Bankarnir fóru út fyrir sitt svið.Braskið setti þá á hausinn

Árið 2003 skrifaði ég grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni :Eru bankarnir komnir  út fyrir sitt svið. Þar færði ég rök fyrir því að svo væri.Í greininni sagði svo m.a.:"

Það hefur komið fyrir,að bankarnir hafi keypt hlutabréf í fyrirtækjum undanfarin misseri. En það hefur ekki gerst  fyrr,að það væri í eins ríkum mæli og nú.Það er því rétt  að staldra við og spyrja hvort það sé rétt stefna,að bankarnir hasli sér völl í atvinnufyrirtækjum í landinu í svo ríkum mæli,að bankarnir beinlínis taki fyrirtækin  yfir og reki þau.Þeirri spurningu verður að svara neitandi.Það er einungis réttlætanlegt,að bankarnir kaupi ráðandi hlutí   í óskyldum fyrirtækjum,ef það er til skamms tíma og vegna einhvers konar björgunaraðgerða,þ.e. ef fyrirtækin eru mjög illa stödd fjárhagslega og bankarnir vilja hjálpa þeim  yfir erfiðasta hjallann og koma þeim á frían sjó  á ný.Hafa verður í huga,að það getur valdið margvíslegum hagsmunaárekstrum,ef stórir bankar hasla sér völl í óskyldum atvinnurekstri. Bankarnir geta  verið með marvíslegar trúnaðarupplýsingar um keppinauta þeirra fyrirtækja,sem bankarnir eignast. Enda þótt  ganga verði út frá því,að bankarnir virði trúnað við viðskiptavini sína getur slík aðstaða valdið tortryggni og jafnvel trúnaðarbresti.

  

 Lögum samkvæmt er hlutverk bankanna að reka hvers konar bankaviðskipti.Það er ekki hlutverk bankanna að vera kjölfestufjárfestar í fyrirtækjum. Ekki hefur þó verið amast við því þó bankar hafi eignast hluti í fyrirtækjum,ef það hefur verið gert til þess að tryggja hagsmuni bankanna,t.d. þegar  hætta hefur verið á því  að bankarnir töpuðu fé,sem þeir hefðu lánað viðkomandi fyrirtækjum og fyrirtækin hefðu ella verið að stöðvast vegna fjárhagserfiðleika.Slíkar björgunaraðgerðir eiga þó ávallt að vera til mjög skamms tíma.Kaup bankanna á hlutabréfum í Sjóvá-Almennum,    Eimskip, SH og SÍF eru annars eðlis. Ekki er þörf neinna björgunarðgerða fyrir  þessi fyrirtæki.Sjóvá- Almennar gengur t.d. mjög vel og skilar  miklum hagnaði. Ekki er heldur þörf björgunaraðgerða fyrir Eimskip. Rekstur félagsins hefur að vísu verið í járnum undanfarið en ekki verður þó séð að Landsbankinn hafi þurft að koma að rekstri þess félags til þess að bæta rekstur þess.SH og SÍF eru heldur ekki í neinum erfiðleikum. Hér hljóta því önnur sjónarmið að hafa ráðið för.

 Það   eru gerðar meiri kröfur til bankanna en annarra fyrirtækja í landinu. Bönkunum er trúað fyrir sparifé landsmanna. Það er mikilvægt að þeir fari vel með það fé. Bankarnir mega ekki misnota aðstöðu sína, sem sterkar og mikilvægar fjármálastofnanir. Þeir mega ekki glata trausti viðskiptavina sinna.Bankarnir eiga allt undir því að halda því trausti.Það hvílir mikil ábyrgð á þessum mikilvægustu fjármálastofnunum þjóðarinnar. Verksvið bankanna er skýrt. Þeir verða að gæta þess að fara ekki út fyrir sitt svið."

Birt í Mbl. 2003

Brask Landsbankans  í sambandi við kaup fyrirtækja hérlendis og erlendis keyrði úr hófi fram. Þáverandi bankamálaráðherra gerði ekkert  í málinu þó bankarnir færu langt  úr fyrir sitt svið. Þetta brask bankanna og lántökur vegna þess setti Landsbankann á hausinn.Varnaðarorð i blaðagreinum eins og þeirri sem hér er vitnað til höfðu ekkert að segja.Ráðherrar voru stungnir svefnþorni.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband