Alls voru 16.382 atvinnulausir í lok janúar. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 13.424, af þeim voru 1.569 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl og á kynningarfundi.
Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá janúar til febrúar m.a. vegna árstíðasveiflu. Ekki hafa orðið miklar breytingar á nýskráningum fyrstu daga febrúar og áætlar Vinnumálastofnun að atvinnuleysið í febrúar breytist lítið og verði á bilinu 8,9%-9,3%. Í fyrra var atvinnuleysið 8,2% í febrúar. (visir.is)
Þetta eru slæmar fréttir. Atvinnuleysið hefur aukist úr 8% í 9 %.Að vísu var búið að spá því að atvinnuleysið mundi aukast yfir háveturinn. Því miður hefur ríkisstjórninni ekki tekist að koma í gang ýmsum framkvæmdum sem hún ætlaði að efna til í því skyni að auka atvinnu. Ríkisstjórnin verður að taka rögg á sig og setja í gang nýjar framkvæmdir. Það þolir enga bið. Atvinnuleysið er mesta bölið.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.