Dræmar undirtektir Breta og Hollendinga

 „Ég held að það sé óhætt að segja að þeir hoppuðu ekki hæð sína í loft upp af hrifningu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um viðbrögð Breta og Hollendinga við hugmyndum Íslendinga um nýja lausn Icesave-málsins.
Samninganefndir ríkjanna hittust í Lundúnum í gær. Íslenska nefndin kynnti hugmyndir að nýrri nálgun eða lausn og var, að sögn Steingríms, farið rækilega í gegnum málið. Spurðu viðsemjendurnir margra spurninga.
Að fundinum loknum ræddi Steingrímur í gegnum síma við íslensku samninganefndina, ásamt utanríkisráðherra og formönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Steingrímur gat í gærkvöldi ekki sagt til um hvort fundað yrði á ný í dag en kvaðst vona að svo yrði. „Ég vona að það séu einhverjir möguleikar á að þróa málið áfram,“ sagði hann en annar símafundur var áætlaður síðar í gærkvöld. Meta átti stöðuna í framhaldi hans.
Fram hefur komið, meðal annars í Fréttablaðinu, að tillögur Íslands að lausn málsins hafi verið kynntar Bretum og Hollendingum í síðustu viku. Steingrímur segir það ekki allskostar rétt; reynt hafi verið að halda íslensku samningsmarkmiðunum leyndum. Samræður íslenskra ráðamanna við breska og hollenska hafi fyrst og fremst snúist um að fá fund til að kynna tillögurnar. „Það var ekki búið að fara yfir hugmyndirnar í neinum efnisatriðum að heitið getur en við fullvissuðum þá um að við vissum hver væru lágmarksskilyrðin af þeirra hálfu til þess að hægt væri að tala saman og að þau væru uppfyllt af okkur.“ Steingrímur vill hvorki upplýsa um þau lágmarksskilyrði né hugmyndir Íslands. „Þetta er allt mjög viðkvæmt og þjónar ekki tilgangi að fara út það efnislega.“ Engu breyti þó Bretar og Hollendingar viti nú í hverju íslensku tillögurnar felast. „Það fer allt fram í trúnaði. Við ætlum ekki að semja í gegnum fjölmiðla,“ segir Steingrímur.
Íslensk stjórnvöld staðfestu fyrst síðdegis í gær hverjir sitja í íslensku viðræðunefndinni. Meðal nefndarmanna er Lárus Blöndal lögmaður sem er þeirrar skoðunar að Íslendingum beri ekki skylda til að ábyrgjast lágmarkstryggingu EES-samningsins. Steingrímur segir stjórnarandstöðuna hafa valið Lárus sem sinn fulltrúa í nefndina. Bandaríkjamaðurinn Lee C. Buchheit fer fyrir nefndinni. Steingrímur sagði að miðað við aðstæður hafi verið góður kostur að fá utanaðkomandi aðila að verkinu. Um sé að ræða þaulreyndan og harðskeyttan samningamann. „Á hann reynir nú og hann sýnir vonandi hvað í honum býr.“ segir Steingrímur. „Buchheit flytji þó ekki fjöll.“( visir.is)

Íslendingar hafa lagt fram nýjan umræðugrundvöll og ef fregnir eru réttar förum við nú fram á að vextir verði felldir niður.Varla var við því að búast að Bretar og Hollendingar mundu gleypa þá tillögu hráa. Það Þarf lengri tíma til þess að þeir samþykki hana ef þeir gera það nokkurn tímann. 

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband