Mánudagur, 22. febrúar 2010
Fjárforræði aldraðra sé virt
Á nýafstöðnum formannafundi Landssambands eldri borgara var eftirfarandi samþykkt:
Þjónustunefnd leggur megináherslu á að fjárforræði aldraðra sé virt enda telst það til grundvallarmannréttinda. Það er óviðunandi að þeir sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum hafi ekkert um sín fjármál að segja en fái þess í stað skammtaða vasapeninga. Því krefst þjónustunefndin þess að núverandi greiðslufyrirkomulag á öldrunarstofnunum verði lagt niður og fjárhagslegt sjálfstæði aldraðra verði tryggt.
Nefndin leggur jafnframt áherslu á að fjölga þjónustu- og búsetuúrræðum og valmöguleikum aldraðra. Þannig að þeir sem þess óska geti dvalið sem lengst á heimilum sínum og fái þar sem besta þjónustu, án þess að íþyngja fjölskyldum sínum. Jafnframt er lögð áhersla á að þeir sem þess óska geti dvalið á sambýlum þar sem hugað er að andlegum, tilfinningalegum, félagslegum og líkamlegum þörfum þeirra.
Þjónustunefnd skorar á stjórn LEB að beita sér fyrir því af fullum þunga að þessum grundvallarmannréttindum verði fullnægt sem fyrst.
Ég tek undir hvert orð í ályktun Landssambands eldri borgara.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.