Embætti umboðsmanna skuldara stofnað

Nýju kaupleigukerfi verður komið á fót hjá Íbúðalánasjóði vegna eigna sem sjóðurinn á nú þegar. Leigu- og kaupréttur fólks verður tryggður og betri lög verða sett um húsnæðissamvinnufélög. Þá verða teknar upp húsnæðisbætur í stað vaxta- og húsaleigubóta.

 

Framangreint er meðal þess sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar til að bæta stöðu heimilanna vegna kreppunnar. Þá verða lög um greiðsluaðlögun stórbætt með nýju frumvarpi sem eftirleiðis verður félagslegt úrræði en ekki „vægara" form gjaldþrots.

 

Tillögur ríkisstjórnarinnar voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Samkvæmt þeim munu fleiri hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt.

Samhliða nýju greiðsluaðlögunarfrumvarpi verður sett á fót embætti umboðsmanns skuldara sem byggt verður á traustum grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Umboðsmaðurinn verður talsmaður lántakenda gagnvart lánardrottnum og er ekki hlutlaus.

Fjölmargar nýjungar sem bæta stöðu lántakenda enn frekar voru kynntar. Meðal þess helsta eru:

 

Sérstök úrræði fyrir þá sem eru tekjulágir eða hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli.

Úrræði fyrir fólk með tvær eignir.

Enn lægra hámark á dráttarvexti .

Við nauðungarsölur verður markaðsvirði eigna dregið frá kröfu.

Fólki gert kleift að búa í húsnæði í 12 mánuði þrátt fyrir nauðungarsölu/gjaldþrot.

Hámarksfjárhæðir innheimtukostnaðar takmarkaðar enn frekar.

Reglur um niðurfellingu skattkrafna endurskoðaðar.

Hóflegar skuldbreytingar skattfrjálsar.

Stórfelldar niðurfellingar skattlagðar.

Dregið úr vægi verðtryggingar.

„Við þær sviptingar sem orðið hafa á lána- og húsnæðismarkaði er ljóst að horfa verður til framtíðar. Því mun verða lögð fram heildstæð húsnæðisstefna til framtíðar á vormánuðum, sem byggir á þremur stoðum: eigna-, búseturéttar- og leiguleið," segir í tilkynningu um málið.

Nú þegar hafa um 60-80 þúsund manns notið úrræðanna og áður en árið er liðið er reiknað með að hækkaðar vaxtabætur og útborganir séreignarsparnaðar vegna úrræða ríkisstjórnarinnar nemi um 40 milljörðum króna.(visir.is)

Hér er skýrt frá nokkrum nýjum úrræðum fyrir skuldara.Væntanlega munu þau duga.Enn vantar mikið á að nægilega mikið hafi verið gert.

 

Björgvin Guðmundsson

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband