Fimmtudagur, 25. febrúar 2010
IGS: Frjálshyggjan er sökudólgurinn
Meginorsök hrunsins er ekki að finna í aðgerðum eða aðgerðarleysi banka, eftirlitsaðila og stjórnvalda á Íslandi árið 2008. Þetta kemur fram í grein Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í nýjasta tímariti Máls og Menningar.
Grein Ingibjargar ber titilinn Háskaleg og ósjálfbær samfélagstilraun.
Þar vísar Ingibjörg í frjálshyggjustefnu Sjálfstæðisflokks og telur einboðið að sú stefna hafi skapað þær aðstæður hér á landi sem síðar urðu til þess að bankarnir hrundu.
Ingibjörg segir að íslensk bankakerfi hafi verið orðið of stórt fyrir íslenskt samfélag. Hvorki Seðlabankinn né ríkissjóður höfðu fjárhagslega getu til að verja bankana áhlaupi ef til þess kæmi. Það gat aldrei farið saman - að mati Ingibjargar - stórt alþjóðlegt bankakerfi og örsmátt hagkerfi sem byggðist á eigin mynt.
Við þessu hafi hún varað í mars 2008 og lýst yfir þeim áhyggjum að erlendir spákaupmenn gætu haglega hagnast á hremmingum krónunnar. Hún hafi í kjölfarið kallað eftir því að sjálfstæðisflokkur tæki evrópupólít sína til endurskoðunar til að Ísland kæmist í skjól Evrópusambandsins og Evrunnar.
Ingibjörg vill þó ekki meina að aðgerðir eða aðgerðarleysi stjórnvalda, eftirlitsaðila og banka hafi leitt til hrunsins. Íslendingar hafi látið glepjast af hinu meinta góðæri sem byggt var á frjálshyggjustefnnu Sjálfstæðisflokks. Vinstrimenn hafi einfaldlega ekki haft nægilegt sjálfstraust til að gagnrýna.
Góðærið byggðist hins vegar á aukinni skuldsetningu þar sem hagkerfið var þanið til hins ítrasta í þeim megintilgangi að tryggja áframhaldandi pólitísk völd tiltekinna aðila. Þetta hafi síðan gert ísland berskjaldað þegar alþjóðlega fjármálakreppan reið yfir.
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis geti aldrei orðið neinn stóridómur hvað þessa samfélagstilraun varðar heldur þurfa Íslendingar - að mati Ingibjargar - að gera upp þessa fortíð með öðrum hætti.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.