Föstudagur, 26. febrúar 2010
Vöruskiptajöfnuður hagstæður um 6,5 milljarða í janúar
Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 38,7 milljarða króna og inn fyrir 32,1 milljarð króna fob (34,9 milljarða króna cif). Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,5 milljarða króna. Verðmæti vöruútflutnings var 4,8% meira en í janúar 2009 og verðmæti vöruinnflutnings var 12,9% minna á föstu gengi frá sama tíma. Í janúar 2009 voru vöruskiptin í járnum.(heimasíða Hagstofu)
Frá því kreppan skall á hefur vöruskiptajöfnuður verið hagstæður,misjafnlega mikið að vísu.Búist hafði verið við meiri afgangi í janúar en varð.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.