Þriðjudagur, 6. apríl 2010
Aðild Íslands að innrásinni í Írak verði rannsökuð
Það er bara alveg skelfilegt að horfa upp á þetta. Þetta er það sem gerist alltaf og alls staðar þegar verða stríðsátök," segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, um myndskeið sem birt var á vefnum Wikileaks í dag. Á myndskeiðinu sést hvað bandarískir hermenn drepa saklausa borgara, þar á meðal blaðamenn Reuters, í skotárás. Fullorðnir og börn urðu fyrir árásinni.
Árni Þór segist nýlega hafa lagt fram á Alþingi fyrirspurn til utanríkisráðherra um aðild Íslands að stríðsrekstri Írak og Afganistan. Mér finnst full ástæða til þess að við ræðum það hver aðkoma Íslands er að málum af þessum toga," segir Árni Þór. Hann bendir á að utanríkismálanefnd sé með til umfjöllunar tvær þingsályktunartillögur um að opinberuð verði öll gögn um ákvörðun íslenskra stjórnvalda að styðja striðsreksturinn í Írak.
Þá segir hann að nú í apríl komi hingað til lands fulltrúi frá framkvæmdastjórn NATO sem muni hitta utanríkismálanefnd Alþingis og þar verði hægt að spyrja út í afstöðu NATO til atburða sem þessara. Með þessu geti Íslendingar tekið þátt í umræðu um málið á alþjóðavettvangi.(visir.is)
Það er full ástæða til þess að kanna aðild Íslands að stríðsrekstrinumi í Írak
.Málið var aldrei lagt fyrir ríkisstjórn eða alþingi,heldur tóku tveir ráðherrar,forsætisráðherra og utanríkiisráðherra ákvörðun um að Ísland styddi innrásina.Það var ólögmæt ákvörðun.
Björgvin Guðmundssoin
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þar fengum við sannleikann í andlitið, blóðugan og nakinn. Svona lítur það út á mynd þegar fólk er skotið. Við höfum heyrt af slíkum uppákomum í gegnum tíðina, heyrt talað um "hernaðarátök", fjölda fallinna og svo framvegis.
Myndir af hinu sama hreyfa hins vegar við okkur með öðrum hætti, rétt eins og við munum sem vorum komin til vits og ára þegar myndir af hernaðarátökum í Suð-austur Asíu birtust á sínum tíma.
Flosi Kristjánsson, 6.4.2010 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.