Meirihluti fyrirtækja nú á móti aðild að ESB

Tæplega sextíu prósent forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja telja hagsmunum íslensks viðskiptalífs betur borgið utan Evrópusambandsins.

Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Viðskiptaráð. En fyrir ári síðan var meirihluti forsvarsmannanna hlynntur því að sótt yrði um aðild að ESB og taldi umsókn geta bætt stöðu efnahagsmála.

Nú segir 31 prósent aðspurða að viðskiptalífinu væri betur borgið innan ESB.
Einnig var spurt um afstöðu til gjaldmiðilsins. Meirihluti forsvarsmanna fyrirtækjanna, 51 prósent, telur viðskiptalífið betur sett með annan gjaldmiðil, en 37 prósent vilja halda í krónuna.

Í tilkynningu frá Viðskiptaráði segir að niðurstöður þessara spurninga leiði í ljós að níutíu prósent þeirra, sem telja hagsmunum íslensks viðskiptalífs mikið betur borgið innan ESB, telja það einnig betur sett með annan gjaldmiðil. En 69 prósent þeirra sem telja hagsmununum mikið betur borgið utan ESB telja betra að vera með krónuna.

Viðskiptaráð telur niðurstöðurnar endurspegla óvissu sem ríki um stefnu stjórnvalda í gjaldeyris-, peninga-, og Evrópumálum. Brýnt sé að óvissunni verði eytt hið fyrsta.

Könnunin verður kynnt á komandi Viðskiptaþingi og tekur einnig til úrræða fjármálastofnana vegna rekstrarvanda fyrirækja og breytingar á skattakerfi. -//// (visir.,is)

Þessi viðsnúningur atvinnulífsins í afstöðu til ESB er athyglisverður.Svo virðist sem afstaða fyrirtækja hafi breyst á sama hátt og almennings en meirihluti almennings er nú á móti aðild að ESB vegna framkomu Breta og Hollendinga við Ísland í Icesave deilunni.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband