Sjávarútvegsráðherra vill allan afla á land

Það er mín skoðun að koma eigi með allan afla að landi. Þetta snýr að siðlegri umgengni okkar við sjávarauðlindina og séu á því gerðar undantekningar, þá séu þær vel ígrundaðar," segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Tilefnið er niðurstaða nýrrar skýrslu Matís um nýtingu sjávarafla, en nýting frystiskipa er talsvert lakari en landvinnslunnar.

Spurður um skilaboðin til útgerðarinnar segir Jón það oftúlkun að hann vilji breyta útgerðarháttum og segir enga mótsögn felast í því að vilja fá allan afla í land og halda áfram sjófrystingu með sama hætti og nú er. Hins vegar sé mögulegt að bæta aðstöðu til frekari nýtingar um borð í skipunum. Það sé raunhæft með góðum aðlögunartíma. „Því er ekkert sem segir að við getum ekki komið með allan afla að landi og gert það með ágætum hagnaði í nánustu framtíð," segir Jón.

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir það keppikefli útgerðarinnar að hámarka verðmætasköpun um borð í frystiskipunum. „Það er búið að fara í gegnum þetta ítrekað; að skikka menn til að koma í land með allt hráefni sem fellur til. Það hefur hins vegar sýnt sig að það gengur ekki upp. Ég spyr til hvers sé barist ef útgerð og vinnsla tapa á öllu saman."

Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, segir að aðstæður um borð í skipunum og tegundir hráefnisins ráði því hversu miklir möguleikar séu til fullnýtingar. „Auðvitað viljum við koma með sem mest að landi en það verður að vera framkvæmanlegt. Höfum hugfast að sjómenn eru oft að vinna fisk í kappi við tímann. Viðkvæmt hráefni verður að vinna hratt til að hámarka gæði. Aðstæður um borð í hverju skipi fyrir sig ráða því miklu."
Eggert segir að nýtingu um borð í skipunum þurfi að hafa í huga í samhengi við endurnýjun flotans. Ef skipið er frá upphafi búið til að fullnýta aflann, bæði hvað varðar bræðslu og frystingu, aukist möguleikar til að skapa verðmæti. Flotinn eins og hann er samsettur í dag takmarki hins vegar þessa möguleika. „Sjómenn og fyrirtæki verða að bera eitthvað úr býtum fyrir alla þá vinnu sem fylgir þessu," segir Eggert.(visir,is)

Þetta er góð tillaga hjá Jóni., Gallinn er aðeins sá,að hann útskýrir ekki hvernig hann vilji framkvæma  það að koma með allan afla að landi.,Vill hann að allur afli fari á fiskmarkað eða vill hann fara aðrar leiðir. Ráðherra verður að útskýra það.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband