Tóku tillögum Íslendinga fálega

Bretar og Hollendingar tóku fálega í tillögur Íslendinga í Icesave viðræðunum í vikunni. Búist er við svörum frá þeim við tillögum Íslendinga á næstu dögum. Stjórnarandstaðan er sátt við gang viðræðnanna.

Forystufólk stjórnmálaflokkanna að formanni Framsóknarflokksins undanskildum, áttu fund með samninganefnd Íslands í Icesaveviðræðunum í fjármálaráðuneytinu í morgun, en nefndin kom heim frá Lundúnum í gærkvöldi.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að ekki hafi verið ákveðið hvenær samninganefndir þjóðanna komi saman aftur.

„Þeir fengu hugmyndir frá okkur sem þeir töldu ekki grundvöll ti að halda áfram með en taka það samt fram að þeir vilja ekki slíta viðræðunum. Þannig að það er biðstaða í málinu," segir Steingrímur.

Fjármálaráðherra segist þó eiga von á því að hreyfing verði á málum næstu tvo til þrjá daga. Ekkert gagntilboð hafi verðið lagt fram að hálfu Breta og Hollendinga við hugmyndum íslensku samninganefndarinnar.

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Hreyfingarinnar, telur stöðuna í viðræðunum góða og á meðan Lee Buchheit stjórni viðræðunum fyrir Íslands hönd sé ekki hægt að fá verri samning en þann sem standi til að fella í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Nauðsynlegt sé að vinna að lausn málsins þannig að eitthvað taki við eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir samninganefnd Íslands hafa staðið sig sérstaklega vel. „Og haldið vel á þeim málstað sem við viljum tala fyrir og hefur flutt þau skilaboð, sem flokkarnir hérna heima voru sammála um, skýrt og skýrmerkilega til Hollendinga og Breta og ég er mjög sáttur við það."(ruv.is)

 

Við þurfum ekki að vera hissa á því þó Bretar og Hollendingar hafi tekið nýjum tillögum Íslendinga fálega.Við lögðum til að vextir yrðu felldir niður.Miðað við þá vexti,sem Árni Mathiesen samþykkt í samningum við Hollendinga haustið 2008 og miðað við þá vexti sem núverandi ríkisstjórn samþykkti á alþingi fyrir áramót er ekki að reikna með að Bretar og Hollendingar rjúki til að felli niður vextina að fullu.Von er að þeir þurfi tíma til að melta slíkar breytingar og ég hef raunar enga trú á að þeir samþykki þær.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband